Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 17. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:12 0 0°C
Laxárdalsh. 09:12 0 0°C
Vatnsskarð 09:12 0 0°C
Þverárfjall 09:12 0 0°C
Kjalarnes 09:12 0 0°C
Hafnarfjall 09:12 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 31-45 46-58 af 58  
KlukkanDagsetningFrétt
12:09 24. mars 2024   Ný bók um morðin á Sjöundá og Illugastöðum
Út er komin bókin Þessi frægu glæpamál: Morðin á Sjöundá og Illugastöðum. Það eru Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ og Húnvetningurinn Jón Torfason, fyrrverandi skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands sem rita ítarlegan inngang og tóku saman heimildir sem eru gefnar út í heild sinni í fyrsta sinn í þessari bók. Útgefendur eru Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og Háskólaútgáfan.
10:02 22. mars 2024   Ekkert ferðaveður í dag
Ekkert ferðaveður er á Norðurlandi vestra þessa stundina. Þæfingur, snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum á svæðinu og víða hvasst. Holtavörðuheiði er lokuð vegna veðurs og verður staðan metin á hádegi. Ỏfært er um Laxárdalsheiði. Vatnsskarð er lokað vegna veðurs og þar eru bílar sem þvera veginn. Þverárfjall er lokað vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu Norðurlandi, sem og á Vestfjörðum, Breiðafirði og á Austurlandi að Glettingi.
09:13 22. mars 2024   Samstarfsyfirlýsing um öruggara Norðurland vestra undirrituð
Samstarfsyfirlýsing um samvinnu gegn ofbeldi og öðrum brotum, og um bættrar þjónustu fyrir jaðarsetta hópa, undir heitinu Öruggara Norðurland vestra, hefur verið undirrituð af Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra, Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, sveitarfélögunum Húnaþingi vestra, Húnabyggð, Skagabyggð Skagaströnd og Skagafirði, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi, Heilbrigðisstofnunum Norðurlands og Vesturlands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og ungmennasamböndunum USAH, USVH og UMSS.
15:41 21. mars 2024   Sveinbjörg Rut nýr formaður USVH
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga var haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga á þriðjudaginn og sá Hestamannafélagið Þytur um skipulagningu þess. Á þinginu var Sveinbjörg Rut Pétursdóttur kjörin nýr formaður USVH til tveggja ára en hún tekur við af Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur sem setið hefur sem formaður síðastliðin fjögur ár. Þá var nýr meðstjórnandi kjörinn til tveggja ára, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, en hún tekur við af Elísu Ýr Sverrisdóttur.
15:23 21. mars 2024   Solihull grunnnámskeið á Blönduósi
Frá Geðverndarfélagi Íslands
Við munum halda Solihull grunnnámskeið á Blönduósi 20. apríl og 4. maí. Solihull aðferðin snýst um tilfinningalegt heilbrigði ungra barna og er mjög gagnlegt og upplýsandi fyrir alla sem vinna með ungum börnum, mæðrum á meðgöngu og kennurum. Námskeiðið tekur 2 daga, kl. 11-17:30. Fagfólk þarf að mæta í tvo 1,5 klst. handleiðslutíma að námskeiðinu loknu áður en skírteini eru afhent.
14:50 21. mars 2024   Fengu að sjá hvernig rafmagn er framleitt
Fyrr í þessum mánuði fóru nemendur í 9. og 10. bekk Húnaskóla, ásamt náttúrufræðikennurum sínum í vettvangsferð í Blöndustöð. Markmið ferðarinnar var að tengja námsefni um rafmagn og segulmagn, sem nemendur hafa verið að vinna í, við nánasta umhverfi og gefa þeim kost á að sjá með eigin augum hvernig rafmagn er framleitt. Í Blöndustöð fékk hópurinn vel skipulagða og greinagóða leiðsögn fjögurra starfsmanna stöðvarinnar.
14:37 21. mars 2024   Opið hús í Nesi listamiðstöð á sunnudaginn
Listamiðstöðin Nes á Skagaströnd heldur opið hús á sunndaginn milli klukkan 15:30 og 17:30. Þar taka listamenn á móti gestum og sýna verk sín. „Sökktu þér niður í heim skapandi tjáningar ásamt fjölbreyttum hópi listamanna og höfunda víðsvegar að úr heiminum sem vinna við teiknimyndir, klippimyndir, útsaum, keramik og bókmenntir. Komdu og vertu hluti af þessu samfélagi og eigðu samskipti við þessa hæfileikaríku einstaklinga. Við erum spennt að taka á móti þér og deila með þér endalausri listi,“ segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni.
13:58 21. mars 2024   Enn er möguleiki að sjá FEGRUNARMÖRK í Hillebrandtshúsi!
Um síðustu helgi var opnuð sýningin Fegrunarmörk í Hillebrandtshúsi á Blönduósi. Á sýningunni eru verk frá listafólki af svæðinu sem deila sýn sinni á mannlega fegurð. Yfir 40 manns mættu á opnunardaginn, nutu léttra veitinga og tóku þátt í að skapa lifandi myndverk á staðnum, afrakstur þess má sjá á sýningunni! Sýningin verður opin alla daga fram til laugardagsins 23. mars, kl. 16-18. Aðgangur er ókeypis - hvetjum alla til að mæta og styðja við fjölbreytt menningarlíf í héraði.
11:16 21. mars 2024   Golfklúbburinn Ỏs hlaut hvatningarverðlaun Ungmennasambands Austur-Húnvetninga
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hélt ársþing sitt nýverið. Næstum fullt hús var á þinginu en af 36 þingfulltrúum frá aðildarfélögum mættu 35. Átta tillögur voru lagðar fyrir þingið og voru þær allar samþykktar með smávægilegum breytingum. Snjólaug Jónsdóttir var kosin áfram formaður USAH. Eyþór Franzson Wechner gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem varaformaður USAH og tók Brynhildur Erla Jakobsdóttir við sæti hans.
11:22 20. mars 2024   Norðaustan stórhríð á morgun
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra á morgun fimmtudag en hún gildir frá klukkan 08:00 til 02:00. Spáð er norðaustan 15-23 m/s og snjókomu eða slyddu og talsverðri ofankomu á Ströndum. Búast má við slæmu skyggni og versnandi færð. Gefin hefur verið út appelsínugul veðurviðvörun fyrir Vestfirði á sama tíma.
11:11 20. mars 2024   Leikflokkur Húnaþings vestra verðlaunaður
Leikflokkur Húnaþings vestra hefur hlotið viðurkenninguna framúrskarandi verkefni á sviði menningar 2023 sem veitt er af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Leikflokkurinn fær viðurkenninguna fyrir leikritið Himinn og jörð eftir Ármann Guðmundsson en söngleikurinn var saminn fyrir leikflokkinn við 16 lög Gunnars Þórðarsonar. Þá hefur leikflokkurinn getið af sér gott orðspor við uppsetningu á á öðrum verkefnum.
16:13 19. mars 2024   Fróðleiksmolakaffi Landsvirkjunar og vefstreymi
Á morgun, miðvikudaginn 20. mars, verður dagskrá á vegum Landsvirkjunar í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnar klukkan 16:30 með kaffi og kleinum, en í framhaldinu koma þrjú 20-30 mínútna erindi tengd náttúrunni við Blöndu. Þau sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með í streymi (https://www.youtube.com/watch?v=nuFIw1MpJcE) sem hefst klukkan 17 og líkur um 18:30.
13:22 19. mars 2024   Vinnustofa um mótun loftslagsstefnu
FRESTAÐ VEGNA VEÐURS
Á föstudaginn klukkan 12:30-16:00 verður haldin vinnustofa á Hótel Laugarbakka til að ræða framtíðarsýn sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum í loftslagsmálum. Allir sem hafa áhuga á loftslagsmálum og framtíð sveitarfélaganna Húnabyggðar, Húnaþings vestra, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar eru hvattir til að taka þátt. „Til þess að móta vel ígrundaða stefnu er mikilvægt að fá ólík sjónarmið að borðinu. Hvetjum ykkur til að taka þátt og eiga góða vinnustund með okkur,“ segir í auglýsingu um vinnustofuna.
Fyrri 31-45 1 2 3 4  
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið