Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:35 0 0°C
Laxárdalsh. 03:35 0 0°C
Vatnsskarð 03:35 0 0°C
Þverárfjall 03:35 0 0°C
Kjalarnes 03:35 0 0°C
Hafnarfjall 03:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 96 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
07:01 08. apr. 2021   Vilja endurnýja veginn yfir Kjöl með einkaframkvæmd
Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd. Sambærilegt mál hefur í þrígang verið flutt á Alþingi en ekki náð fram að ganga. Flutningsmenn tillögunnar vilja að Alþingi álykti að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að hefja undirbúning að endurnýjun vegarins og geri hann að vegi sem hægt sé að halda opnum stóran hluta ársins.
15:37 07. apr. 2021   Samningur um áfangastaðastofu Norðurlands
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað samning við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra um stofnun áfangastaðastofu á Norðurlandi. Sagt er frá þessu á vef SSNV.
15:31 07. apr. 2021   Frá Félags- og tómstundastarfinu á Blönduósi
Félags- og tómstundarstarfið okkar á Þverbraut 1 á Blönduósi verður opið frá klukkan 14-17 á mánudögum og fimmtudögum fyrir handavinnu og á þriðjudögum fyrir spilamennsku. Heilbrigðisráðaneytið hefur veitt okkur undanþágu til að taka á mót 18 manns hverju sinni. Von okkar er að sem flestir geti nýtt sér þessa þjónustu.
11:08 07. apr. 2021   Undrun og vonbrigði yfir lágu framlagi til uppbyggingu innviða á Norðurlandi vestra
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lýsir yfir undrun og vonbrigðum yfir lágu framlagi úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða á Norðurlandi vestra. Af 86 verkefnum sem skilgreind eru í áætluninni eru aðeins þrjú á Norðurlandi vestra sem fá samtals 1% af þeirri heildarfjárhæð sem úthlutað er árin 2021-2023.
10:47 07. apr. 2021   Skorað á RARIK að endurskoða fasta staðsetningu starfa í Reykjavík
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra skorar á RARIK að endurskoða fasta staðsetningu starfa í Reykjavík og auglýsa þess í stað störf án staðsetningar. Þannig stuðli fyrirtækið að áframhaldandi uppbyggingu starfsstöðva sinna á landsbyggðinni, þar sem viðskiptavinir þess eru staðsettir. Þetta kemur fram í bókun stjórnar SSNV frá fundi sínum í gær.
09:34 07. apr. 2021   Yfir tvö þúsund skammtar af bóluefni til HSN
Í dag fær Heilbrigðisstofnun Norðurlands 1.100 skammta af AstraZeneca bóluefninu og 1.200 skammta af Pfizer bóluefninu. AstraZeneca bóluefnið verður nýtt til að klára bólusetja íbúa fædda 1951 og eldri. Pfizer bóluefnið verður nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu bóluefni 16.-19. mars og fyrri bólusetningu hjá heilbrigðisstarfsmönnum sem vinna utan stofnana við heilbrigðisstörf og hefja bólusetningu hjá íbúum sem með undirliggjandi sjúkdóma og fæddir 1952-56.
09:23 07. apr. 2021   Tæpar tvær milljónir úr Sprotasjóði
Félags- og skólaþjónusta A-Hún. hefur fengið úthlutað 1,9 milljón krónur úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2021-2022. Styrkurinn er fyrir verkefnið Lærdómssamfélagið í skólum í Austur-Húnavatnssýslu og eru samstarfsstofnanir: Höfðaskóli, Barnaból, Blönduskóli, Barnabær, Húnavallaskóli og Vallaból.
09:08 07. apr. 2021   Kallað eftir ábendingum við tillögur starfshóps
Íbúum í Húnaþingi vestra gefst nú kostur á að koma með ábendingar við tillögur starfshóps sem skipaður var til að rýna teikningar fyrir fjölnota rými í austurenda Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra, sem m.a. er ætlað fyrir fólk með sértækar þarfir og aðstöðu fyrir keppnislið. Starfshópurinn átti einnig að koma með hugmyndir að framtíðarskipulagi útisvæðis við sundlaugina. Hægt er að senda inn ábendingar til og með 8. apríl næstkomandi.
14:20 06. apr. 2021   Viðburðadagatal á vef Blönduósbæjar
Blönduósbær hefur opnað viðburðadagatal á vef sveitarfélagsins. Dagatalið er hugsað til þess að halda saman öllum viðburðum í sveitarfélaginu á einum stað og til að auðvelda bæjarbúum og gestum bæjarins að sjá hvað um sé að vera á svæðinu, að því er segir í tilkynningu á vef Blönduósbæjar.
15:13 05. apr. 2021   Spánskir fyrir sjónir Kormáks Hvatar
Frá Kormáki Hvöt
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar hefur undanfarin ár leitað sér liðsstyrks á Spáni með mjög góðum árangri. Skemmst er að minnast landnema á borð við markmanninn Miguel Martinez Martinez, sem enn veldur framherjum fjórðu deildar enn martröðum; varnarvitans Domi sem kom gríðarlega sterkur inn fyrir nokkrum árum og hefur nú ljáð Tindastóli krafta sína og svo sjálfs Marka-Minguez sem sló öll skorunarmet og þandi netmöskvana á þriðja tug sinna sumarið sem hann dvaldi nyrðra.
10:28 05. apr. 2021   Eitt sameinað sveitarfélag sterkara
Í fréttum Ríkisútvarpsins um helgina var fjallað um sameiningar sveitarfélaga og sagt frá því að í sumar og haust verði kosið um sameiningar í 11 sveitarfélögum, fjórum á Norðvesturlandi, tveimur á Norðausturlandi og fimm á Suðurlandi. Rætt er m.a. við Jón Gíslason, oddvita sveitarstjórnar Húnavatnshrepps en hann er jafnframt formaður samstarfsnefndar um sameiningu í Austur-Húnavatnssýslu.
21:32 03. apr. 2021   Bílar sátu fastir í ís á Kjalvegi
Björgunarfélaginu Blöndu barst útkall gærkvöldi vegna tveggja bíla sem sátu fastir í ís og klaka á Kjalvegi. Flugbjörgunarsveitin frá Varmahlíð var einnig fengin til aðstoðar og var viðbúnaður því nokkur. Saga þurfti ísinn í kringum annan bílinn til þess að hægt væri að draga hann upp úr ísvatninu. Ekki urðu slys á fólki og var aðgerðum lokið skömmu eftir miðnætti.
15:27 03. apr. 2021   Húnar endurnýja Húna 3
Björgunarsveitin Húnar í Húnaþingi vestra keypti nýverið Toyota Hiace bifreið af Hjálparsveit Skáta í Kópavogi. Leysir hún af hólmi eldri bifreið, Húna 3. Bifreiðin er búin fjarskiptatækjum, ljósum og öðrum búnaði sem til þarf og er hún merkt samkvæmt nýjum staðli Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
11:42 03. apr. 2021   Skógræktarátak í hlíðum Spákonufells
Í sumar verður stórhuga skógræktaráætlun hleypt af stokkunum á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Skagastrandar í hlíðum Spákonufells. Skógrækt ríkisins og Sveitarfélagið Skagaströnd hafa gert með sér samning um átakið með aðkomu skógræktarfélagsins. Áætlað er að gróðursetja 176 þúsund plöntur af ýmsum tegundum á um 80 hektara svæði í Spákonufellinu.
11:26 03. apr. 2021   Norðanhríð í kvöld
Gul veðurviðvörun er í gildi á Norðurlandi vestra í dag en spáð er suðvestan stormi fram eftir degi og norðan hríð í kvöld. Hvassviðrið byrjaði í gærkvöldi og nú er suðvestan 5-25 m/s og snarpar vindhviður við fjöll. Í kvöld snýst vindur og er spáð norðan 10-15 m/s með talsverðri snjókommu eða skafrenningi. Búast má við lélegu skyggni og versnandi færð. Veður fer ört kólnandi og líkur eru á mikilli hálku.
  1 2 3 4 5 6 7 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið