Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:08 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:08 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:08 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:08 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:08 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:08 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Opnaður hefur verið upplýsingavefur um sameiningarmál sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Á honum má finna fréttir og tilkynningar, fundargerðir, minnisblöð og aðrar upplýsingar sem tengjast mögulegri sameiningu sveitarfélaganna fjögurra sem eru; Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd. Vefslóðin er: sameining.huni.is.
Upplýsingavefurinn er samstarfsverkefni Húnahornsins, sameiningarnefndar A-Hún. og Ráðrík ráðgjafa. Hann er í umsjón og á ábyrgð Húnahornsins – fréttavefs Húnvetninga í 17 ár. Upplýsingar sem á vefinn koma eru frá sameiningarnefndinni og Ráðrík ráðgjöfum. Aðra almenna textavinnslu sér Húnahornið um. Ljósmyndirnar í haus vefsins voru teknar af Höskuldi B. Erlingssyni. Vefurinn er einnig hannaður fyrir snjalltæki og er því mjög aðgengilegur í t.d. sjallsímum.
Opnir fundir á sex stöðum eftir páska
Svanfríður Jónasdóttir hjá Ráðrík ráðgjöf segir upplýsingavefinn mjög mikilvægan til þess að allir geti fylgst með og kynnt sér þá vinnu sem er í gangi í tengslum við framtíðarskipan sveitarstjórnarmála í A-Hún. Hún segir mikilvægt að sem flestir hafi tök á að kynna sér sameiningarmálefnin, geti rætt málin og komið sínum sjónarmiðum á framfæri.
Í undirbúningi er að halda opna fundi á sex stöðum í sýslunni strax eftir páska. „Þeir verða opnir öllum íbúum, þ.e.a.s. þú þarft ekki að mæta á fundinn sem er næstur þínu heimili, heldur getur sótt hvaða fund sem er til að taka þátt í umræðu um framtíðarskipan sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu,“ segir Svanfríður.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |