13:37 |
15. nóv. 2022 |
Íbúafundi frestað um viku
Kosningu um nýtt byggðarmerki Húnabyggðar lýkur á miðnætti í kvöld. Hægt er að kjósa rafrænt til miðnættis eða koma á skrifstofu Húnabyggðar fyrir klukkan 15 í dag og kjósa þar. Íbúafundurinn sem vera átti í kvöld hefur verið frestað um viku og því verður ekki hægt að kjósa á honum líkt og til stóð, að því er fram kemur í facebookfærslu frá Húnabyggð. |
12:42 |
15. nóv. 2022 |
Jólasjóðurinn minnir á sig
Frá stjórn Jólasjóðsins
Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig. Sjóðurinn hefur fengið styrki frá félagasamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín. Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs, hefur Félagsþjónustan fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur. |
14:13 |
14. nóv. 2022 |
Tónleikar Rokkkórsins á Hvammstanga
Rokkkórinn á Hvammstanga heldur tónleika laugardaginn 19. nóvember í Félagsheimilinu Hvammstanga klukkan 21. Flutt verða níu lög við undirspil fimm manna hljómsveitar. Kórmeðlimir munu syngja einsöng og einn gestasöngvari kemur fram, Luis Aquino frá Brasilíu og syngur á móðumáli sínu, portúgölsku. Sigurvaldi Ívar Helgason verður hljóð- og ljósamaður og mun hann útbúa sérstaka ljósasýningu fyrir hvert lag. |
11:02 |
12. nóv. 2022 |
Kynvættir meðal vors í Listakoti Dóru
Málverkasýningin Kynvættir meðal vors verður opnið í sýningarsal Listakots Dóru í Vatnsdalshólum laugardaginn 19. nóvember klukkan 13-18 og verður hún opin til 20. desember. Listakonan, Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir verður á staðnum opnunarhelgina en eftir það sé eigandi sýningarsalarins um sýninguna. Þema hennar eru kynvættir úr þjóðsögum sem eru nánast gleymdir í skjölum og geymslum. |
10:49 |
12. nóv. 2022 |
Framkvæmdir í Spákonufellshöfða heimilar
Umhverfisstofnun hefur veitt leyfi fyrir framkvæmdum í Spákonufellshöfða en fyrirhugað er að reisa þar fuglaskoðunarhús, bæta og afmarka bílaplan, bæta merkingar og gera úrbætur og viðbætur á göngustígum fólkvangsins. Spákonufellshöfði er friðlýstur og því öll mannvirkjagerð og hvers konar annað jarðrask óheimilt nema með leyfi Umhverfisstofnunar. |
14:24 |
11. nóv. 2022 |
Sálmabókamessa í Blönduóskirkju
Sálmabókamessa verður haldin í Blönduóskirkju á sunnudaginn, 13. nóvember klukkan 11. Ný sálmabók verður tekin í notkun og sungnir nýir sálmar í bland við gamla.Kirkjukór Blönduóskirkju leiðir safnaðarsöng við undirleik Eyþórs Franzsonar Wechner. Sr. Edda Hlíf þjónar fyrir altari. Myndir til að lita, kex og djús í boði fyrir krakkana niðri í safnaðarsal meðan á messu stendur. Öll hjartanlega velkomin. |
14:19 |
11. nóv. 2022 |
Æfðu notkun björgunarklippu
Slökkviliðsmenn Brunavarna Austur-Húnvetninga halda reglulega æfingar til þess að viðhalda faglegri þekkingu sinni og þjálfa færni sína í starfi en nýlega æfðu þeir notkun björgunarklippu. Á facebooksíðu Brunavarna A-Hún. er sagt frá æfingunni og þar má sjá myndir frá henni. Fram kemur að æfingin hafi verið vel sótt og gengið einstaklega vel, þrátt fyrir mikla rigningu. |
11:32 |
10. nóv. 2022 |
Alvarlegur veikleiki í öryggisinnviðum
Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir
Föstudaginn 4. nóvember síðastliðinn voru íbúar, fyrirtæki og stofnanir á Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir þar sem ljósleiðari fór í sundur vegna framkvæmda í Refasveit. Atvikið afhjúpar alvarlega veikleika í öryggisinnviðum í sveitarfélaginu og ef upp hefðu komið tilfelli er varða líf og heilsu íbúa voru engar bjargir til staðar eða möguleiki til að kalla eftir aðstoð þar sem ekki náðist í 112 símleiðis. |
14:56 |
09. nóv. 2022 |
Kosið um nýtt nafn á grunnskólann
Hundrað og nítján tillögur bárust skólaráði Grunnskóla Húnabyggðar um nýtt nafn á skólann. Skólaráðið hefur ákveðið að kosið verði um þrjú nöfn en þau eru Grunnskóli Húnabyggðar, Húnaskóli og Þórdísarskóli. Rafræn kosning er í boði en einnig er möguleiki á að kjósa hjá ritara í grunnskólanum á opnunartíma klukkan 7:45-16. Kosningin er einungis fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnabyggð og má aðeins kjósa einu sinni. |
09:04 |
09. nóv. 2022 |
Hugum að auðlindinni okkar - stillum kerfin og drögum úr sóun
RARIK býður viðskiptavinum hitaveitunnar á Blönduósi og Skagaströnd að fá til sín fagmann til að yfirfara hitakerfi í híbýlum sínum, sér að kostnaðarlausu. Með þessu vill RARIK hvetja viðskiptavini hitaveitunnar til að huga að þessari auðlind samfélagsins og taka þátt í að lágmarka sóun á heita vatninu. |
08:51 |
09. nóv. 2022 |
Uppskeruhátíð Búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista verður haldin 19. nóvember
Tilkynning frá nefndinni
Uppskeruhátíð Búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista verður haldinn 19. nóvember næstkomandi. Húsið opnar með fordrykk 19:00. Borðhald hefst kl. 20:00. Um matinn mun Hafa Gaman ehf. sjá um og framreiðir þriggja rétta matseðil. |
21:12 |
08. nóv. 2022 |
Skoðanakönnun um nýtt byggðarmerki Húnabyggðar
Alls bárust 50 tillögur frá 29 hönnuðum í nýtt byggðarmerki Húnabyggðar. Ákveðið hefur verið að gefa öllum íbúum sveitarfélagsins kost á að taka þátt í að velja eitt merki af fjórum. Hægt verður að kjósa með rafrænum hætti og með því að koma á skrifstofu sveitarfélagsins á Hnjúkabyggð 33 og kjósa. Skrifstofa Húnabyggðar er opin alla virka daga klukkan 9-15. Kosning hefst miðvikudaginn 9. nóvember og líkur formlega að kvöldi þriðjudagsins 15. nóvember en þá verður haldinn opinn íbúafundur í Félagsheimilinu á Blönduósi þar sem hægt verður að kjósa. |
11:01 |
08. nóv. 2022 |
Ljósmyndasýning "Ljósmyndaráðgáta" í Héraðsskjalsafninu á Blönduósi í dag kl. 16:30
Ljósmyndasýning "Ljósmyndaráðgáta" verður haldin á Hnjúkabyggð 30 í húsnæði Héraðsskjalasafns og Bókasafns. Þar verða sýndar nokkrar ljósmyndir, á tjaldi, frá ýmsum tímum og frá ýmsum ljósmyndurum. |
09:21 |
08. nóv. 2022 |
Hluti starfa verði á Hvammstanga
Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir stuðningi við tillögu sem fyrir liggur um flutning verkefna Innheimtustofnunar sveitarfélaga til sýslumannsins á Blönduósi en vill að hluti þeirra verði á Hvammstanga. Í umsögn byggðarráðs við frumvarpsdrög um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga sem finna má í Samráðsgátt stjórnvalda segir að á Blönduósi hafi byggst upp mikil þekking og góð reynsla af innheimtumálum sem nýtist vel í innheimtu meðlagsgreiðslna. |
15:18 |
07. nóv. 2022 |
Sungið í kirkjukórnum í tæp 70 ár
Guðrún Sigurðardóttir hefur sungið í kór Hólaneskirkju á Skagaströnd í tæp 70 ár, eða frá því að hún var 16 ára gömul. Það væri sjálfsagt ekki í frásögur færandi að fólk sýndi kirkjunni sinni trygglyndi ef ekki væri svo að bæði dóttir Guðrúnar, dótturdóttir og barnabarnabarn hennar syngja líka í kórnum. Sagt er frá þessu á kirkjan.is undir flokknum Fólkið í kirkjunni. |