Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:52 0 0°C
Laxárdalsh. 20:52 0 0°C
Vatnsskarð 20:52 0 0°C
Þverárfjall 20:52 0 0°C
Kjalarnes 20:52 0 0°C
Hafnarfjall 20:52 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 46-60 61-75 af 80 Næstu 76-80
KlukkanDagsetningFrétt
08:25 14. júl. 2020   Sýning á verkum Hjálmars frá Smyrlabergi
Nafli jarðar er heiti sýningar á verkum Hjálmars Stefánssonar frá Smyrlabergi sem opnar í fjóshlöðunni á Kleifum við Blönduós, föstudaginn 17. júlí klukkan 17. Sýningin verður opin alla daga milli klukkan 10 og 22 en henni lýkur sunnudaginn 26. júlí. Hjálmar var húnvetnskur bóndi og daglaunamaður, fæddur árið 1913 en lést 1989. Hann byrjaði að mála myndir á efri árum og skipaði sér í flokk naívista.
08:04 14. júl. 2020   Orgeltónleikar í Blönduóskirkju
Laugardaginn 18. júlí, um Húnavökuhelgina, heldur Lára Bryndís Eggertsdóttir orgeltónleikar í Blönduóskirkju klukkan 17-18. Á þeim má bæði heyra þjóðlagatengda tónlist, meðal annars hið magnaða tónaljóð Moldá (Vltava) eftir tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana í umritun fyrir orgel, sem og alíslenska orgeltónlist eftir Vatnsdælinginn Báru Grímsdóttur. Lára Bryndís mun einnig kynna tónlistina og segja frá tilurð íslensku orgelverkanna.
07:59 14. júl. 2020   Aukaúthlutun úr safnasjóði
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögu safnaráðs um að flýta aukaúthlutun úr safnasjóði og úthluta 37 styrkjum til safna, að fjárhæð alls 40.124.000 krónur. Þar á meðal eru styrkir til Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi og Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna. Opnað var fyrir umsóknir í maí síðastliðinn og bárust 30 umsóknir frá viðurkenndum söfnum. Að þessu sinni var úthlutunin eyrnamerkt til eflingar á faglegu starfi safnanna og var úthlutun sjóðsins flýtt vegna áhrifa COVID-19 á starfsemi safnanna.
07:55 14. júl. 2020   Vöruflutningabíll ónýtur eftir veltu í Víðidal
Vöruflutningabíll með tengivagn fór út af þjóðvegi 1 skammt frá brúnni yfir Víðidalsá á tíunda tímanum í gærkvöldi. Bíllinn valt en tengivagninn hélst á hjólunum, að því er fram kemur á vef Ríkisútvarpsins. Á annan tug félaga úr Björgunarsveitinni Húnum á Hvammstanga vann hörðum höndum fram eftir nóttu að bjarga því sem bjargað varð af farminum og fjarlægja það sem ónýtt var.
17:52 13. júl. 2020   Sigur í fyrsta heimaleiknum
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tók á móti Álafossi úr Mosfellsbæ í fimmtu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla 4. deild B riðli á Blönduósvelli í gær. Markalaust var í hálfleik en á 62. mínútu dró til tíðinda þegar Hlynur Rafn Rafnsson fékk fínt færi og skoraði. Það liðu svo ekki nema sjö mínútur þangað til Hilmar Þór Kárason tvöfaldaði forystu Kormáks/Hvatar og þannig endaði leikurinn, 2-0 í fyrsta heimaleik sumarsins.
10:01 13. júl. 2020   Heitavatnslaust í Húnaþingi vestra í dag
Heitt vatn verður tekið af Hvammstanga, Laugarbakka, Miðfirði og Víðidal í dag um klukkan 15 og mun vera lokað í nokkrar klukkustundir. Það getur tekið fram eftir kvöldi að koma vatni á alls staðar. Verið er skipta um dælu í borholu og gera breytingar í dælustöð á Laugarbakka, að því er segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.
09:33 13. júl. 2020   Lagning ljósleiðara milli Hveravalla og Blöndudals
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti 12. júní síðastliðinn samning við Neyðarlínuna um lagningu ljósleiðara milli Hveravalla og Blöndudals. Að því verkefni loknu kemst á önnur ljósleiðaratenging milli Suðurlands og Norðurlands um hálendið, sem bætir bæði öryggi og afkastagetu fjarskipta á leið strengsins sem og grunnkerfis fjarskipta hér á landi.
14:43 12. júl. 2020   Hnúfubakar að veiðum við Blönduós
Hnúfubakar hafa síðustu daga verið að veiðum í Húnafirði og hafa þeir sést vel frá Blönduósi. Auðunn Blöndal náði ágætum myndum af hvölunum frá Brekkubyggðinni og birtir á Facebook síðu sinni. Þá setti Höskuldur B. Erlingsson flygildi sitt á loft í gær og flaug því til hvalanna og náði mögnuðum myndum sem hann hefur gert myndband úr og birt á Facebook og Youtube.
08:24 11. júl. 2020   Húnavökumót Terra í golfi
Húnavökumótið í golfi verður haldið á Vatnahverfisvelli við Blönduós laugardaginn 18. júlí. Keppt verður í punktakeppni með forgjöf, einn almennur flokkur. Hámarksleikforgjöf karla og kvenna er 36. Ræst verður út samtímis á öllum teigum klukkan 9. Nándarverðlaun á par þrjú brautum.
08:05 11. júl. 2020   Umfjöllun um framkvæmdir við kirkjugarðinn
Framkvæmdirnar við kirkjugarðinn á Blönduósi hafa hlotið verðskuldaða athygli. Í Bautasteini, blaði Kirkjugarðasambands Íslands, sem nýlega kom út er fjallað um viðhaldið og endurbæturnar sem fram fóru í fyrra. Umfjöllunin byggir á viðtali sem héraðsfréttablaðið Feykir tók við Valdimar Guðmannsson, formann stjórnar kirkjugarðsins.
14:30 10. júl. 2020   Óskað eftir tilnefningum til umhverfis- viðurkenninga 2020 í Húnaþingi vestra
Nefnd um veitingu umhverfisviðurkenninga í Húnaþingi vestra óskar eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í sveitarfélaginu vegna ársins 2020. Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin, sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra, vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilega sveitarbæi og atvinnulóðir.
14:20 10. júl. 2020   Orkuskipti á Kili
Nýverið var haldið upp á verklok þess að 67 kílómetra rafstrengur og ljósleiðari hefur verið lagður um Kjöl sem er einn af fjórum stofnvegum hálendis Íslands. Strengurinn leysir af hólmi díselvélar sem ferðaþjónustuaðilar hafa reitt sig á hingað til. „Þetta gerbreytir rekstrargrundvelli ferðaþjónustu á Kili og eykur fjarskiptaöryggi til mikilla muna á þessari fjölförnu hálendisleið sem í gegnum aldirnar hefur verið annáluð fyrir draugagang,“ segir á vef Stjórnarráðsins þar sem fjallað er um málið.
14:14 10. júl. 2020   Framleiðendur á ferðinni og bjóða vörur sínar
Tólf smáframleiðendur á Norðurlandi vestra og Vörusmiðja BioPol hafa tekið höndum saman um skemmtilegt verkefni en þeir hyggjast verða á ferðinni um svæðið í sumar á smábíl sínum og bjóða vörur sínar til sölu. Þar má meðal annars finna grænmeti, blóm og bætiefni, krem og kjöt svo eitthvað sé nefnt. Sagt er frá þessu á vef Feykis.
09:42 10. júl. 2020   Samsýningin Stúlkan og hrafninn
Sýningin Stúlkan og hrafninn verður opnuð á morgun, laugardaginn 11. júlí í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólum. Um er að ræða samsýningu ellefu listamanna úr Skagafirði, Húnavatnssýslum og Reykjavík sem túlka þjóðsöguna sem varð til um stúlkuna og hrafninn þegar Skíðastaðaskrifa féll árið 1545 og eyddi bænum Skíðastöðum í Vatnsdal. Sýningin verður opin klukkan 11-23 laugardaginn 11. júlí og í mánuð á opnunartíma Listakots Dóru.
16:45 09. júl. 2020   Skemmtilegt Meistaramót á Sauðárkróki
Um síðustu helgi fór Meistaramót Íslands 11-14 ára fram á Sauðárkróksvelli en þangað mættu um 230 ungmenni frá 17 félögum víðsvegar um landið. Fimm krakkar tóku þátt frá Kormáki í Húnaþingi vestra og níu krakkar, fjórir frá Hvöt á Blönduósi og fimm frá Fram á Skagaströnd, kepptu undir merkjum Ungmennasambands Austur-Húnvetninga.
Fyrri 46-60 1 2 3 4 5 6 Næstu 76-80
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið