07:52 |
23. júl. 2020 |
Fjölbreytt dagskrá Elds í Húnaþingi
Dagskrá Elds í Húnaþingi er fjölbreytt í dag og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér hana. Af einstaka viðburðum í dag má nefna að karlalandslið Íslands í hópfimleikum verður með stórglæsilega sýningu klukkan 17 í Íþróttahúsinu á Hvammstanga. Að sýningu lokinni halda landsliðsmenn námskeið þar sem börn fá að vera með landsliðinu á æfingu. Melló Músíka fer fram klukkan 19:30 í Félagsheimilinu á Hvammstanga en þar verður hægt að sjá hæfilíkaríkt fólk stíga á svið og taka lagið. |
09:03 |
22. júl. 2020 |
Eldur í Húnaþingi hefst í dag
Eldur í Húnaþingi hefst á Hvammstanga í dag og stendur fram á sunnudag. Markmið hátíðarinnar er að leiða fólk á öllum aldri saman og stuðla að samfélagslegri þátttöku. Margt er í boði og hvatt er til almennrar þátttöku. Opnunarhátíð fer fram klukkan 19 í dag á túninu hjá Pósthúsinu og verður eldurinn þá tendraður í 18. sinn. Í boði verður kjötsúpa, nytjamarkaður og skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna. |
12:19 |
21. júl. 2020 |
Þjóðminjasafnið safnar frásögnum um ísbirni
Ísbjarnarsögur er heiti á nýrri spurningaskrá sem Þjóðminjasafn Íslands sendir út um þessar mundir. Tilgangurinn með henni er að safna minningum fólks um ísbirni með áherslu á að rannsaka ferðir þeirra til Íslands í sögulegu og samtímalegu samhengi. Spurningaskráin er hluti af þriggja ára rannsóknarverkefni sem unnið er í samstarfi íslenskra og alþjóðlegra háskóla og safna. Verkefnið er styrkt af Rannsóknasjóði Rannís 2019-2021. |
10:04 |
21. júl. 2020 |
Veisla fyrir augu og eyru á Kleifum
Í fjóshlöðunni á Kleifum við Blönduós er sýning á verkum Hjálmars Stefánssonar frá Smyrlabergi. Sýningin ber yfirskriftina Nafli jarðar og á henni eru 127 málverk eftir Hjálmar sem fengin voru að láni hjá ættingjum og vinum listamannsins. Í gærkvöldi voru haldnir tónleikar á Kleifum með hljómsveitinni GÓSS og var margt um manninn í kvöldsólinni á bökkum Blöndu. |
09:33 |
21. júl. 2020 |
Góður rómur gerður að tvennum tónleikum
Margir hrifust af frábærum tónlistarflutningi á tvennum tónleikum sem haldnir voru á Húnavöku. Lára Bryndís Eggertsdóttir hélt orgeltónleika í Blönduóskirkju á laugardaginn en organisti kirkjunnar, Eyþór Franzson Wechner, hefur árlega staðið fyrir viðburðum í kirkjunni í tengslum við Húnavöku. Á þeim mátti heyra þjóðlagatengda tónlist eftir erlenda og íslenska höfunda meðal annars eftir Vatnsdælingurinn Bára Grímsdóttir. Lára Bryndís kynnti tónlistina sem hún flutti og sagði frá tilurð íslensku orgelverkanna. |
09:22 |
20. júl. 2020 |
Velheppnuð Húnavaka
Húnavökunni er lokið þetta árið og þótti hún lukkast vel. Veðrið setti strik í reikninginn frá fimmtudegi til laugardags en á sunnudaginn kom sólin. Íþróttamiðstöðin á Blönduósi nýttist vel um helgina því fjölmargir viðburðir voru færðir inn í hana vegna veðurs og var hún því miðpunktur hátíðarhaldanna. Viðburðir voru almennt vel sóttir og vona umsjónaraðilar Húnavöku að allir hafi skemmt sér vel. |
08:54 |
20. júl. 2020 |
Fyrsta Arctic Coast Open haldið á Húnavöku
Um helgina fór fram fyrsta Arctic Coast OPEN mótið á skotíþróttasvæði Skotfélagsins Markviss við Blönduós. Tíu keppendur tóku þátt í mótinu og komu þeir frá fimm skotfélögum en ljóst er að veðurfar hafði neikvæð áhrif á fjölda keppenda að þessu sinni. Mótið gekk vel fyrir sig þrátt fyrir kalsarigningu og norðan gjólu á laugardaginn en í gær stytti upp og voru aðstæður hinar bestu. |
11:15 |
19. júl. 2020 |
Björninn unninn á Húnavöku
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tók á móti Birninum í sudda rigningu á Blönduósvelli í gær þegar 6. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla 4. deild B riðli var leikin. Á 13. mínútu kom Hilmar Þór Kárason Kormáki/Hvöt yfir með laglegu marki og staðan í hálfleik 1-0. Það var svo ekki fyrr en á 83. mínútu að Oliver James Kelaart Torres tvöfaldaði stöðuna fyrir Kormák/Hvöt og þannig enduðu leikar 2-0. Með sigrinum er liði komið í þriðja sæti riðilsins og er aðeins tveimur stigum frá toppliðinu SR. |
10:16 |
19. júl. 2020 |
Síðasti dagur Húnavöku
Húnavakan hefur gengið vel alla helgina þrátt fyrir að veðrið hafi ekki sýnt sínar bestu hliðar. Ljómandi góð þátttaka hefur verið á viðburði hátíðarinnar og almenn gleði ríkjandi. Dagurinn í dag lofar góðu því leiðinda lægðin er gengin yfir, komið logn og sólin að fara að skína. Söguganga verður um gamla bæinn klukkan 10:30 og hin árlega prjónaganga verður klukkan 12. Sundlaugin, Heimilisiðnaðarsafnið, Vatnsdæla á Refli og Minjastofan eru opin í dag. |
17:35 |
18. júl. 2020 |
Öskur frá útlendingum við Kálfshamarsvík
Inspired by Iceland býður fólki um allan heim að losa um uppsafnaða streitu vegna Covid-19 með því að láta öskur sitt hljóma á Íslandi. Hátölurum hefur verið komið fyrir víðs vegar um landið en hægt er að taka öskrin upp með aðstoð tölvu eða síma á vefsíðunni www.lookslikeyouneediceland.com næstu tvær vikur. Einn hátalari er staðsettur við Kálfshamarsvík á Skaga. |
12:22 |
18. júl. 2020 |
Umhverfisverðlaun Blönduósbæjar afhent á Húnavöku
Umhverfisverðlaun Blönduósbæjar fyrir árið 2020 voru afhent í gær á fjölskylduskemmtun Húnavöku sem haldin var í Íþróttamiðstöðinni sökum mikillar úrkomu utan dyra. Verðlaunin afhentu þau Arnrún Bára Finnsdóttir og Zophonías Ari Lárusson fyrir hönd Skipulags-, umhverfis- og umferðarnefndar Blönduósbæjar. |
10:35 |
18. júl. 2020 |
Húnavökuhátíðin heldur áfram
Húnavökuhátíðin heldur áfram í dag en nokkur röskun hefur orðið á viðburðum vegna veðurs. Í dag átti að fara fram golfmót og Blönduhlaup, en svo verður ekki. Sögugangan um gamla bæinn sem fara átti fram í dag hefur verið færð til morguns klukkan 10:30. Knattspyrnuleikurinn milli Brunavarna A-Hún. og sveitarstjórnar Blönduósbæjar ásamt ungmennaráði verður haldinn á morgun á skólalóðinni klukkan 15:30. Eftir leikinn verður vítaspyrnukeppni sem allir geta tekið þátt í. |
10:22 |
18. júl. 2020 |
FUNI - Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi er opið alla Húnavökuhelgina frá klukkan 10 til 17. Á síðasta degi hátíðarinnar, á morgun sunnudaginn 19. júlí, verða haldnir Stofutónleikar klukkan 15. Bára Grímsdóttir og Chris Foster skipa tvíekið Funa. Þau flytja íslensk og ensk þjóðlög, sungin og leikin á gítar, langspil, kentele og shruti box. Eftir tónleikana verður boðið upp á kaffisopa að hætti safnsins. |
08:26 |
17. júl. 2020 |
Sýning á verkum Hjálmars frá Smyrlabergi
Í dag klukkan 17 verður opnuð sýning á verkum Hjálmars Stefánssonar frá Smyrlabergi í fjóshlöðinni á Kleifum við Blönduós. Á sýningunni sem ber yfirskriftina Nafli jarðar gefur að líta 127 málverk sem fengin eru að láni hjá ættingjum og vinum listamannsins. Hjálmar Stefánsson fæddist árið 1913 á Smyrlabergi á Ásum í Austur-Húnavatnssýslu. |
08:22 |
17. júl. 2020 |
Húnavakan heldur sínu striki
Þrátt fyrir að veðrið sé ekki upp á sitt besta og spáin gæti verið betri heldur Húnavakan sínu striki, að mestu. Búið er að aflýsa tveimur viðburðum sem fara áttu fram á morgun; Blönduhlaupinu og Húnavökugolfmótinu. Fyrirtækjadagurinn er í dag en þá bjóða fyrirtæki og stofnanir á Blönduósi gesti velkomna og ýmis Húnavökutilboð verða í boði. Fjölskylduskemmtunin sem fram fer klukkan 18-21 í dag hefur verið færð inn í Íþróttamiðstöðina. |