14:09 |
06. jan. 2022 |
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosningar um sameiningu Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar er hafin hjá sýslumönnum um land allt og hjá sendiráðum erlendis, að því er fram kemur á vefnum Húnvetningur.is. Íbúar sveitarfélaganna sem eiga kosningarétt í kosningunum og eiga þess ekki kost að mæta á kjörstað, geta því greitt atkvæði sitt hjá sýslumönnum og í sendiráðum á opnunartíma fram að kjördegi þann 19. febrúar næstkomandi. |
13:58 |
06. jan. 2022 |
COVID-19 bólusetningar og sýnatökur á HSN Blönduósi
Samkvæmt tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands fara bólusetningar 5-11 ára barna gegn COVID-19 fram á HSN Blönduósi í næstu viku, dagana 10.-14. janúar. Boð og nánari upplýsingar verða send út mánudaginn 10. janúar. Næsti bólusetningardagur gegn COVID-19 fyrir almenning verður í vikunni 17.-21. janúar og verður það nánar auglýst síðar á heimasíðu HSN Blönduósi. |
13:49 |
05. jan. 2022 |
Söfnun jólatrjáa í Húnaþingi vestra
Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Húnaþings vestra verða á ferðinni föstudaginn 7. janúar og mánudaginn 10. janúar til að hirða upp jólatré sem lokið hafa hlutverki sínu þessi jólin hjá íbúum á Hvammstanga og Laugarbakka. Koma þarf jólatrjánum fyrir, úti við lóðamörk. |
13:45 |
05. jan. 2022 |
SSNV tekur þátt í tveim brúarverkefnum NPA
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er þátttakandi í tveimur brúarverkefnum af sjö sem hlotið hafa styrki úr atvinnu- og byggðþróunarsjóði Norðurslóðaáætlunar. Annað verkefnið varðar sjálfbæra hjólaferðamennsku í norðlægum- og dreifðum byggðum þar sem aðrir þátttakendur koma frá Finnlandi, Skotlandi, Færeyjum og Norður-Írlandi. Hitt verkefnið snýst um grænt viðskiptamódel þar sem unnið er með litlum- og meðalstórum fyrirtækjum í að nýta myrkur sem auðlind í vetrarferðamennsku. |
11:36 |
05. jan. 2022 |
Mikil fjölgun smita á Norðurlandi vestra
Kórónuveirusmitum fjölgar hratt á Norðurlandi vestra, líkt og í öðrum landshlutum. Samkvæmt tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra í gær voru 37 í einangrun í landshlutanum og 70 í sóttkví. Í Húnavatnssýslum voru 9 í einangrun og 25 í sóttkví og í Skagafirði voru 28 í einangrun, flestir á Sauðárkróki og 45 í sóttkví. |
14:03 |
04. jan. 2022 |
Framtíðar 50% starf í eldhúsi í Leikskólanum Barnabæ
Leikskólinn Barnabær Blönduósi óskar eftir starfsmanni í eldhús frá 12:00-16:00, um framtíðar starf er að ræða. Vinnutíminn er frá 12:00-16:00. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2022. |
10:16 |
04. jan. 2022 |
Val á manni ársins 2021 í Austur-Húnavatnssýslu
Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu
Líkt og undanfarin 16 ár býður Húnahornið lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna. |
09:27 |
04. jan. 2022 |
Árni Björn er maður ársins á Norðurlandi vestra að mati lesenda Feykis
Árni Björn Björnsson á Sauðárkróki er maður ársins 2021 á Norðurlandi vestra að mati lesenda Feykis og vefsins feykir.is. Árni Björn er eigandi veitingastaðarins Hard Wok Cafe á Aðalgötunni á Sauðárkróki, ásamt Ragnheiði Ástu Jóhannsdóttur konu sinni. Líkt og undanfarin ár stóð Feykir fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra. Blaðinu bárust sjö tilnefningar og gafst lesendum kostur á að velja milli þeirra. |
09:15 |
04. jan. 2022 |
Aco Pandurevic ráðinn þjálfari Kormáks/Hvatar
Meistaraflokksráð Kormáks/Hvatar hefur ráðið Aco Pandurevic sem aðalþjálfara fyrir sumarið 2022. Í tilkynningu frá meistaraflokksráðinu segir að Aco búi yfir leikmannareynslu úr heimalandi sínu Serbíu auk þess að hafa spilað í Slóvakíu, Færeyjum og síðastliðin 10 ár með Ægi frá Þorlákshöfn. |
12:11 |
03. jan. 2022 |
Bjartsýni ríkjandi í Húnaþingi vestra
Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gær var sagt frá mikilli uppbyggingu sem á sér stað á Hvammstanga en þar eru á annan tug íbúða í byggingu auk annarra framkvæmda. Rætt er við Friðrik Má Sigurðsson, formann byggðarráðs Húnaþings vestra, og segir hann að á Hvammstanga séu öflugir innviðir og fjölbreytt og öflugt menningar- og félagsstarf. Hvammstangi sé því mjög ákjósanlegur staður fyrir fólk og fjölskyldur. |
19:42 |
02. jan. 2022 |
Frá Félags- og tómstundastarfinu á Blönduósi
Félags- og tómstundarstarfið á Blönduósi óskar öllum iðkendum gleðilegs nýs árs. Kæru iðkendur takið eftir. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður félags- og tómstundastarfið lokað til 13. janúar eða þangað til annað kemur í ljós. Ef einhver óskar eftir nánari upplýsingum vinsamlegast hringið í síma 455 4785 Sísa. |
22:38 |
01. jan. 2022 |
Acai spilar áfram með Kormáki/Hvöt
Acai Nauset Elvira Rodriguez, einn allra mikilvægasti leikmaður Kormáks/Hvatar á síðustu leiktíð, hefur gert samkomulag um að spila áfram með liðinu næsta sumar. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref í áttina að því að tryggja að mikilvægustu pústlin taki sér stöðu og geri sig klár í þeirri spennandi baráttu sem er framundan í 3. deild, segir í tilkynningu frá meistaraflokki Kormálks/Hvatar. |
00:01 |
01. jan. 2022 |
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla
Nýárskveðja frá Húnahorninu
Húnahornið óskar Húnvetningum og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári 2022 og þakkar fyrir góð samskipti og samfylgdina á árinu 2021. Megi nýja árið reynast öllum Húnvetningum gæfuríkt og gott. Árið 2021 var viðburðaríkt ár í Húnavatnssýslum. Á þessu 20 ára afmælisári Húnahornsins voru fluttar tæplega þúsund fréttir af mönnum og málefnum sem tengjast Húnavatnssýslum eða Norðurlandi vestra á einhvern hátt. |
15:40 |
31. des. 2021 |
Áramótakveðja frá stjórn Hollvinasamtaka HSB
Stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi sendir félagsmönnum sínum og velunnurum hugheilar nýárskveðjur með þakklæti fyrir ómetanlegan stuðning á árinu. Án ykkar gætum við lítið gert fyrir skjólstæðinga og starfsfólk HSB.
|
10:22 |
31. des. 2021 |
Gul veðurviðvörun á nýársdag
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Norðurland vestra á morgun, nýársdag. Gular viðvaranir verða í öllum landshlutum á morgun en á Suðurlandi verður viðvörunin appelsínugul. Víða er spáð norðaustan stormi eða roki með snjókomu eða éljum. Á Norðurlandi vestra er spáð norðaustan 18-23 m/s og snörpum vindhviðum við fjöll. Búast má við éljum og skafrenningi með lélegu skyggni og mjög slæmu ferðaveðri. |