09:02 |
28. mars 2024 |
Helgihald um páskana
Páskarnir eru ein mesta hátíð kristinna manna. Þá er krossfestingar Krists og upprisu hans minnst. Þessi merki boðskapur hefur táknræna merkingu ekki síður en sögulega. Margir nota hátíðina til samvista með sínum nánustu, vinum og/eða ættingjum, sumir leggjast í ferðalög en aðrir njóta einfaldlega þess að vera til. Svo eru þeir sem sinna helgihaldi um páska og rækta trú sína og innri mann. |
18:35 |
27. mars 2024 |
Val á slagorði fyrir Húnaþing vestra
Íbúar í Húnaþingi vestra geta valið milli fimm tillagna að slagorði fyrir sveitarfélagið, sem lýstir kjarna samfélagsins og hægt er að nota í kynningarskyni. Síðastliðið haust framkvæmdi Háskólinn á Bifröst íbúakönnun og var fólk m.a. beðið um að koma með hugmyndir að slagorði fyrir Húnaþing vestra. Nokkrar tillögur bárust og hafa nú fimm verið valdar til að kjósa um. Einnig er hægt að koma með nýja hugmynd. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra. |
14:48 |
26. mars 2024 |
Tilraunir með að nýta grásleppu betur
Hjá Biopol á Skagaströnd hafa verið gerðar tilraunir til að nýta kjöthluta grásleppunnar til framleiðslu á matvöru og verða afurðirnar kynntar á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í næsta mánuði, að því er fram kemur á vef Fiskifrétta. Haft er eftir Halldóri G. Ỏlafssyni, framkvæmdastjóra Biopol, að gerðar hafi verið tilraunir með kald- og heitreykingu grásleppuflaka og þurrkun á grásleppuhveljum með það fyrir augum að bjóða hana sem valkost í gæludýrafóður. |
14:11 |
26. mars 2024 |
Byggðarráð harmar ákvörðun Íslandspósts
Byggðarráð Húnaþings vestra harmar einhliða ákvörðun Íslandspósts um að loka Pósthúsinu á Hvammstanga, sem hafi í för með sér niðurlagningu á 2,5 stöðugildi. Ákvörðunin rýri samkeppnishæfni fyrirtækja sem selji vörur í vefverslun á svæðinu þar sem aðgengi að þjónustu geti haft áhrif á afgreiðsluhraða. Þetta kemur fram í bókun byggðarráðs frá fundi þess í gær. |
09:28 |
26. mars 2024 |
Harður árekstur við Enniskot í gær
Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu saman í hörðum árekstri á hringveginum við bæinn Enniskot í Húnaþingi vestra síðdegis í gær en lögreglan fékk tilkynningu um slysuð rétt fyrir klukkan 17. Í tilkynningu frá henni segir að tvennt hafi verið í hvorri bifreið og að tveir hafi verið fluttir slasaðir með sjúkraflugi frá Blönduósflugvelli til Reykjavíkur, og tveir með sjúkrabifreið. Ekki sé hægt að segja til um meiðsl fólksins að svo stöddu. |
14:58 |
25. mars 2024 |
Pósthúsi Hvammstanga verður lokað í júní
Í byrjun júní eru fyrirhugaðar breytingar á póstþjónustu á fjórum stöðum á Norðurlandi. Til stendur að loka pósthúsunum á Hvammstanga, Siglufirði og Dalvík og samstarfspósthúsinu í Ỏlafsfirði. Nú verða sendingar afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum. Þegar eru komin póstbox á Hvammstanga og Dalvík en í næsta mánuði verða sett upp box í Ỏlafsfirði og á Siglufirði. Þetta kemur fram á vef Íslandspóst. |
14:17 |
25. mars 2024 |
Styrkur til Hollvinasamtaka HSB
Frá stjórn Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi
Stjórnarfundur var haldinn þann 21. mars hjá Hollvinasamtökum HSB. Eftir fundinn mættu sannkallaðir gleðigjafar, en það var stjórn Styrktatsjóðs A-Hún. þau Valgarður Hilmarsson formaður, Erla Ísafold Sigurðardóttir og Sigríður Eddý Jóhannesdóttir. Færðu þau samtökunum rausnarlega gjöf kr: 500.000 upp í kaup á þrekhjóli fyrir skjólstæðinga 3. og 4. hæðar. |
12:09 |
24. mars 2024 |
Ný bók um morðin á Sjöundá og Illugastöðum
Út er komin bókin Þessi frægu glæpamál: Morðin á Sjöundá og Illugastöðum. Það eru Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ og Húnvetningurinn Jón Torfason, fyrrverandi skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands sem rita ítarlegan inngang og tóku saman heimildir sem eru gefnar út í heild sinni í fyrsta sinn í þessari bók. Útgefendur eru Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og Háskólaútgáfan. |
10:02 |
22. mars 2024 |
Ekkert ferðaveður í dag
Ekkert ferðaveður er á Norðurlandi vestra þessa stundina. Þæfingur, snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum á svæðinu og víða hvasst. Holtavörðuheiði er lokuð vegna veðurs og verður staðan metin á hádegi. Ỏfært er um Laxárdalsheiði. Vatnsskarð er lokað vegna veðurs og þar eru bílar sem þvera veginn. Þverárfjall er lokað vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu Norðurlandi, sem og á Vestfjörðum, Breiðafirði og á Austurlandi að Glettingi. |
09:13 |
22. mars 2024 |
Samstarfsyfirlýsing um öruggara Norðurland vestra undirrituð
Samstarfsyfirlýsing um samvinnu gegn ofbeldi og öðrum brotum, og um bættrar þjónustu fyrir jaðarsetta hópa, undir heitinu Öruggara Norðurland vestra, hefur verið undirrituð af Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra, Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, sveitarfélögunum Húnaþingi vestra, Húnabyggð, Skagabyggð Skagaströnd og Skagafirði, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi, Heilbrigðisstofnunum Norðurlands og Vesturlands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og ungmennasamböndunum USAH, USVH og UMSS. |
15:41 |
21. mars 2024 |
Sveinbjörg Rut nýr formaður USVH
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga var haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga á þriðjudaginn og sá Hestamannafélagið Þytur um skipulagningu þess. Á þinginu var Sveinbjörg Rut Pétursdóttur kjörin nýr formaður USVH til tveggja ára en hún tekur við af Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur sem setið hefur sem formaður síðastliðin fjögur ár. Þá var nýr meðstjórnandi kjörinn til tveggja ára, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, en hún tekur við af Elísu Ýr Sverrisdóttur. |
15:23 |
21. mars 2024 |
Solihull grunnnámskeið á Blönduósi
Frá Geðverndarfélagi Íslands
Við munum halda Solihull grunnnámskeið á Blönduósi 20. apríl og 4. maí. Solihull aðferðin snýst um tilfinningalegt heilbrigði ungra barna og er mjög gagnlegt og upplýsandi fyrir alla sem vinna með ungum börnum, mæðrum á meðgöngu og kennurum.
Námskeiðið tekur 2 daga, kl. 11-17:30. Fagfólk þarf að mæta í tvo 1,5 klst. handleiðslutíma að námskeiðinu loknu áður en skírteini eru afhent. |
14:50 |
21. mars 2024 |
Fengu að sjá hvernig rafmagn er framleitt
Fyrr í þessum mánuði fóru nemendur í 9. og 10. bekk Húnaskóla, ásamt náttúrufræðikennurum sínum í vettvangsferð í Blöndustöð. Markmið ferðarinnar var að tengja námsefni um rafmagn og segulmagn, sem nemendur hafa verið að vinna í, við nánasta umhverfi og gefa þeim kost á að sjá með eigin augum hvernig rafmagn er framleitt. Í Blöndustöð fékk hópurinn vel skipulagða og greinagóða leiðsögn fjögurra starfsmanna stöðvarinnar. |
14:37 |
21. mars 2024 |
Opið hús í Nesi listamiðstöð á sunnudaginn
Listamiðstöðin Nes á Skagaströnd heldur opið hús á sunndaginn milli klukkan 15:30 og 17:30. Þar taka listamenn á móti gestum og sýna verk sín. Sökktu þér niður í heim skapandi tjáningar ásamt fjölbreyttum hópi listamanna og höfunda víðsvegar að úr heiminum sem vinna við teiknimyndir, klippimyndir, útsaum, keramik og bókmenntir. Komdu og vertu hluti af þessu samfélagi og eigðu samskipti við þessa hæfileikaríku einstaklinga. Við erum spennt að taka á móti þér og deila með þér endalausri listi, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni. |
13:58 |
21. mars 2024 |
Enn er möguleiki að sjá FEGRUNARMÖRK í Hillebrandtshúsi!
Um síðustu helgi var opnuð sýningin Fegrunarmörk í Hillebrandtshúsi á Blönduósi. Á sýningunni eru verk frá listafólki af svæðinu sem deila sýn sinni á mannlega fegurð. Yfir 40 manns mættu á opnunardaginn, nutu léttra veitinga og tóku þátt í að skapa lifandi myndverk á staðnum, afrakstur þess má sjá á sýningunni! Sýningin verður opin alla daga fram til laugardagsins 23. mars, kl. 16-18. Aðgangur er ókeypis - hvetjum alla til að mæta og styðja við fjölbreytt menningarlíf í héraði. |