14:31 |
25. maí 2021 |
Neikvæð rekstrarniðurstaða hjá Skagaströnd
Ársreikningur sveitarsjóðs Skagastrandar og stofnana fyrir árið 2020 var tekinn til síðari umræðu á sveitarstjórnarfundi í síðustu viku. Rekstrarniðurstaðan var neikvæð um 22,7 milljónir króna en árið 2019 var hún jákvæð um sömu tölu. Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu 667,5 milljónum króna og lækka um 1,8% milli ára. Rekstrargjöld námu 684,8 milljónum og hækka um 5,2% milli ára. |
13:46 |
25. maí 2021 |
Aðalfundur Ferðamálafélags A-Hún.
Frá stjórn
Aðalfundur Ferðamálafélags A-Hún. verður haldinn þriðjudaginn 1. júní 2021 klukkan 17:00 á Teni, Húnabraut 2 á Blönduósi. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Sjáumst sem flest. |
19:53 |
24. maí 2021 |
Bylting fyrir starfsemi Blöndu
Björgunarfélagið Blanda hefur undirritað kaupsamning um kaup á nýrri aðstöðu fyrir starfsemi félagsins. Aðstaðan verður í nýju atvinnuhúsnæði sem rís á Miðholti á Blönduósi. Blanda hefur fest kaup á tveimur bilum eða samtals 434 fermetrum. Nýbyggingin verður 1.739 fermetrar að stærð, skiptist í ellefu misstórar einingar og mun hýsa margskonar atvinnustarfsemi. |
08:56 |
24. maí 2021 |
Frá Hollvinum HSB
Gleðilegt sumar kæru Húnvetningar, félagsmenn og velunnarar. Hollvinasamtökin áttu 15 ára afmæli þann 19. apríl 2020. Ekki var hægt að halda upp á daginn í fyrra, en nú langar okkur til að færa Heilbrigðisstofnunni á Blönduósi afmælisgjöf af þessu tilefni og leitum við því aðstoðar ykkar. Nýverið var gert upp baðherbergi á sjúkradeild A og þar vantar baðstól. |
12:32 |
23. maí 2021 |
TextílLab opnað á Blönduósi
Á föstudaginn var nýtt TextílLab opnað á Blönduósi á vegum Textílmiðstöðvar Íslands og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður byggðaráðs Blönduósbæjar, ávörpuðu gesti. Lilja og Þórdís Kolbrún klipptu svo í sameiningu á opnunarþráðinn sem var úr ekta húnvetnskri ull. |
18:23 |
22. maí 2021 |
Fyrsti sigur sumarsins
Kormákur/Hvöt tók á móti Vængjum Júpíters á Sauðárkróksvelli í dag þegar leikið var í annarri umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Kormákur/Hvöt réði lögum og lofum á vellinum, skoraði fjögur mörk og vann leikinn. Markaskorarar voru Hilmar Þór Kárason, sem skoraði fyrst tvö mörk leiksins á 2. mínútu og 43. mínútu, Akil Rondel Dexter De Freitas sem skoraði í uppbótartíma fyrri hálfleiks og George Razvan Chariton sem skoraði á 58. mínútu. |
07:43 |
22. maí 2021 |
Dagsferð í Skagafjörð fyrirhuguð
Frá ferðanefnd Félags eldri borgara í Húnaþingi
Fyrirhuguð er dagsferð í Skagafjörð þann 9. júní næstkomandi ef næg þátttaka fæst. Farið verður í Kakalaskála að Kringlumýri, Laugarmýri (blóm og matjurtir) og drukkið kaffi í Áskaffi í Glaumbæ. Aðgangur að Kakalaskála er kr. 2.100 fyrir eldri borgara, ferðakostnaður kr. 2.500, en Félag eldri borgara greiðir fargjald að hálfu. |