Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 2. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:23 0 0°C
Laxárdalsh. 21:23 0 0°C
Vatnsskarð 21:23 0 0°C
Þverárfjall 21:23 0 0°C
Kjalarnes 21:23 0 0°C
Hafnarfjall 21:23 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 61-75 76-82 af 82  
KlukkanDagsetningFrétt
13:03 01. sep. 2020   Alvarlegt bílslys við Stóru-Giljá í morgun
Alvarlegt bílslys varð skammt frá bænum Stóru-Giljá upp úr klukkan átta í morgun. Mbl.is greinir frá því að kona hafi verið flutt með sjúkrabifreið á Sauðárkrók og þaðan með sjúkraflugi á Landspítalann og að ekki sé vitað um líðan hennar. Fram kemur að vegfarendur hafi komið konunni strax til aðstoðar og að vitni hafi verið að slysinu. Ekki er vitað hvers vegna konan missti stjórn á bifreiðinni en þetta er ekki í fyrsta skipti sem slys verða á þessum vegarkafla. Bifreiðin mun vera gjörónýt.
09:22 01. sep. 2020   Breytingar í Breiðabólsstaðarprestakalli
Breytingar verða í Breiðabólsstaðarprestakalli frá og með deginum í dag en sr. Magnús Magnússon sóknarprestur er farinn í níu mánaða námsleyfi sem stendur til 1. júní á næsta ári. Á meðan gegnir sr. María Gunnarsdóttir prestþjónustu í prestakallinu. Þetta kemur fram í facebookfærslu Hvammstangakirkju. Sr. María hefur starfað undanfarin misseri á fræðsludeild biskupsstofu en var vígð til afleysinga haustið 2019 og var þjónandi prestur í fyrravetur annars vegar í Laufásprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi og hins vegar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
10:09 31. ág. 2020   Sveitarfélög mjög misjafnlega í stakk búin til að takast á við efnahagsleg áhrif Covid-19
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti á föstudaginn skýrslu starfshóps um áhrif Covid-19 á fjármál sveitarfélaga. Starfshópurinn áætlar að verulegur samdráttur verði í tekjum flestra sveitarfélaga miðað við áætlanir og að neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu þeirra nemi alls rúmlega 33 milljörðum króna.
08:21 31. ág. 2020   Fjallskilastjórn útdeilir aðgangsmiðum í Miðfjarðarrétt
Fjallaskilastjórn Miðfirðinga mun útdeila miðum niður á bæi sem gefa rétt til þátttöku í komandi réttarstörfum sem fram fara í Miðfjarðarrétt á laugardaginn. Til að lágmarka fjölda sem kemur saman í réttina hverju sinni er stefnt að því að Núpsheiðarsafn komi fyrst til réttar klukkan 11, Húksheiði klukkan 13 og Aðalbólsheiði klukkan 15. Hrossarétt hefst klukkan 6:30.
19:01 30. ág. 2020   Náðu toppsætinu með sigri
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar lék á móti Birninum í sudda rigningu á knattspyrnuvellinum við Egilshöll í dag þegar 13. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla 4. deild B riðli var leikin. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en á 50. mínútu leiksins skoraði Ingvi Rafn Ingvarsson mark fyrir Kormák/Hvöt. Níu mínútum seinna jafnaði Björninn leikinn og allt stefndi í jafntefli. En svo fór nú ekki því á 87. mínútu skoraði Hilmar Þór Kárason mikilvægt mark sem tryggði Kormáki/Hvöt öll stigin sem í boði voru og skaut liðinu á topp riðilsins í leiðinni.
10:08 30. ág. 2020   Óhefðbundin Skrapatungurétt í ár
Sauðfé verður rekið til réttar og dregið í dilka í Skrapatungurétt eftir viku eða sunnudaginn 6. september. Réttarstörfin verða með óhefðbundnu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldursins. Sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Skagabyggðar bera ábyrgð á framkvæmd réttarstarfa í Skrapatungurétt og ber þeim að tryggja að reglum um sóttvarnir sé fylgt eftir. Talið verður inn og út og merkt við þá sem mæta í réttina, á fyrir fram útbúnum þátttakendalista.
09:58 28. ág. 2020   Sögur af Norðurlandi vestra
Á dagskrá Ríkissjónvarpsins síðustu vikur hefur verið fjallað um náttúrufegurð og sögu Norðurlands vestra en þættirnir heita Sögur frá landi og eru þrír talsins. Í sumar fóru þáttastjórnendurnir Hlédís Sveinsdóttir og Hallgrímur Ólafsson og kynntu sér sögu, menningu og matargerðarlist á svæðinu. Þau leituðu uppi sögufólk og lífskúnstnera og alltaf var gítarinn og gleðin með í för. Dramatískar örlagasögur og áhugavert fólk, í bland við ferskan mat eldaðan út í náttúrunni.
Fyrri 61-75 1 2 3 4 5 6  
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið