13:45 |
03. apr. 2024 |
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu 2024
Frá stjórnum deilda Stéttarfélagsins Samstöðu
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu verða haldnir 8. og 9. apríl í sal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Almenn aðalfundarstörf fara fram hjá öllum deildum sem eru iðnaðarmannadeild, almenn deild, verslunarmannadeild og deild ríkis og sveitarfélaga. Aðalfundirnir verða haldnir sem hér segir: |
09:14 |
03. apr. 2024 |
Aco ráðinn aðstoðarþjálfari
Aco Pandurevic hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Kormáks Hvatar fyrir komandi keppnistímabil. Aco, sem áður hefur þjálfað Kormák Hvöt, leggur nú lokahönd á UEFA A þjálfaragráðu sína og kemur fullur af eldmóði og þekkingu inn í tímabilið í 2. deild, að því er segir á aðdáendasíðu Kormáks á Facebook. Ingvi Rafn Ingvarsson er aðalþjálfari Kormáks Hvatar. |
15:34 |
02. apr. 2024 |
Aðalsafnaðarfundur Blönduóskirkju þann 11. apríl
Tilkynning frá stjórn
Aðalsafnaðarfundur í Blönduóskirkju verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl n.k. og hefst kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf. |
13:16 |
02. apr. 2024 |
Fjárfestahátíð Norðanáttar haldin í þriðja sinn
Fjárfestahátíð Norðanáttar var haldin á Siglufirði nýverið en þangað mættu helstu fjárfestar landsins til fundar við frumkvöðla sem vinna að verkefnum tengdum auðlinda-, orku- og umhverfismálum. Hátíðin er vettvangur fyrir frumkvöðla og fyrirtæki sem leita eftir fjármagni og eru tilbúnir að fá fjárfesta að borðinu. Þá er markmið hátíðarinnar einnig að draga fram tækifæri til uppbyggingar á atvinnuvegum og efla nýsköpun í kringum auðlindir landsbyggðanna, en þarna gefst gott tækifæri til þess að mynda tengingar og eiga fyrsta skrefið í átt að framtíðarsamvinnu. |
18:57 |
31. mars 2024 |
Gaukshreiðrið í Freyvangsleikhúsinu Eyjafirði
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Örfá sæti laus. Nýjar pantanir þurfa að berast fyrir næstkomandi mánudagskvöld. Góð þátttaka er í leikhúsferðina föstudaginn 5. apríl. Farið verður kl 15.00 frá Félagsheimilinu á Blönduósi. Þátttökugjald aðeins kr 11.000. Innifalið sæti í góðri rútu og aðgöngumiði að sýningunni. Borgist í rútunni.
Nýir þátttakendur tilkynnið á netfangið mao@centrum.is s. 898 5695 eða geitaskard@emax.is s. 897 4341. |
17:54 |
31. mars 2024 |
Páskahretið til vandræða
Líkt og spáð var hefur í dag verið vonskuveður á Norðurlandi og hafa björgunarsveitir úr Húnavatnssýslum og Skagafirði staðið í ströngu við að aðstoða ferðalanga yfir og niður af Vatnskarði og út Langadal. Mikil hálka er efst í Bólstaðarhlíðarbrekkunni og hafa bílar fokið þar til. Þá hafa bílstjórar í einhverjum tilfellum ekki treyst sér að keyra áfram þar sem skafrenningur og ofankoma blindar sýn. Björgunarfólk hefur því þurft að keyra suma bíla niður af Vatnskarði. |
14:40 |
30. mars 2024 |
Vonskuveður á páskadag
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Norðurland vestra á morgun páskadag. Spáð er norðaustan 13-20 m/s og snjókomu austantil. Búast má við talsverðri snjókomu með skafrenningi, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Gular veðurviðvaranir hafa einnig verið gefnar fyrir Strandir, Norðurland eystra, Austurlanda að Glettingi, Austfirði og Suðausturland. Ráðlegt er að kanna aðstæður á vegum hjá Vegagerðinni áður en lagt er af stað í ferðalag milli staða. |
14:31 |
30. mars 2024 |
Kanna áhuga íbúa á sameiginlegu átaki í hnitsetningu lögbýla
Sveitarstjórn Skagabyggðar vill kanna áhuga íbúa á að sameinast um átak í merkjalýsingu, eða hnitsetningu lögbýla sinna, með aðkomu sveitarfélagsins að verkinu. Telur hún að með því að íbúar sameinist um verkefnið sé hægt að gera merkjalýsingar mun hagkvæmar fyrir íbúa. Tilkynning um þetta er að finna á vef Skagabyggðar. |
09:02 |
28. mars 2024 |
Helgihald um páskana
Páskarnir eru ein mesta hátíð kristinna manna. Þá er krossfestingar Krists og upprisu hans minnst. Þessi merki boðskapur hefur táknræna merkingu ekki síður en sögulega. Margir nota hátíðina til samvista með sínum nánustu, vinum og/eða ættingjum, sumir leggjast í ferðalög en aðrir njóta einfaldlega þess að vera til. Svo eru þeir sem sinna helgihaldi um páska og rækta trú sína og innri mann. |
18:35 |
27. mars 2024 |
Val á slagorði fyrir Húnaþing vestra
Íbúar í Húnaþingi vestra geta valið milli fimm tillagna að slagorði fyrir sveitarfélagið, sem lýstir kjarna samfélagsins og hægt er að nota í kynningarskyni. Síðastliðið haust framkvæmdi Háskólinn á Bifröst íbúakönnun og var fólk m.a. beðið um að koma með hugmyndir að slagorði fyrir Húnaþing vestra. Nokkrar tillögur bárust og hafa nú fimm verið valdar til að kjósa um. Einnig er hægt að koma með nýja hugmynd. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra. |
14:48 |
26. mars 2024 |
Tilraunir með að nýta grásleppu betur
Hjá Biopol á Skagaströnd hafa verið gerðar tilraunir til að nýta kjöthluta grásleppunnar til framleiðslu á matvöru og verða afurðirnar kynntar á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í næsta mánuði, að því er fram kemur á vef Fiskifrétta. Haft er eftir Halldóri G. Ỏlafssyni, framkvæmdastjóra Biopol, að gerðar hafi verið tilraunir með kald- og heitreykingu grásleppuflaka og þurrkun á grásleppuhveljum með það fyrir augum að bjóða hana sem valkost í gæludýrafóður. |
14:11 |
26. mars 2024 |
Byggðarráð harmar ákvörðun Íslandspósts
Byggðarráð Húnaþings vestra harmar einhliða ákvörðun Íslandspósts um að loka Pósthúsinu á Hvammstanga, sem hafi í för með sér niðurlagningu á 2,5 stöðugildi. Ákvörðunin rýri samkeppnishæfni fyrirtækja sem selji vörur í vefverslun á svæðinu þar sem aðgengi að þjónustu geti haft áhrif á afgreiðsluhraða. Þetta kemur fram í bókun byggðarráðs frá fundi þess í gær. |
09:28 |
26. mars 2024 |
Harður árekstur við Enniskot í gær
Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu saman í hörðum árekstri á hringveginum við bæinn Enniskot í Húnaþingi vestra síðdegis í gær en lögreglan fékk tilkynningu um slysuð rétt fyrir klukkan 17. Í tilkynningu frá henni segir að tvennt hafi verið í hvorri bifreið og að tveir hafi verið fluttir slasaðir með sjúkraflugi frá Blönduósflugvelli til Reykjavíkur, og tveir með sjúkrabifreið. Ekki sé hægt að segja til um meiðsl fólksins að svo stöddu. |