10:48 |
17. maí 2022 |
Tilkynningar |
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir lausar stöður kennara og deilarstjóra
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir lausar stöður kennara og deilarstjóra fyrir skólaárið 2022-2023. Starfshlutfall 100%. Ráðningartími: Sem fyrst eða eftir samkomulagi, um framtíðarstörf er að ræða. Leikskólinn Barnabær er fimm deilda skóli með börn á aldrinum eins til fimm ára |
rzg
|
07:15 |
16. maí 2022 |
Tilkynningar |
Fréttabréf Textílmiðstöðvarinnar
Frá Textílsmiðstöð Íslands
Bráðum er ár liðið frá því að við náðum þeim mikilvæga áfanga að opna TextílLab á Blönduósi, fyrstu stafrænu textílsmiðjuna á Íslandi. Gaman er að segja frá TextílLabinu og því helsta sem er á döfinni hjá okkur! TextílLab (Þverbraut 1) er opið á miðvikudögum (13:00 - 20:00) og eftir samkomulagi. Á heimasíðu okkar eru góðar upplýsingar um TextílLab. |
rzg
|
18:12 |
15. maí 2022 |
Tilkynningar |
Frá Krabbameinsfélagi A-Hún.
Viltu gerast félagsmaður í Krabbameinsfélagi Austur-Húnavatnssýslu? Af hverju ætti ég að gera það? Hvað getur Krabbameinsfélag A-Hún. gert fyrir mig? Flest þekkjum við einhvern sem hefur þurft að glíma við krabbamein og þar af leiðandi þurft að dvelja fjarri heimili sínu til lengri eða skemmri tíma, með tilheyrandi kostnaði. |
rzg
|
10:19 |
13. maí 2022 |
Tilkynningar |
Lengri opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Laugardaginn 14. maí 2022, kjördag, verður opið hjá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga sem hér segir: Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, frá kl. 14:00-17:00. Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, frá kl. 14:00-17:00. Vakin er athygli kjósenda á að kosning utan kjörfundar á kjördag er fyrst og fremst ætluð þeim sem ekki eiga þess kost að kjósa á kjörfundi í sinni kjördeild þann daginn vegna fjarlægðar. |
rzg
|
20:13 |
11. maí 2022 |
Tilkynningar |
Lengri opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 14. maí 2022. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þann 15. apríl sl. og lýkur kl. 17:00 á kjördag.
Fimmtudaginn 12. maí nk. verður opið til kl. 19:00 á aðalskrifstofu sýslumanns að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi og sýsluskrifstofu Suðurgötu 1, Sauðárkróki. |
rzg
|
09:12 |
09. maí 2022 |
Tilkynningar |
Framboðskaffi G listans
Tilkynning frá G listanum
G listinn býður í kaffi og spjall á Brimslóð Atelier á Brimslóð 10a (bak við Hótel Blöndu). Miðvikudaginn 11. maí frá kl: 17:00 til 19:00.
Einnig verður boðið í kaffi og spjall á Húnavöllum að kvöldi miðvikudagsins 11. maí frá kl: 20 til 22.
Á báðum stöðum býðst kjósendum að hitta frambjóðendur listans og ræða við þá. |
rzg
|
08:17 |
09. maí 2022 |
Tilkynningar |
Opinn fundur í kvöld með Bjarna Jónssyni
Tilkynning frá D-listi, Sjálfstæðismanna og óháðra
Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, heimsækir kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna og óháðra mánudagskvöldið 9. maí klukkan 20-22.
Allir velkomnir. |
rzg
|
08:06 |
09. maí 2022 |
Tilkynningar |
Aðalfundur Krabbameinsfélags A-Hún.
Frá stjórn
Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 18. maí 2022 kl. 18:00 á Teni Blönduósi.
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Veitingar.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir á fundinn. |
rzg
|
12:53 |
06. maí 2022 |
Tilkynningar |
Sjálfboðaliðar
Kæru Húnvetningar. Við á HSN hjúkrunar-og dvalardeild á Blönduósi langar til að koma gönguhóp af stað yfir sumar tímann. Okkur vantar því nokkra sjálfboðaliða til að aðstoða okkur. Fyrirhugað er að fara í göngu 1 sinni í viku kl. 14 og allir fá sér síðan kaffi og gott spjall. Það er hægt að skrá sig 1 sinni í mánuði, 1 sinni í viku eða bara eins og hentar hverjum og einum. Það verða alltaf 2-3 starfsmenn með. |
rzg
|
21:28 |
04. maí 2022 |
Tilkynningar |
Þakkarkveðja frá heldriborgurum á Blönduósi
Við viljum senda þakkarkveðju til Söndru og Björns Þórs fyrir frábært kvöldverðarboð. Einnig sendum við starfsfólki B&S bestu kveðjur og þakkir fyrir notalega þjónustu.
Heldriborgara á Blönduósi. |
rzg
|
23:27 |
03. maí 2022 |
Tilkynningar |
Framsókn og aðrir framfarasinnar opna kosningaskrifstofu
Tilkynning frá B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna
Framsókn og aðrir framfarasinnar opnuðu kosningaskrifstofu sína á sunnudaginn með húsfylli. Gestir snæddu dýrindis Vilkovöfflur og mikil og góð stemming var á opnuninni. Auðunn Sigurðsson, oddviti framboðsins, bauð alla velkomna og sagði frá því að undanfarnar vikur hefðu verið notaðar til að setja saman málefnaskrá framboðsins. |
rzg
|
21:19 |
02. maí 2022 |
Tilkynningar |
Framboðskaffi
Tilkynning frá H-listanum
H listinn verður með framboðskynningarkaffi í nýrri verslunarmiðstöð sveitarfélagsins við Húnabraut 4 (fyrir framan Vínbúðina). Laugardaginn 7. maí frá kl. 14:00 - 17:00. Þar gefst kjósendum kostur á að spjalla við frambjóðendur H listans.
Allir velkomnir. |
rzg
|
21:58 |
01. maí 2022 |
Tilkynningar |
Opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna og óháðra
Tilkynning frá D-listi, Sjálfstæðismanna og óháðra
Fimmtudaginn 28. apríl sl. opnuðu Sjálfstæðismenn og óháðir á Blönduósi og í Húnavatnshreppi kosningaskrifstofu sína í Félagsheimilinu á Blönduósi. Guðmundur Haukur Jakobsson, oddviti framboðsins, flutti stutta tölu þar sem hann fór yfir þau mál sem unnist hafa á síðasta kjörtímabili. |
rzg
|
09:25 |
01. maí 2022 |
Tilkynningar |
Opinn fundur með þingflokki Sjálfstæðisflokks
Tilkynning frá D-listi, Sjálfstæðismanna og óháðra
Þingflokkur Sjálfstæðisflokkins er á hringferð um landið og þriðjudaginn 3. maí kl. 20 gefst íbúum kostur á að hitta ráðherra og þingmenn flokksins á kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna og óháðra, í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Frambjóðendur Sjálfstæðismanna og óháðra hafa undirbúið heimsóknina vel og kynnt m.a. fyrir þingmönnum og ráðherrum helstu málefni sem brenna á samfélaginu. |
rzg
|
04:35 |
01. maí 2022 |
Tilkynningar |
VIÐ VINNUM
1. maí - alþjóðalegur baráttudagur verkafólks.
Stéttarfélagið Samstaða, óskar öllum sínum félagsmönnum til hamingju í tilefni dagsins.
BYGGJUM RÉTTLÁTT ÞJÓÐFÉLAG, STÖNDUM SAMAN |
rzg
|