Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 28. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:52 0 0°C
Laxárdalsh. 21:52 0 0°C
Vatnsskarð 21:52 0 0°C
Þverárfjall 21:52 0 0°C
Kjalarnes 21:52 0 0°C
Hafnarfjall 21:52 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 68 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
18:13 15. júl. 2021   Stofutónleikar Heimilisiðnaðarsafnsins
Helga Rós Indriðadóttir sópransöngkona syngur á Stofutónleikum Heimilisiðnaðarsafnsins á síðasta degi Húnavöku, sunnudaginn 18. júlí klukkan 15:00. Píanóleikari er Eva Þyri Hilmarsdóttir. Eftir tónleikana verður boðið upp á kaffi og kleinur. Aðgangseyrir safnsins gildir.
10:28 15. júl. 2021   Góð gjöf frá Léttitækni
Léttitækni gaf nýverið Kirkjugarði Blönduóss talíu. Hún kemur sér afar vel þegar laga þarf undir legsteinum í garðinum sem farnir eru að hallast, enda sumir ansi þungir. Talían var strax tekin í notkun þegar laga þurfti undir einum legsteini og var umsjónarmaður garðsins og formaður stjórnar hans sammála um að þetta ágæta tæki stæði vel undir nafni og létti verulega undir við framkvæmdina.
10:01 15. júl. 2021   Húnavökuhelgin hafin
Fyrsti dagur Húnavöku er runninn upp í blíðskaparveðri á Blönduósi. Veðurspáin er góð fyrir komandi daga, skínandi sól og allt að 20 stiga hiti en eitthvað gæti rignt á morgun. Í dag og kvöld ætla Blönduósingar í þéttbýli og dreifbýli að drífa sig út og skreyta hús sín hátt og lágt með skemmtilegum og frumlegum fígúrum. Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið, frumlegustu og flottustu fígúruna og fyrir götuna með flestar fígúrurnar.
09:37 14. júl. 2021   Fjöldi viðburða á Skúnaskralli
Barnamenningarhátíðinni Skúnaskralli hefur borist fjölmargar umsóknir og uppástungur um viðburði sem eiga bæði rætur að rekja til aðila innan svæðisins og utan þess. Nýverið var auglýst eftir viðburðum á hátíðina og nú þegar hafa yfir 30 viðburðir verið staðfestir og fleiri eiga eftir að bætast við, að því er fram kemur á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
09:25 14. júl. 2021   Veraldarvinir 20 ára - Opið hús
Sjálfboðaliðasamtökin Veraldarvinir eru 20 ára á þessu ári. Þau verða með opið hús gamla í símstöðvarhúsinu á Brú í Hrútafirði dagana 16.-18. júlí frá klukkan 12 til 18. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir. Upplagt er fyrir þá sem koma að sunnan og ætla að skella sér á Húnavöku á Blönduósi að líta við á Brú í afmæliskaffi.
10:42 13. júl. 2021   Húnavakan að bresta á
Haldin dagana 15.-18. júlí á Blönduósi
Húnavaka, bæjarhátíð Blönduósinga, verður haldin í 18. sinn um helgina. Hátíðin hét áður Matur og menning og var fyrst haldin árið 2003. Árið 2006 var ákveðið að breyta nafninu og endurvekja hið góða og gilda nafn Húnavaka sem áratugum saman var fastur liður í menningarlíf Húnvetninga. Dagskrá Húnavöku er fjölbreytt að vanda og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
09:49 12. júl. 2021   Frábær stemning á Smábæjarleikunum
Smábæjarleikarnir fóru fram í blíðskaparveðri á Blönduósi um helgina. Um 400 keppendur mættu til leiks og fjölmargir aðstandendur þeirra. Um 70-80 sjálfboðaliðar aðstoðuðu knattspyrnudeild Hvatar við hin ýmsu störf á mótinu sem nú var haldið í sautjánda skipti. Stemningin á mótinu var frábært og mikið fjör í bænum sem líklega náði hámarki í íþróttahúsinu á laugardaginn þegar Jógvan og Friðrik Ómar komu fram.
10:29 11. júl. 2021   Toppslagurinn tapaðist
Kormákur/Hvöt mætti Vængjum Júpíters á Fjölnisvelli í Reykjavík í gær þegar leikið var í níundu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Um toppslag í riðlinum var að ræða og úr varð hörku leikur tveggja sterkra liða sem ætluðu sér toppsætið. Heimamenn skoruðu fyrsta mark leiksins strax á 4. mínútu en átta mínútum síðar jafnaði George Razvan Chariton metin fyrir gestina.
15:56 10. júl. 2021   Húnvetningar í föstudagsþætti N4
Í föstudagsþætti norðlensku sjónvarpsstöðvarinnar N4 er rætt um komandi Húnavöku. Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Blönduósbæjar, mætti í þáttinn og sagði frá því helsta sem verður á dagskrá hátíðarinnar. Þá var einnig fjallað um samsýningu listamanna í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólum sem opnuð var í dag.
15:04 10. júl. 2021   Bergþór leiðir lista Miðflokksins
Framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi flokksins á fimmtudaginn. Bergþór Ólason, þingmaður leiðir listann en hann var einnig oddviti flokksins í kjördæminu á síðasta kjörtímabili. Sigurður Páll Jónsson sem setið hefur á þingi fyrir flokkinn sækist eftir endurkjöri og skipar annað sæti listans.
10:42 09. júl. 2021   Smábæjaleikar Umf. Hvatar eru um helgina
Smábæjaleikar Umf. Hvatar á Blönduósi í knattspyrnu fara fram um helgina. Til leiks mæta knattspyrnulið yngri aldurflokka, bæði piltar og stúlkur, frá ýmsum bæjar- og sveitarfélögum víðsvegar af landinu. Búist er við um 400 þátttakendum og um 300 aðstandendum þeirra á leikana og því má gera ráð fyrir miklu fjöri í bænum um helgina.
15:14 08. júl. 2021   Lausasölulyf til sölu í Staðarskála
Nú er hægt að fá lausasölulyf í Staðarskála en hingað til hafa vegfarendur um þjóðveg eitt þurft að fara tugi kílómetra til að sækja þjónustuna. Sama gildir um íbúa í Hrútafirði og nærsveitum. Í tilkynningu frá N1 segir að viðtökurnar hafi verið góðar en salan hófst í byrjun þessa mánaðar.
14:51 08. júl. 2021   Starfsmaður ráðinn við glatvarmaverkefnið
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa ráðið sumarstarfsmann sem starfa mun við glatvarmaverkefni við gagnaverið á Blönduósi. Verkefnið hlaut nýverið styrk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og miðar að því að finna leiðir til að nýta varma sem frá gagnaverinu kemur til verðmætasköpunar. Starfsmaðurinn heitir María Dís Ólafsdóttir og hefur hún lokið MS gráðu í lífverkfræði frá Háskóla Íslands.
17:28 07. júl. 2021   Biskupsbeygjan heyrir sögunni til
Biskupsbeygjan í sunnanverðri Holtavörðuheiði heyrir nú sögunni til. Opnað hefur verið fyrir umferð á nýjan vegarkafla um Heiðarsporð í staðin en þar hafa framkvæmdir staðið yfir síðan í fyrra. Biskupsbeygjan var kröpp og þurftu vegfarendur að hægja verulega á ferð sinni til að ná beygjunni.
17:20 07. júl. 2021   19 sóttu um starf verkefnisstjóra
Nítján vilja komast í starf verkefnisstjóra Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Starfið var auglýst nýverið en meginstarfstöð þess verður á Skagaströnd, auk fastrar vikulegrar viðveru á Blönduósi. Umsóknarfrestur rann út 30. júní og stendur úrvinnsla umsókna nú yfir. Búist er við að gengið verði frá ráðningu fyrir lok þessa mánaðar.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið