Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:15 0 0°C
Laxárdalsh. 03:15 0 0°C
Vatnsskarð 03:15 0 0°C
Þverárfjall 03:15 0 0°C
Kjalarnes 03:15 0 0°C
Hafnarfjall 03:15 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 31-45 46-60 af 68 Næstu 61-68
KlukkanDagsetningFrétt
07:49 30. jún. 2021   USVH hélt upp á 90 ára afmæli sitt með fjölmennu frjálsíþróttamóti
Fjölmenni var saman komin í Kirkjuhvammi í fyrradag þegar Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga fagnaði 90 ára afmæli sínu. Haldið var fjölmennt frjálsíþróttamót fyrir unga sem aldna, spilaður fótbolti og boðið var upp á veitingar.
00:34 30. jún. 2021   Sveitarstjóra falið að undirbúa uppsögn á samstarfssamningi sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu
Sveitarstjórn Blönduósbæjar ákvað á fundi sínum í gær að fela sveitarstjóra að undirbúa uppsögn á þeim samstarfssamningi sem gerður var 6. júní árið 2008, á milli Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar.
00:20 30. jún. 2021   Sveitarstjórn Blönduósbæjar óskar eftir formlegum viðræðum um sameiningu
Sveitarstjórn Blönduósbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að óska formlega eftir viðræðum við sveitarstjórn Húnavatnshrepps um sameiningu sveitarfélaganna byggða á þeirri miklu undirbúningsvinnu sem þegar hefur farið fram.
22:20 29. jún. 2021   Staða aðstoðarleikskólastjóra
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í 100% stöðu, frá og með 1.ágúst 2021. Í leikskólanum eru 65 börn og 5 deildir frá 8 mánaða aldri. Einkunnarorð skólans er: Leikur. Gleði. Virðing. Unnið er eftir kenningum John Dewey, að læra í gegnum leikinn, einnig er unnið eftir læsisstefnan Færni til framtíðar sem var Þróunarverkefni grunn og leikskóla í Húnavatnssýslum.
08:03 29. jún. 2021   Hreinsunarátak í Kálfshamarsvík
Kvenfélagið Hekla í Skagabyggð stendur fyrir hreinsun í Kálfhamarsvík á morgun, miðvikudaginn 30. júní klukkan 13. Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta og að lokinni hreinsun verður boðið upp á grillveislu í Skagabúð.
07:40 29. jún. 2021   Gul veðurviðvörun í dag
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag frá klukkan 14 til miðnættis. Spáð er sunnan hvassviðri, 10-18 m/s. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, um 30 m/s og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni.
21:52 28. jún. 2021   Konur í golfi
Frá Golfklúbbnum ÓS
Atli Freyr Rafnsson verður með golfkennslu fyrir konur sem hafa áhuga á að prófa golfíþróttina. Námskeiðið er fjórar klukkustundir og kennt verður á fimmtudögum. Fyrsti tíminn verður 8. júlí klukkan 18:30. Einnig verður kennt 15., 22. og 29. júlí. Námskeiðið kostar kr. 10.000.
21:11 28. jún. 2021   Opna Fiskmarkaðsmótið haldið í blíðskaparveðri
Opna Fiskmarkaðsmótið, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli við Skagaströnd á sunnudaginn í blíðskaparveðri. Til leiks mætti 31 keppandi úr sjö golfklúbbum. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf, einn flokkur. Sigurvegari varð Adolf H. Berndsen úr Golfklúbbi Skagastrandar.
19:30 28. jún. 2021   Samsýningin Þórdís - fyrsti Húnvetningurinn
Í sumar verður önnur samsýning listamanna á Norðurlandi vestra í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólum. Í fyrra var tekið fyrir þjóðsagan Stúlkan og Hrafninn sem er byggð á atburðum sem urðu þegar Skíðastaðaskriða féll 1545. Í ár verður tekið fyrir fæðing fyrsta innfædda Húnvetningsins sem hlaut nafnið Þórdís. Þrettán listamenn úr Húnavatnshreppi, Skagafirði, Reykjavík og Bandaríkjunum taka þátt í sýningunni. Listamennirnir nota allskonar tækni og málningu við listsköpun sína.
08:33 28. jún. 2021   Skagaströnd og Skagabyggð kanna sameiningu
Kanna á hvort grundvöllur sé fyrir sameiningu Sveitarfélagsins Skagastrandar og Skagabyggðar. Sveitarstjóri Skagastrandar og oddviti Skagabyggðar hafa fundað í kjölfar niðurstöðunnar í kosningum um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu sem fram fóru 5. júní. Íbúar beggja sveitarfélaganna höfnuðu sameiningu allra sveitarfélaganna í sýslunni.
17:11 27. jún. 2021   Gamla Blöndubrúin verður ný göngubrú út í Hrútey
Það er óhætt að segja að mikill spenningur og eftirvænting hafi verið í þeim sem mættir voru við Hrútey í gærkvöldi þegar gömlu Blöndubrúnni var komið fyrir á varanlegum stað sem göngubrú út í Hrútey. Ekkert dugði nema stærsti krani landsins í verkið en brúin vegur liðlega 30 tonn og er um 40 metrar á lengd.
09:39 26. jún. 2021   Sýning listafólks Textílslistamiðstöðvarinnar
Listafólkið sem dvalið hefur í Textíllistamiðstöðinni á Blönduósi í júní heldur sýningu á vinnu sinni í TextílLab Textílmiðstöðvarinnar mánudaginn 28. júní frá klukkan 13 til 20. Listamennirnir eru Bryndís Björgvinsdóttir, Judi Pettite, Vera De Pont og Victoria Manganiello. TextílLab er á Þverbraut 1 á Blönduósi.
11:21 25. jún. 2021   Á toppinn með stórsigri
Kormákur/Hvöt tók á móti Samherjum á Blönduósvelli í gær þegar leikið var í sjöundu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Gestirnir sáu aldri til sólar og heimamenn skoruðu sjö mörg gegn engu. Sigurður Bjarni Aadnegard skoraði þrennu og George Razvan Chariton skoraði fjögur mörk í leiknum. Staðan í hálfleik var 2-0 en í seinni hálfleik opnuðust allar fljóðgáttir þar sem fimm mörk voru skoruð.
11:14 25. jún. 2021   Aflétting allra samkomutakmarkana 26. júní
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að frá og með 26. júní næstkomandi falli úr gildi allar takmarkanir á samkomum innanlands. Í þessu felst m.a. fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana. Ákvörðun um afléttingu allra samkomutakmarkana er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
07:19 25. jún. 2021   Appelsínugul veðurviðvörun í dag
Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugular veðurviðvaranir vegna hvassviðris fyrir Breiðafjörð, Norðurland eystra, Strandir og Norðurland vestra. Appalsínugula viðvörunin tekur gildi klukkan 11 í dag fyrir Norðurland vestra og gildir í tæpan sólarhring en þá tekur við gul viðvörun. Veðurstofan spáir sunnan og suðvestan stormi eða roki, 20-30 m/s. Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll allt að 40 m/s.
Fyrri 31-45 1 2 3 4 5 Næstu 61-68
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið