Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Mánudagur, 6. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Júní 2022
SMÞMFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:02 0 0°C
Laxárdalsh. 18:02 0 0°C
Vatnsskarð 18:02 0 0°C
Þverárfjall 18:02 0 0°C
Kjalarnes 18:02 0 0°C
Hafnarfjall 18:02 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Laxveiði í Blöndu
Laxveiði í Blöndu
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 15:10
Laxveiðiárnar Blanda og Svartá hafa verið auglýstar til leigu frá og með sumrinu 2025. Einkahlutafélagið Starir er með vatnasvæðið á leigu í dag en núgildandi leigusamningur rennur út í haust. Veiðifélag Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í laxveiðiánum frá og með sumrinu 2025 og til og með sumrinu 2029 með almennu útboði.
Glaðheimar
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:55
Tekinn hefur verið í notkun einstaklingsbúningsklefi í Íþróttamiðstöðinni Hvammstanga og er hann staðsettur við hlið gufuklefans. Aðstaðan hentar þeim fjölbreytta hópi sem vill og þarf að hafa fataskipti í einrúmi, að því er segir á vef Húnaþings vestra. Þar kemur fram að uppsetning búningsaðstöðunnar sé í samræmi við jafnréttisáætlun sveitarfélagsins en þar kemur fram að aðstaða í skólum og íþróttamiðstöð skuli henta þörfum ólíkra hópa.
Kálfshamarsvík
Kálfshamarsvík
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:48
Sveitarstjórn Skagabyggðar varð fyrir miklum vonbrigðum með nýlega úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Sveitarfélagið sendi inn tvær umsóknir, annars vegnar vegna hönnunar á Kálfshamarsvíkursvæðinu og hins vegar vegna verndun Kálfshamarsvíkur. Aðeins var úthlutað til hluta þess síðar nefnda og nam hún 3,6 milljónum en sótt var um rúmar 6,7 milljónir.
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:30
Höskuldur Birkir Erlingsson hefur frá árinu 2002 haldið utan um rjúpnatalningu við Blönduós. Ávallt hefur verið talið um mánaðamótin apríl/maí og karrar eingöngu taldir. Samkvæmt nýjustu talningu er rjúpum að fjölga en 91 rjúpa var talin að þessu sinni og er það 25% fjölgun frá fyrra ári. Frá árinu 2021 er fjölgunin 168%. Svæðið sem talið var á afmarkast af Svínvetningabraut og niður með Laxá á Ásum, að þjóðvegi 1 og svo niður að Blönduósi.
Mynd: Auðunn Blöndal
Mynd: Auðunn Blöndal
Pistlar | 06. maí 2024 - kl. 13:36
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Kornin atarna eiga að minna okkur á aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings kl. 15 á miðvikudaginn í Bóka- og héraðsskjalasafninu Blönduósi. En hér koma þó við sögu, Fjallaskáld og Þórunn sagnfræðingur og rithöfundur sem hefur nýlega skrifað bókina Bærinn brennur um bæjarbruna og morð á Illugastöðum 1828.
Tilkynningar | 06. maí 2024 - kl. 11:54
Frá Birni Þór og Söndru
Fimmtudaginn 9. maí milli klukkan 18:00 og 20:00 langar okkur á B&S Restaurant að bjóða ykkur upp á fiski hlaðborð og meðlæti (frítt en frjálsframlög eru þegin og renna þau til Blönduóskirkju vegna viðhalds og uppsetningu á salernum fyrir fatlaða). Ef þið hafið EKKI áhuga að þiggja þetta boð okkar vinsamlegast hafið samband í síma 898 4685 og afpantið.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:25
Kormákur Hvöt hóf leik í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla í dag. Mótherjinn var Selfoss og fór leikurinn fram á Jáverk-vellinum á Selfossi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og lítið um færi. Staðan í hálfleik 0-0. Selfoss náði að skora eina mark leiksins í seinni hálfleik og var það eiginlega gegn gangi leiksins. Kormákur Hvöt fékk nokkur góð færi og eitt dauðafæri en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur 1-0 fyrir Selfoss.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:22
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 6 íbúða raðhúss við Flúðabakka á Blönduósi. Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar í haust. Um er að ræða fyrri áfanga að þessu verkefni en síðar er stefnt að því að byggja þriggja íbúða raðhús á sama reitnum.
Tilkynningar | 04. maí 2024 - kl. 17:05
Frá stjórn
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 13. maí klukkan 18:00 á Apotekarastofunni Blönduósi. Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir. Við minnum á minningarkort Krabbameinsfélags A.-Hún. sem fást í Lyfju Blönduósi, Lyfju Skagaströnd og á síðu félagsins á www.krabb.is.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 11:10
Opinn fundur um Prjónagleðina, sem fram fer helgina 7.-9. júní í sumar, verður haldinn í Ỏsbæ mánudaginn 6. maí klukkan 17. Í auglýsingu um fundinn segir að Húnabyggð taki að þessu sinni beinan þátt í skipulagningu hátíðarinnar og leggi metnað sinn í að viðburðurinn verði líflegur og áhugaverður fyrir gesti og heimafólk.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 10:58
Samstarfsnefnd um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna sveitarfélaganna. Nefndin kom saman á þremur bókuðum fundum, en nefndarmenn höfðu áður skipað verkefnahóp sem falið var að skoða möguleika á sameiningu sveitarfélaganna. Það er álit nefndarinnar að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa um sameininguna. Jafnframt leggur nefndin til að henni verði falið að undirbúa atkvæðagreiðslu og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.
Það er ávallt líf og fjör á Húnavöku
Það er ávallt líf og fjör á Húnavöku
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 10:48
Á vef Húnabyggðar er biðlað til íbúa, fyrirtækjaeigendur og forsvarsmenn félagasamtaka um að viðra hugmyndir um viðburði sem hægt væri að halda á þjóðhátíðardaginn 17. júní næstkomandi og á bæjarhátíðinni Húnavöku, sem haldin verður 18.-21. júlí. „Ef þið eruð með hugmyndir að viðburði eða viljið halda viðburð á Húnavöku eða 17.júní hátíðarhöldunum í sumar, hvetjum við ykkur til að hafa samband,“ segir á vef sveitarfélagsins.
Frá vortónleikunum á dögunum. Mynd: FB/Blönduóskirkja
Frá vortónleikunum á dögunum. Mynd: FB/Blönduóskirkja
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 10:38
Skuld Blönduóskirkju vegna orgelsins í kirkjunni er að fullu greidd. Með samstillti átaki síðustu fjögur ár hefur tekist að gera upp skuldina með fjárframlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum, að því er segir á facebooksíðu hennar. Lokahnykkurinn á söfnun fyrir orgelinu voru vortónleikar í kirkjunni 28. apríl síðastliðinn. Fram komu kór kirkjunnar ásamt Eyþóri organista. Tekið var á móti frjálsum framlögum sem runnu til orgelsjóðs kirkjunnar, en fyrir tónleikana var skuldin 400 þúsund krónur.
Tilkynningar | 03. maí 2024 - kl. 13:54
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir: Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Hægt verður að kjósa víðar en á sýsluskrifstofum innan um­dæmis­ins og verða kjörstaðir nánar auglýstir síðar á vefsíðunni www.kosning.is og í héraðsfréttablöðum.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið