Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Hátíðarhöld verða við Félagsheimilið á Hvammstanga á sunnudaginn í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní. Yfirbragð hátíðarhaldanna mun minna á gamla tíma. Boðið verður upp á andlitsmálun, götumat, handíðir, skemmtiatriði og leiki fyrir alla fjölskylduna. Hátíðargestir eru beðnir um að komið með lautarferðarteppi og njóta sumarsólarinnar, nú eða rigningarinnar. Dagskráin hefst klukkan 11:30 en ávarp fjallkonunnar verður klukkan 16:30.
Dagskrá 17. júní hátíðarhalda á Hvammstanga:
11:30 – 13:00 – Búið til hátíðarborða, fána og skrúðgöngubrúður með Handbendi Brúðuleikhúsi, Möggu Sól og handverksfólki.
13:00 – 16:00 – Listasmiðja með Danielle Rante (í samstarfi við NES listamiðstöð á Skagaströnd). Frekari upplýsingar um vinnusmiðjuna hér að neðan.
14:30 – 18:00 – Ýmislegt við að vera sunnan við Félagsheimilið. Pylsur, handíðir, leikir og fleira.
15:00 – Zúmba fyrir alla fjölskylduna með Guðrúnu Helgu
16:00 – Komum saman við Félagsheimilið þaðan sem skrúðgangan leggur af stað. Gaman ef þið væruð í þjóðbúning, ef þið eruð svo heppin að eiga svoleiðis (eða fótboltabúningnum) og ekki gleyma að koma með skrúðgöngubrúðuna, fána og borða. Hestamannafélagið Þytur leiðir skrúðgönguna.
16:30 – Ávarp fjallkonunnar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |