Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 7. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:29 0 0°C
Laxárdalsh. 00:29 0 0°C
Vatnsskarð 00:29 0 0°C
Þverárfjall 00:29 0 0°C
Kjalarnes 00:29 0 0°C
Hafnarfjall 00:29 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Ekkert kreppukjaftæði á þessu borði. Ljósm: “lafía Lárusdóttir
Ekkert kreppukjaftæði á þessu borði. Ljósm: “lafía Lárusdóttir
Hugrún Sif og Jonni spiluðu á stofnfundinum
Hugrún Sif og Jonni spiluðu á stofnfundinum
Það var gott með kaffinu í gær
Það var gott með kaffinu í gær
Fréttir | 11. desember 2008 - kl. 17:23
Skagstrendingar stofna Gleðibanka

Skagstrendingar stofnuðu Gleðibanka í gærkvöldi að viðstöddum fjölda
manns. Allir sem einn staðgreiddu þeir hlut sinn og gekk afgreiðslan
afar fljótt fyrir sig enda var enginn hörgull á greiðslu. Í dag gengu
svo umboðsmenn Gleðibankans í fyrirtæki og keyptu allir sem ekki gátu
mætt á stofnfundinn.

Fyrsta verk Gleðibankans var svo að gefa út  svokallað Gleðikort.
Fyrir það fæst veglegur afsláttur í helstu verslunum, veitingahúsum,
söluskálum og bensínstöðvum á Skagaströnd, en þau eru Kántrýbær,
Söluskálinn, Olís og matvöruverslunin Samkaup Úrval. Líkur benda til
þess að allir Skagstrendingar hafi nú fengið Gleðikort og muni nota
það á morgun en þá er Afsláttardagurinn mikli á Skagaströnd og þann
dag gildir kortið.

Eftir stofnun bankans var gengið til gleðistarfa. Sýndar voru myndir
frá skeri nokkru sem er enn kaldara en klaki vor, sagðar voru
örskopsögur af Skagstrendingum, leikin var syrpa af jólalögum og í
boði Sjóvá fengu gestir kaffi og kökur eins og hver gat í sig  látið.
Þess má hér geta að engin krosstengsl eru á milli Gleðibankans og
Sjóvá en þó er meira en hugsanlegt að fyrrnefnda fyrirtækið reyni að
taka hið síðarnefnda yfir áður en langt um líður.

Gjaldmiðill Gleðibankans er bros. Hluturinn í bankanum er þannig
virtur á eitt þúsund bros en gangvirðið er að öllum líkindum miklu
hærra og tala menn um fjölda brosa, jafnvel hlátra í því sambandi.

Það óvenjulega við hlutabréf í Gleðibankanum er að hann er ævarandi
bundin þeim sem keypti hann. Arðurinn er skattfrjáls en engu að síður
framtalsskyldur. Gerð skal grein fyrir eigninni á blaðsíðu 1 á
framtali, lið 1.4.

Þar skal rita eftirfarandi texta:

"Undirritaður á 1.000 bros í Gleðibankanum en það eru ómetanleg auðæfi
og algjörlega skattfrjáls samkvæmt heilbrigðri skynsemi."

Síðan skal bæta við broskalli :-) og helst lita hann gulan.

Gleðibanki Skagastrandar getur ekki orðið gjaldþrota (það var að vísu
líka sagt um gömlu bankana!). Bankinn hefur grínlausa milligöngu um
varðveislu verðmæta, hvort heldur þau eru í gríni, skopi eða öðrum
gleðigjaldeyri. Hann annast gleðivísitölu, gætir að gengi gríns miðað
við aðra miðla og gefur út gleðikort, gleðipillur og gleðibréf af öllu
tagi fyrir gleðimenn og konur.

Í trúnaði sagt er einlægur tilgangur stofnenda Gleðibankans á
Skagaströnd að hvetja til bjartsýni. Þrátt fyrir alvarlega stöðu
þjóðarinnar telja þeir ekki ástæðu til að leggjast í þunglyndi eða
berja á náunganum þrátt fyrir smávægilegan skoðanaágreining á þeim
málum sem nú er sem mest rætt um.

Við þurfum að vera bjartsýn, sýna hverju öðru velvilja og það er fyrst
og fremst gert með því að fólk sýni tilfinningar sínar og brosi, það
eykur viðskiptin við bankann. Gleðibankinn er fyrst og fremst spurning
um hugarfar. Skagstrendingum finnst nauðsynlegt að geta litið upp frá
bölsýni og barlómi og horft á það sem eykur þor og bjartsýni. Nú eru
líka að koma jól og brátt fer sól að hækka á lofti.

Gleðibankinn er vettvangur til að láta sér líða vel enda heimsendir
ekki í nánd eftir því sem best er vitað. Hlutabréfin eru stæling á því
sem við getum átt í veraldlegum eignum, því sem ryðgar bara og fúnar -
það er ekkert grín ... Hins vegar er ekkert eins og gleðin sem á sína
bestu birtingarmynd í einlægu brosi.

Þessu öllu til staðfestingar þá rituðu stofnendur Gleðibankans þau orð
sem þeim finnst vera mest íþyngjandi á litla miða. Þetta voru m.a. orð
eins og kreppa, þunglyndi, bankar, skuldir, milljarðar, gjaldþrot,
spilling, atvinnuleysi, útrás og verðbólga. Miðunum var síðan troðið í
fallbyssu Skagstrendinga og í lok fundarins var skotið úr henni.
Brunnu þar upp miðarnir og þar með voru vandamálin fyrir bí - þeim var
beinlínis skotið út í veður og hvassan vind.

Fundu Skagstrendingar allir sem einn að þeim var mikið létt eftir
þennan gjörning og sneru léttir í lund heim á leið.

Höf. ass
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið