Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:51 0 0°C
Laxárdalsh. 23:51 0 0°C
Vatnsskarð 23:51 0 0°C
Þverárfjall 23:51 0 0°C
Kjalarnes 23:51 0 0°C
Hafnarfjall 23:51 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 16-30 31-45 af 66 Næstu 46-60
KlukkanDagsetningFrétt
11:00 24. nóv. 2021   Eldvarnafræðsla mikilvæg
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna kynnir eldvarnir heimilisins fyrir grunnskólabörnum og fjölskyldum þeirra fyrir hver jól. Í síðust viku hófst þetta árlega eldvarnarátak í Grunnskólanum í Borgarnesi. Landssambandið beinir sjónum sínum til grunnskólabarna í 3. bekk og kynnir fyrir þeim grundvallaratriðin varðandi eldvarnir heimilisins. Jóhannes Kári Bragason, slökkviliðsstjóri í Húnaþingi vestra, ritar pistil á vef sveitarfélagsins um eldvarnarátakið.
10:40 24. nóv. 2021   Fjallað um uppbyggingu á Blönduósi
Í þættinum Að norðan sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni N4 í gærkvöldi var m.a. fjallað um mikla uppbyggingu sem á sér stað á Blönduósi um þessar mundir. Rætt er við Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóra á Blönduósi, og segir hann að frá árinu 2018 hafi mikil uppbygging átt sér stað. Nefnir hann að núna sé í gangi þrjú stór verkefni í iðnaðarhúsnæði; stækkun gagnaversins, bygging á Miðholtinu og nýtt húsnæði Prótis.
16:23 23. nóv. 2021   Heimsókn í Húnaþing á N4
Sjónvarpsstöðin N4 var í heimsókn í Húnavatnssýslum á dögunum og afraksturinn má sjá í kvöld í þættinum Að norðan. Þáttargerðarfólk heimsótti m.a. hjónin Elínu og Ara á Bergsstöðum í Miðfirði, fóru á spilakvöld hjá Lomberklúbbnum á Hvammstanga og ræddu við Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóra á Blönduósi, um þá miklu uppbyggingu sem þar á sér stað.
13:45 23. nóv. 2021   Norðanhríð í kortunum
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra. Hún gildir frá klukkan ellefu í kvöld og til morguns. Spáð er 15-23 m/s og snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Varasamt ferðaveður. Gul veðurviðvörun tekur einnig gildi í öðrum landshlutum í kvöld, s.s. á Vestfjörðum, Miðhálendinu, Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Suðausturlandi.
12:20 22. nóv. 2021   Vetrarþjónustu mjög ábótavant við ferðamannastaði
Stjórn Markaðsstofu Norðurlands telur það óásættanlegt að vetrarþjónustu að vegum á ferðamannastöðum á Norðurlandi sé jafn ábótavant og raun ber vitni. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á síðasta stjórnarfundi MN. Sérstaklega er bent á vetrarþjónustu á Vatnsnesvegi að Hvítserk og á Demantshringnum sem var formlega opnaður á síðasta ári.
10:13 22. nóv. 2021   Þungar áhyggjur af þróun kostnaðar
Byggðaráð Blönduósbæjar tekur undir bókun Húnaþings vestra er varðar málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra og lýsir yfir þungum áhyggjum af því hvernig kostnaður í málaflokknum hefur þróast. Húnavatnshreppur hefur gert það sama og að óbreyttu geta sveitarfélögin ekki haldið áfram í samstarfsverkefninu, sem Sveitarfélagið Skagafjörður leiðir. Benda sveitarfélögin jafnframt á að málaflokkurinn er á ábyrgð ríkisins.
07:23 21. nóv. 2021   Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn sunnudaginn 21. nóvember. Í ár er kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Táknrænar minningarstundir eru haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni. Dagskrá viðburða er á vefnum minningardagur.is. Minningarathöfn verður haldin við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð klukkan 14 í dag. Forseti Íslands og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verða viðstaddir og flytja ávörp.
08:44 20. nóv. 2021   Hrútaskrá 2021-2022 komin út
Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna er líklega eitt mest lesna rit ársins víða um land. Skráin er nú komin út á rafrænu formi en prentaða útgáfan er væntanleg í næstu viku. Að þessu sinni standa 48 úrvalshrútar til boða í komandi sæðingavertíð en útsending sæðis mun hefjast þann 1. desember nk. og standa til 21. desember nk.
08:38 20. nóv. 2021   Óskað eftir 198 milljónum úr Uppbyggingarsjóði
Alls bárust 115 umsóknir um styrkir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra en umsóknarfrestur rann út 12. nóvember síðastliðinn. Óskað var eftir samtals 198 milljónum króna í styrki úr sjóðnum en til úthlutunar eru rúmar 70 milljónir. Flestir umsóknir eða 57 voru um verkefnastyrki á sviði menningar. Stefnt er að því að svör berist umsækjendum fyrir jól.
17:00 18. nóv. 2021   Kjósa á um nafn á nýja gangnamannaskálann
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps vill að stjórn fjallskiladeildar Grímstungu- og Haukagilsheiða láti kjósa um nafn á nýja gangnamannaskálann á Grímstunguheiði á næsta almenna fundi deildarinnar. Kjósa á um nöfnin Brík, Gedduskáli, Heiðahöllin, Skjól og Vegamót. Stjórn fjallskiladeildarinnar efndi til nafnasamkeppni fyrr á þessu ári og þurfti að skila inn tillögu að nafni fyrir 16. ágúst. Alls bárust 26 tillögur að nafni.
16:32 18. nóv. 2021   Nýtt Hvammshlíðardagatal komið út
Karólína Elísabetardóttir í Hvammshlíð í Skagabyggð hefur gefið út dagatal fyrir 2022. Þetta er fjórða dagatalaútgáfa Karólínu og að þessu sinni leggur hún áherslu á gamlar myndir, sauðfjárliti og ull. Hún vakti athygli árið 2018 þegar hún hóf sölu á dagatölum til að fjármagna kaup á dráttarvél fyrir búskapinn. Dagatalið fæst m.a. í Líflandi á Blönduósi og í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki og kostar 3.900 krónur.
14:38 18. nóv. 2021   Geta ekki tekið þátt í verkefni um málefni fatlaðra að óbreyttu
Húnavatnshreppur er í sömu stöðu og Húnaþing vestra þegar kemur að áframhaldandi þátttöku í samstarfsverkefni um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra, þar sem Sveitarfélagið Skagafjörður er svokallað leiðandi sveitarfélag í verkefninu. Að óbreyttu geta sveitarfélögin tvö ekki haldið áfram í samstarfsverkefninu og benda bæði á að málaflokkurinn er á ábyrgð ríkisins.
10:38 18. nóv. 2021   Gæfa að eiga góðan tónlistarskóla
Á þriðjudaginn og miðvikudaginn var blásið til veislu á starfsstöðvum Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga, á Blönduósi og Skagaströnd, í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Gestir gæddu sér á afmæliskökum og hlýddu á flutning nemenda skólans á hinum ýmsu tónverkum. Sveitarfélagið Skagaströnd færði skólanum blómvönd í tilefni dagsins og 100 þúsund króna gjöf til búnaðarkaupa.
16:37 17. nóv. 2021   Minnisblað um breytingar á lögum um póstþjónustu
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur tekið saman minnisblað um aðdraganda, áhrif og vinnulag við breytingu á lögum um póstþjónustu sem leiddi til breytinga á gjaldskrá Íslandspósta. Meðal breytinga er mismunandi gjald milli fjögurra svæða í stað eins gjalds um land allt og varð það til þess að pakkasendingar eru nú umtalsvert dýrari á landsbyggðinni. Hækkunin kemur mjög illa við íbúa og fyrirtæki í hinum dreifðari byggðum.
11:48 16. nóv. 2021   Hallarekstur á verkefni um málefni fatlaðs fólks verulegt áhyggjuefni
Fréttin hefur verið uppfærð
Húnaþing vestra ræður ekki við þáttöku í verkefni um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra undir óbreyttum formerkjum. Kostnaður sveitarfélagsins vegna málaflokksins hefur hækkað um 509% frá árinu 2016. Hækkun milli áranna 2021 og 2021 nemur 181%. Þetta kemur fram í bókun sveitarstjórnarfundar Húnaþings vestra í síðustu viku. Þar segir að hinn gríðarlegi hallarekstur vegna málaflokksins sé verulegt áhyggjuefni.
Fyrri 16-30 1 2 3 4 5 Næstu 46-60
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið