Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 3. desember 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Desember 2023
SMÞMFL
262728293012
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:20 N 4 -8°C
Laxárdalsh. 01:20 A 4 -7°C
Vatnsskarð 01:20 NA 3 -5°C
Þverárfjall 01:20 NA 6 -4°C
Kjalarnes 01:39 0 0°C
Hafnarfjall 01:20 VSV 2 -4°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
21. nóvember 2023
62. þáttur. Eftir Jón Torfason
18. nóvember 2023
Ingi Heiðmar Jónsson
11. nóvember 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
08. nóvember 2023
Eftir Bjarna Jónsson
06. nóvember 2023
61. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. nóvember 2023

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 15  
KlukkanDagsetningFrétt
13:18 02. des. 2023   Aðventuhátíð í Blönduóskirkju
Frá sóknarpresti
Sameiginleg aðventuhátíð Auðkúlu-, Blönduós-, Svínavatns-, Undirfells- og Þingeyrasóknar verður haldin í Blönduóskirkju fyrsta sunnudag í aðventu, þann 3. desember og hefst kl. 16:00.
08:24 02. des. 2023   Aðventuhátíð í Hólaneskirkju
Frá sóknarpresti
Aðventuhátíð í Hólaneskirkju fer fram sunnudaginn 3. desember klukkan18. Stína Gísladóttir emerítus flytur hugleiðingu. Kirkjukór Hólaneskirkju syngur undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Fermingarbörn 2024, NTT-, TTT-, og sunnudagaskólabörn taka þátt í hátíðinni. Veitingar eftir hátíðina.
14:53 01. des. 2023   Viðhaldsvinna mun valda rafmagnsleysi
RARIK er að fara í viðhaldsvinnu í aðveitustöðinni við Laxárvatn og þarf að taka spenna úr sambandi sem þýðir víðtækt rafmagnsleysi í Húnabyggð, Skagaströnd, Skagabyggð og í hluta af Húnaþingi vestra. Viðhaldsvinnan hefst að kvöldi þriðjudagsins 5. desember klukkan 23:00 og ætti rafmagn að vera komið á klukkan 04:00 aðfaranótt miðvikudagsins 6. desember. RARIK hefur gefið út áætlun um rafmagnsleysið eftir svæðum og lítur hún svona út:
14:27 01. des. 2023   Jólatónleikar Tónlistarskóla A.-Hún.
Jólatónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga fara fram 5.-7. desember á Blönduósi og Skagaströnd. Söngnemendur skólans úr Húnabyggð ríða á vaðið í Blönduóskirkju þriðjudaginn 5. desember klukkan 17 og daginn eftir, eða miðvikudaginn 6. desember klukkan 17, er komið að hljóðfæranemendum í Húnabyggð. Fimmtudaginn 7. desember klukkan 17 koma svo söng- og hljóðfæranemendur skólans á Skagaströnd og í Skagabyggð fram í Hólaneskirkju. Allir eru hjartanlega velkomnir á tónleikana.
14:06 01. des. 2023   Börn í 1. bekk fengu endurskinsvesti
Kiwanisklúbburinn Drangey hefur undanfarna daga dreift endurskinsvestum til barna í 1. bekk grunnskóla á Norðurlandi vestra og hefur hann notið aðstoðar lögreglunnar á svæðinu líkt og undanfarin ár. Allir grunnskólar voru heimsóttir og rúmlega 100 vesti afhent. Lögreglan á Norðurlandi vestra fagnar þessu framtaki og brýnir fyrir vegfarendum mikilvægi þess að nota endurskin í umferðinni.
10:45 01. des. 2023   105 ára fullveldi fagnað
Í dag, 1. desember 2023, eru 105 ár liðin frá því að Íslendingar náðu samningum við Dani um fullveldi Íslands með konungssambandi við Danmörku. Ísland varð lýst frjálst og fullvalda ríki og þennan dag 1918 var íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta skipti sem fullgildur þjóðfáni. Þar með var einum mikilvægasta þætti í sjálfstæðisbaráttu Íslands náð. Í þessu fólst líka samningsbundinn réttur Íslendinga til að segja upp sambandinu við Dani að aldarfjórðungi liðnum sem þeir gerður rúmlega aldarfjórðungi síðar, eða árið 1944, með stofnun lýðveldis.
09:38 30. nóv. 2023   Nýtt Hvammshlíðardagatal komið út
Hvammshlíðardagatal Karólínu Elísabetardóttur bónda er komið út í sjötta sinn. Dagatalið er í stóru broti og fullt af skemmtilegum nýjum og gömlum myndum og ýmsum fróðleik. Hver síða er ríkulega myndskreytt, ýmist með myndum frá sveitalífinu í Hvammshlíð eða eldri myndum sem Karólína hefur fengið sendar úr myndasöfnum héðan og þaðan.
17:19 29. nóv. 2023   Sagnaskemmtun um gömlu íslensku jólafólin á Heimilisiðnaðarsafninu
Það verður boðið upp á fyrirlestur og sögustund á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi á föstudaginn 1. desember klukkan 15. Þá mæta Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson, þjóðfræðingar á Ströndum, og rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu.
17:14 29. nóv. 2023   Opið fyrir umsóknir á Fjárfestahátíð Norðanáttar
Í þriðja sinn stendur Norðanátt, með stuðningi frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu, fyrir Fjárfestahátíð á Siglufirði. Hátíðin fer fram 20. mars á næsta ári og leitar Norðanátt nú eftir nýsköpunarverkefnum í leit að fjármögnun úr öllum landshlutum.
22:15 28. nóv. 2023   Áttu efni í Húnavökuritið?
Nú er hafin vinna við öflun og undirbúning efnis í næsta Húnavökurit sem á að koma út í maí. Efni í ritið þarf að berast til ritnefndar sem fyrst og eigi síðar en 1. febrúar. Stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að hafa ritið í huga nú um áramót þegar árið 2023 er gert upp.
22:10 28. nóv. 2023   Þekktu rauðu ljósin
Alþjóðlegt átak sem leitt er af Sameinuðu þjóðunum og ber yfirskriftina. Þekktu rauðu ljósin hófst þann 25. nóvember sl. og stendur til 10. desember. Hin ýmsu samtök um heim allan standa að átakinu sem er til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi. Litur átaksins er roðagylltur og á hann að tákna bjartari framtíð.
16:12 28. nóv. 2023   Hugum að auðlindinni okkar - stillum kerfin og drögum úr sóun
Frá RARIK
RARIK býður viðskiptavinum hitaveitunnar á Blönduósi og Skagaströnd að fá til sín fagmann til að yfirfara hitakerfi í híbýlum sínum, sér að kostnaðarlausu. Með þessu vill RARIK hvetja viðskiptavini hitaveitunnar til að huga að þessari auðlind samfélagsins og taka þátt í að lágmarka sóun á heita vatninu. Með því að yfirfara og stilla hitakerfið er komið í veg fyrir að vatnið fari óþarflega heitt frá hitakerfinu í fráveitu. Það lækkar hitaveitureikninginn, dregur úr sóun og varðveitir vatnsbúskap auðlindarinnar betur.
14:44 28. nóv. 2023   Aðventugleði Húnabyggðar á sunnudaginn
Húnabyggð stendur fyrir aðventugleði við Félagsheimilið á Blönduósi sunnudaginn 3. desember klukkan 17. Ljósin verða tendruð á jólatrénu, sveitarstjóri les jólaminningu, Edda Hlíf fer með hugvekju og jólasveinarnir kíkja í heimsókn. Þá ætlar Sigrún Erla, þátttakandi í Jólastjörnunni að koma fram og söngnemendur Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu og krakkarnir á Stóra Fjallabæ ætla að syngja jólalög. Boðið verður upp á kaffi, kakó og piparkökur.
14:27 28. nóv. 2023   Könnun á staðarandanum í Húnabyggð
Dr. Bjarki Þór Grönfeldt, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Bifröst, er að fara af stað með rannsóknina „Staðarandi í Húnabyggð“ sem er liður í rannsóknarverkefninu „Byggðabragur“ á vegum Rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum, sem stafrækt er við Háskólann á Bifröst. Verkefnið er ætlað að kanna hvernig sé hægt að auka jákvæðan byggðabrag með aðferðafræði sálfræðinnar.
09:43 28. nóv. 2023   Bók um Fornahvamm í Norðurárdal
Út er komin bókin Fornihvammur. Í henni er skrifuð saga Fornahvamms í Norðurárdal en efnið er tekið saman af Maríu Björgu Gunnarsdóttur, sem þekkir af eigin raun sögu þessa merka áfangastaðar á ferðlögum landans um fjallveginn á milli norðurs og suðurs. Bókina skreyta margar myndir og er m.a. sagt frá dýralífinu á heiðinni en María Björg er mikil áhugakona um sportveiðar og ljósmyndun.
   
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið