Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:32 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:32 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:32 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:32 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:32 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:32 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarstjórn Húnabyggðar er ekki tilbúin að undirrita samning um stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þar sem áætlaður kostnaður liggur á of breiðu bili. Í erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem tekið hafa að sér að samræma sjónarmið sveitarfélaga á svæðinu til samningsdraga vegna stækkunarinnar, kemur fram að áætlaður heildarkostnaður án stofnbúnaðar sé á bilinu 637-1.010 milljónir króna, samkvæmt frummati Framkvæmdasýslu ríkisins.
Fram kemur að óvissa á þessu stigi forathugunar sé metin á bilinu 50% til -30%, en heildarkostnaður mun ráðast af tilboðum eða samningum sem gerðir verða um framkvæmdina. Gert er ráð fyrir að Húnabyggð muni bera 6,97% af kostnaðinum eða á bilinu 44-70 milljónir króna.
Málið var rætt á sveitarstjórnarfundi í gær og undrast sveitarstjórn það breiða bil kostnaðar sem áætlað er að af framkvæmdinni hljótist. Sveitarfélagið geti ekki undirritað samning um stækkun verknámshússins fyrr en nákvæm kostnaðaráætlun liggi fyrir og er Framkvæmdasýslan hvött til að vinna nákvæmari áætlun hið fyrsta.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |