Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 4. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:50 0 0°C
Laxárdalsh. 15:50 0 0°C
Vatnsskarð 15:50 0 0°C
Þverárfjall 15:50 0 0°C
Kjalarnes 15:50 0 0°C
Hafnarfjall 15:50 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Spákonufell. Mynd: skagastrond.is
Spákonufell. Mynd: skagastrond.is
Fréttir | 05. ágúst 2022 - kl. 08:25
Jarðvinnsla fyrir skógrækt hafin í hlíðum Spákonufells

Jarðvinnsla fyrir skógrækt í hlíðum Spákonufells er hafin en hún felur í sér að fjarlægja gróðurtorfur til að minnka samkeppni nýgróðursettra skógarplantna um næringu vatns og birtu. Notast er við svokallaða TTS-herfingu en hún er algengasta gerð af jarðvinnslu fyrir skógrækt, að því er fram kemur á vef Skagastrandar. Gróðursetja á um 90 þúsund trjáplöntur í haust.

Þar kemur fram að TTS herfi er lyftutengt glussatæki sem hengt er aftan í dráttarvél og hefur að geyma tvö stór hjól með tönnum sem rífa upp gróðurtorfuna og ýta til hliðar. Við það myndast rás sem skapar skjól og betri vaxtarmöguleika fyrir plöntuna. Rásirnar hverfa á tveimur til fimm árum allt eftir því hvernig land er jarðunnið.

Jarðvinnsla hefur margskonar ávinning fyrir nýgróðursettar skógarplöntur s.s aukinn jarðvegshita, skjólgjafi, aukið framboð næringarefna og minni samkeppni frá öðrum plöntum. Jarðvinnsla bætir árangur gróðursetninga bæði lifun og vöxt ásamt því að auðvelda gróðursetningu og auðvelda val á gróðursetningarstöðum.

Áætlað er að jarðvinna í hlíðum Spákonufells í þessum mánuði, bæði fyrir haustgróðursetningu 2022 og vorgróðursetningu 2023, samtals um 60 hektara. Skógræktin í hlíðum Spákonufells er partur af skógræktarverkefni Skógræktarinnar og One Tree Planted en gróður setja á 180 þúsund trjáplöntur. Líklegt er að helmingurinn verði gróðursettur í haust. Verkefninu á að ljúka haustið 2024 og í kjölfarið vex upp skógur sem meðal annars nýtist íbúum Skagastrandar, nágrönnum þeirra og gestum til útivistar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið