Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:20 0 0°C
Laxárdalsh. 01:20 0 0°C
Vatnsskarð 01:20 0 0°C
Þverárfjall 01:20 0 0°C
Kjalarnes 01:20 0 0°C
Hafnarfjall 01:20 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Á Þrístöpum.
Á Þrístöpum.
Magnús á Dyn.
Magnús á Dyn.
Gröf Agnesar og Friðriks í Tjarnarkirkjugarði.
Gröf Agnesar og Friðriks í Tjarnarkirkjugarði.
Sögustund á Breiðabólstað.
Sögustund á Breiðabólstað.
Af heiðargötum niður í Vesturhóp.
Af heiðargötum niður í Vesturhóp.
Riðið í Bjargaós.
Riðið í Bjargaós.
Fréttir | 16. september 2018 - kl. 12:57
Mikill áhugi á hestaferðum um söguslóðir
morðanna á Illugastöðum og síðustu aftökunnar á Íslandi

Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum stóð fyrir vinsælum og fjölmennum hestaferðum í sumar um söguslóðir morðanna á Illugastöðum og síðustu aftökuna á Íslandi í janúar 1830. Vegna mikils áhuga urðu ferðirnar þrjár en hver ferð tók fimm daga og gat fólk riðið með einn dag eða svo marga sem það kaus. Húnahornið sló á þráðinn til Magnúsar nýverið til að forvitnast um hvers vegna hann teldi að hestaferðir hans um söguslóðir hafi orðið jafn vinsælar og raun ber vitni.

„Eru vinsældir sögunnar ekki vegna þess að ástir, afbrýði, ofbeldi og ágirnd eru allt um kring í þessari sögu,“ spurði Magnús á móti og svaraði um leið að það sé ástæða þess hversu áhugaverð hún er.

„Ást snýst oft upp í óstjórnlegt hatur. Sumir menn heilla konur, jafnvel giftar, en draga þær á tálar hverja eftir aðra. Ágirnd leiðir fólk oft til óhæfuverka. Fjölmargir leggja margt í sölur til að brjótast út úr ömurlegum aðstæðum. Kynferðislegt ofbeldi er einn mesti glæpur sem til er. Harðir dómar og ósanngjörn réttarhöld ofbjóða oftar en ekki öllu réttsýnu fólki. Aftakan, sú síðasta á Íslandi, var gerð að viðstöddum 150 mönnum, öllum til viðvörunar. Bróðir þess myrta var fenginn til þess að vera böðull. Sum mál eru látin liggja milli hluta meðan hart er gengið fram að upplýsa önnur. Skilaboð frá löngu látnu fólki heilla marga. Hvert þessara tíu atriða sem hér eru nefnd gætu verið uppistaða í góðri sögu,“ sagði Magnús og bætti við „að þegar þau öll kristallast í einni og sömu sögunni lifir hún um aldir og fólk þyrstir að heyra meir og meir.“

Mörgum spurningum ósvarað
Magnús segist hafa velt upp nokkrum spurningum sem hann hafi reynt að svara á ferð sinni um Húnaþing. Stundum hafi hann lagt áherslu á það sem hann teldi það rétta, en oftar en ekki benti hann á hvað aðrir hafi sagt og hvernig þeir hafi svarað spurningunum. „Sumir hafa t.d. bent á að ágirnd hafi verið ástæða morðanna en aðrir segja að það hafi verið óstjórnlegt hatur sem réði för. Jafnvel eru þeir til sem telja að ástin hafi verið undirrót morðanna.“

En spurningarnar sem Magnús velt upp eru þessar: „Var það ástin sem togaði Agnesi að Illugastöðum? Hvers vegna er 15 ára unglingsstúlka vistráðin til alræmds kvennamanns? Hvers vegna var girnd Natans til kvenna slík sem sögur segja? Hvað er það sem fær fólk til að fremja morð? Hvað veldur þeim sinnaskiptum sem varð á Friðrik, sem ungur ólst upp sem ódæll og ofvirkur prakkari en vann síðan aðdáun húsráðenda og heimafólks á Þingeyrum þegar hann var þar í gæslu síðustu vikurnar fyrir aftökuna? Hvers vegna kom hann syngjandi sálma á leiðinni á aftökustaðinn og ávarpaði mannfjöldann sem þangað hafði verið boðaður til að horfa á hryllinginn? Hvers vegna voru 150 menn skikkaðir til að standa rétt við höggstokkin þegar öxin sneið höfuð frá búk og blóðið spýttist. Hvers vegna dæmdi Björn Blöndal sýslumaður svo hart í þessu máli? Því lét sýslumaður kyrrt liggja þegar höfuð sakamanna voru horfin af stöngunum morguninn eftir aftökuna? Hvernig stóð á því að Skáld Rósa kennd við Vatnsenda, vel gefin og skáldmælt stúlka úr Eyjafirði skildi hljóta þau örlög sem lífið spann, m.a. að verða ástkona Natans, meðan hún var enn gift öðrum manni? Hvernig gat Agnes komið þeim boðum og fengið því framgengt að beinin voru grafin upp rúmri öld eftir aftökuna? Hvers vegna lifir þessi saga svo sterk enn nú nær 200 árum eftir þessa atburði?  

Magnús sagði að eftir því sem hann skoðaði söguna meira opnuðust alltaf nýir gluggar og hann fyndi nýja áhugaverða þætti.

Fleiri ferðir næsta sumar
Magnús telur allar líkur á því að fleiri ferðir verði farnar næsta sumar. Í hvaða formi sé þó óvíst en fólk hefði líka mjög vel uppsetningin á ferðunum í sumar og trúlega myndi hann ekki breyta miklu. Þá hafi nokkrir aðilar spurst fyrir um hvort hann gæti ekki komið með þeirra hópi til að segja söguna og er Magnús með það í skoðun. Þess má geta að Magnús fór í lok ágúst með hópi eldri borgara í dagsferð um söguslóðirnar. Ekinn verður hringur um Vatnsnes og fram í Vatnsdal, komið við á Þrístapa, að Illugastöðum, Tjörn á Vatnsnesi og í Katadal. Ekið var hjá garði á Vatnsenda og Stóruborg og að lokum voru æskustöðvar Agnesar í Vatnsdal heimsóttar. Mikil ánægja var með ferðina.

Magnús nefndi að lokum að það hefði verið magnað að standa í fyrstu ferðinni við rústir bæjarins á Illugastöðum og segja brot úr sögunni við hliðina á Jónínu núverandi eiganda Illugastaða. Amma hennar var jafnskyld Friðrik og Natan og afi hennar og amma stóðu fyrir minningarsamkomu á Illugastöðum 19. júní 1934 en beinin voru grafin í Tjarnarkirkjugarði 17. júní það ár.

Afi Magnúsar og faðir unnu að því að grafa beinin upp á Þrístöpum og í einni ferðinni var kona sem sagði frá því að amma hennar hefði verið unglings stúlka á Litlu Borg þegar farið var með beinin frá Sveinsstöðum að Tjörn. Maður vestan af Vatnsnesi var að koma úr kaupstaðaferð og var með nokkra hesta undir klyfjum. Amma þessara konu sagði frá því að það hefði verið mikil lotning í lofti þegar fólk vissi að á einum þessara hesta voru bein Agnesar og Friðriks á leið í vígða mold eftir að hafa legið við Þrístapa í rúm 100 ár.

Meðfylgjandi myndir eru af Facebook síðu Magnúsar en þar má finna fleiri myndir frá ferðunum.

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Glaðheimar
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið