Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:29 0 0°C
Laxárdalsh. 10:29 0 0°C
Vatnsskarð 10:29 0 0°C
Þverárfjall 10:29 0 0°C
Kjalarnes 10:29 0 0°C
Hafnarfjall 10:29 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 69 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
16:43 08. des. 2021   Jólatónleikar Olga Vocal Ensemble
Frá sóknarnefnd Blönduóskirkju
Sóknarnefndin vill minna á jólatónleika Olga Vocal Ensemble sem haldnir verða fimmtudaginn 9. desember klukkan 20.00 í kirkjunni. Allur aðgangseyrir rennur óskiptur í orgelsjóð Blönduóskirkju. Miðasala á tix.is og við innganginn.
14:48 08. des. 2021   Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Síðast liðinn föstudag afhenti Halldór Hreinsson fyrir hönd eigenda Brekkugötu 2 félaginu lyklavöldin að jarðhæð og kjallara húss Sigurðar Pálmasonar. Hefur félagið frjáls afnot af húsnæðinu fram til 17. júní á næsta ári og greiðir aðeins fyrir rafmagn og hita. Stjórn félagsins er afar þakklát fyrir þennan rausnarskap og stefnir að því að nýta þetta húsnæði sem best fyrir nýjungar og fjölbreyttara félagsstarf í þágu eldri borgara og samfélagsins alls þennan tíma.
15:05 07. des. 2021   Kaupmennirnir á Skagaströnd frá 1586
Út er komin bókin Kaupmennirnir á Skagaströnd frá 1586 eftir Lárus Ægi Guðmundsson. Í bókinni er rakin saga kaupmennsku á Skagaströnd frá árinu 1586 en þá var gefið út verslunarleyfi handa Ratke Timmermann frá Hamborg. Alla tíð síðan hefur verið verslun á Skagaströnd og um langan aldur var þar eini verslunarstaðurinn í Húnavatnssýslu.
14:09 07. des. 2021   Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir næstu tvær vikur
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreytta gildandi reglugerð um samkomutakmarkanir. Almennar fjöldatakmarkanir verða því áfram 50 manns en með möguleika á hraðprófsviðburðum, áfram gilda 1 metra nálægðarmörk, reglur um grímunotkun o.s.frv. Þessi ákvörðun er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að viðhalda óbreyttum takmörkunum í ljósi óvissu um þróun faraldursins, ekki síst vegna tilkomu Ómíkron-afbrigðis kórónaveirunnar.
12:41 07. des. 2021   Minnum á Jólasjóðinn
Frá stjórn Jólasjóðsins
Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig. Sjóðurinn hefur fengið styrki frá félagasamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín. Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs, hefur Félagsþjónustan fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur.
11:27 07. des. 2021   Íþróttamiðstöðin á Blönduósi auglýsir eftir starfsmanni
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi óskar eftir að ráða karlmann í 20%-40% starfshlutfall og afleysingar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
10:14 07. des. 2021   Jólaflóamarkaður á Skagaströnd
Jólaflóamarkaður verður haldinn laugardaginn 11. desember í Nesi listamiðstöðinni á Skagaströnd klukkan 12-17. „Áttu handverk, bækur, spil, dót, föt, málverk eða muni sem nýtast ekki lengur á heimilinu og leita nýrra ævintýra í jólapakkann,“ segir í auglýsingu frá listamiðstöðinni. Kakó, djús, smákökur og jólabíó verður í boði á meðan markaðurinn stendur.
14:03 06. des. 2021   Flutningur á tölvukerfum sýslumanna
Tilkynning frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Mánudaginn 13. desember n.k. má búast við skertri þjónustu á skrifstofum Sýslumannsins á Norðurlandi vestra, á Blönduósi og Sauðárkróki, vegna flutnings á tölvukerfum sýslumanna.
09:33 06. des. 2021   Sameiningarkosning fer fram 19. febrúar 2022
Kosið verður um sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps laugardaginn 19. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram á vef sameiningarverkefnisins, Húnvetningi II, en þar segir að tillaga samstarfsnefndar um sameiningunna hafi nú fengið fyrri umræðu í báðum sveitarstjórnum. Samstarfsnefndin leggur það einnig til að henni verði falið að undirbúa atkvæðagreiðsluna og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.
22:02 05. des. 2021   Stefnir í mikinn halla á rekstri málefna fatlaðra
Sveitarfélagið Skagaströnd, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur og Blönduósbær hafa öll lýst yfir þungum áhyggjum að sífellt auknum kostnaði vegna rekstur málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra. Öll sveitarfélögin í landshlutanum starfa saman að málaflokknum og leiðir Sveitarfélagið Skagafjörður samstarfið. Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri í Skagafirði, sagði í viðtali við Ríkisútvarpið á föstudaginn að það stefni í mikill halla í rekstrinum á þessu ári.
12:16 05. des. 2021   Suðaustan hvassviðri eða stormur í dag
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra í dag. Spáð er suðaustan 15-23 m/s, hvassast í vindstrengjum við fjöll og hviður um 35 m/s á þeim slóðum. Getur verið varasamt fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Rigning á láglendi en mögulega snjókoma á fjallvegum og gæti færð spillst.
10:00 04. des. 2021   Jólahús ársins á Blönduósi valið
Jólaleikur Húnahornsins
Sú hefð hefur skapast á Húnahorninu í desember að velja Jólahús ársins á Blönduósi. Um er að ræða samkeppni eða jólaleik um fallega jólaskreytt hús, hvort sem það er íbúðarhús eða fyrirtækjahúsnæði. Samkeppnin um Jólahúsið 2021 verður með svipuðu sniði og síðust ár. Þetta er í 20. sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á Jólahúsi ársins á Blönduósi.
09:20 04. des. 2021   Friðrik Halldór ráðinn fjármála- og skrifstofustjóri Blönduósbæjar
Friðrik Halldór Brynjólfsson hefur verið ráðinn fjármála- og skrifstofustjóri Blönduósbæjar. Friðrik var metinn hæfastur úr hópi tíu umsækjenda um starfið sem auglýsti laust í október. Hann er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á stjórnun og fjármál, frá Háskólanum á Akureyri og er í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala.
11:14 03. des. 2021   Frá félagi eldri borgara í Húnaþingi
Þar sem ekki verður af jólahlaðborði á vegum félagsins vegna covidfaraldursins, vill félagið vekja athygli á Sælkera jólaveisla B&S Restaurant 2021 fyrir eldriborgara. Boðið verður upp á heimskeyrslu innan Blönduós eða sótt miðvikudaginn 8 desember 18:00. Vinsamlegast látið vita fyrir klukkan 20:00 á sunnudag 5. desember:
  1 2 3 4 5 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið