Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 9. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:17 0 0°C
Laxárdalsh. 02:17 0 0°C
Vatnsskarð 02:17 0 0°C
Þverárfjall 02:17 0 0°C
Kjalarnes 02:17 0 0°C
Hafnarfjall 02:17 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Blönduóskirkja
Blönduóskirkja
Pistlar | 18. apríl 2014 - kl. 15:55
Organistapistill
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Nú líður að páskum, passíusálmar verða lesnir í Blönduóskirkju að kvöldi föstudagsins langa, kórinn syngur milli lestra og einnig kl. 8 á páskadagsmorgni þegar hátíðarmessa verður í kirkjunni.  Á þriðjudagskvöldi, hittust til æfinga í Svínavatnskirkju, aðstandendur fermingarbarna og sóknarmenn úr Svínadal, Blöndudal og af Hálsum svo organisti bregði fyrir sig málfari Sturlungualdar en þar voru bæir austanvert við vatnið heimfærðir svo. Fermt var svo í Svínavatnskirkju að morgni skírdags en síðdegis var messa og altarisganga í Baðstofunni á Héraðshælinu. Mjög fjölsótt var í báðum messunum og fáeinir stóðu í fermingarmessunni.

En aðeins meira um landafræði og prestsdætur við Svínavatn, en fyrir enda vatnsins þurftu Auðkúluprestar að krækja þegar þeir riðu á annexíuna á Svínavatni. Á veturnar lagði vatnið og styttist þá drjúgum kirkjuvegurinn. Auðkúluprestakall var eftirsótt brauð og fylgdi því m.a.s. kirkjujörð ætluð prestsekkjunni þegar svo bar við. Þessi jörð heitir Litlidalur og þaðan komu kennslukonur og forstöðukonur til Kvennaskólans á Ytri-Ey og Blönduósi sem voru líka prestsdætur frá Auðkúlu. Þær voru dætur sr. Jóns Þórðarsonar Auðkúlu og systur Þóru Jónsdóttur tengdamóður sr. Gunnars Árnasonar á Æsustöðum.

Gleðilega páskahátíð.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið