Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 1. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:07 0 0°C
Laxárdalsh. 23:07 0 0°C
Vatnsskarð 23:07 0 0°C
Þverárfjall 23:07 0 0°C
Kjalarnes 23:07 0 0°C
Hafnarfjall 23:07 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
Sigþrúður Sigfúsdóttir
Sigþrúður Sigfúsdóttir
Pistlar | 21. mars 2018 - kl. 12:13
Blönduósbúar, andmælum verndarsvæði í byggð í gamla bænum á Blönduósi
Eftir Sigþrúði Sigfúsdóttur og Huldu Leifsdóttur

Kæru Blönduósbúar, er ekki vert að kynna sér betur hvað stendur á bak við verndarsvæði í byggð í gamla bænum á Blönduósi? 

Á dögunum var haldinn fyrsti formlegi fundur í íbúa- og hagsmunasamtaka gamla bæjarins á Blönduósi. Samtök þessi hafa það að leiðarljósi að gamli bærinn fái þá fyrri reisn, sem hann bjó yfir, þegar hann var fallegi miðbærinn við þjóðveginn. 

Á þessum fyrsta fundi samtakanna var ákveðið að fara yfir og ræða tillögur um verndarsvæði í byggð sem fyrirhugaðar eru í gamla bænum á Blönduósi. Í stuttu máli má segja að margar alvarlegar athugasemdir hafi komið fram um mál þetta. Fundarmenn voru almennt sammála því, að sú mynd sem dregin var upp á þeim tveim íbúafundum sem haldnir hafa verið um málið, hafi verið mjög ófullkomin og lítið borið á því samráði við íbúa sem um hafði verið talað áður. Engar upplýsingar liggja fyrir um þær skyldur og þau bönd sem lögin um verndarsvæði í byggð leggja á eigendur fasteigna í gamla bænum. Málflutningur forráðamanna bæjarins var mjög einhliða og allur á þá leið að sjálfkrafa myndi fasteignaverð hækka á svæðinu en aðspurðir hvernig það virkaði gátu þeir engin svör gefið. Einnig fengust mjög óljós svör varðandi hugsanlega styrki og spurningum þess efnis vísað frá þar sem frummælendur fundarins sögðust ekki vera þangað komnir til að gefa þær upplýsingar.

Lög um verndarsvæði í byggð á Íslandi þrengja mjög að og takmarka rástöfunarrétt fólks á eignum sínum. Hús sem ekki hafa náð friðunaraldri fá samt þær kvaðir á sig þegar þau eru komin undir verndarsvæði. Vert er að minna á að eignarrétturinn er lýstur friðhelgur í stjórnarskrá Íslands. Var það rætt á fundinum að slíkar breytingar á gildandi skipulagi í andstöðu húseigenda gæti orðið til þess fallnar að baka viðkomandi sveitarfélagi bótaskyldu gagnvart eigendum húsa á svæðinu. 

Það þykir einkar ámælisvert hversu hratt þetta verkefni er afgreitt hjá sveitarfélaginu en tæpir fjórir mánuðir eru frá fyrri íbúafundi sem haldinn var til kynningar á málinu. Þegar verkferlar fyrir vinnu að verndarsvæði í byggð eru skoðaðir kemur þar fram að sú vinna skuli unnin í samráði við eigendur fasteigna skilgreinds svæðis sem og bæjaríbúa alla. Það er því með öllu óskiljanlegt að fasteignaeigendur á svæðinu hafa verið algjörlega hundsaðir þegar kemur að þessari undirbúningsvinnu.

Í leiðbeiningarriti frá Minjastofnun um vinnu við vernarsvæði í byggð kemur eftirfarandi fram:

„Í lögunum og reglugerðinni er lögð áhersla á að haft sé samráð við íbúa og aðra þá sem hagsmuna eiga að gæta við gerð tillögu um verndarsvæði í byggð. Með þátttöku íbúa við gerð tillögunnar skapast skilningur á listrænu og menningarsögulegu gildi byggðarinnar. Þannig er líklegra að ná megi almennri sátt um verndun hennar. Slík sátt er grundvöllur þess að markmið um verndun nái fram að ganga, því íbúar og eigendur einstakra húsa gegna mikilvægu hlutverki við verndun byggðarinnar með viðhaldi á húsum og mannvirkjum“ .    

Í tillögu um verndarsvæði í byggð eru nefnilega miklar kvaðir og hömlur settar á eigendur fasteigna umfram það sem almenn byggingarreglugerð segir til um. Nóg finnst nú mörgum um þá byggingareglugerð sem er í gildir á Íslandi, en í þessum nýju lögum um verndarsvæði í byggð þá er eignar- og athafnarétturinn skertur. Þá er skipulagsréttur sveitastjórnar í lögum og reglugerð efldur og henni færð ný vopn í hendur. Hér eru dæmi:

„Ef sveitastjórn metur það svo og er ósátt við framkvæmdir sem unnar eru á verndarsvæði í byggð að þá er henni heimilt að láta breyta verkinu svo að falli að skilgreiningunni verndarsvæði í byggð og senda reikninginn til eiganda fasteignarinnar.“

„Það varðar sektum að hefja framkvæmdir innan verndarsvæðis í byggð án þess að fyrir liggi leyfi viðkomandi sveitarstjórnar fyrir framkvæmd Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða getur refsing orðið fangelsi allt að fjórum árum.“

Með öðrum orðum, ef friðun verður mun það þrengja athafnamöguleika allra eigenda fasteigna á svæðinu verulega.

Því viljum við koma á framfæri eftirfarandi:

Íbúa- og hagsmunasamtök "Gamla bæjarins á Blönduósi, lýsum okkur hér andsnúin auglýstri tillögu Blönduósbæjar um verndarsvæði í byggð. Andmæli okkar styðjast m.a. við eftirfarandi:

Við teljum að undirbúningi við gerð og kynningu tillögunnar hafi verið verulega ábótavant. Ófullnægjandi samráð var haft við íbúa og eigendur fasteigna á svæðinu við gerð tillögunnar. 

Þá teljum við að á þeim kynningarfundum sem haldnir voru með eigendum og íbúum á Blönduósi í októbermánuði 2017 og janúarmánuði 2018 hafi verið dregin upp röng mynd af áhrifum friðunarinnar og nánast eingöngu haldið á lofti möguleikum eigenda fasteigna á svæðinu til styrkveitinga til viðhalds og endurbóta á fasteignum sínum ef friðun yrði samþykkt. 

Á þessum tveimur íbúafundum voru íbúum og eigendum ekki kynnt þær kvaðir sem gerðar eru til fasteigna á svæðinu sem hefur verið skilgreint verndarsvæði í byggð á Blönduósi. 

Við teljum að friðun samkvæmt tillögunni muni þrengja verulega að uppbyggingu svæðisins „Gamli bærinn á Blönduósi“ þar sem bæjaryfirvöld og sveitastjórn hafa ekki lagt fram neina áætlun er varðar framtíðar uppbyggingu svæðisins.

Við viljum hvetja alla sem íbúa á Blönduósi að kynna sér hvað tillögur um verndarsvæði í byggð fela í sér. Andmælafrestur rennur út þann 5. apríl, því viljum við biðla til allra íbúa á Blönduósi að koma í lið með okkur og andmæla tillögum sveitarfélagsins um verndarsvæði í byggð á Blönduósi. Andmælum skal koma á framfæri á bæjarskrifstofunni á Blöndósi.

Um leið skorum við á bæjaryfirvöld að vinna að skýrri stefnu er varðar uppbyggingu gamla bæjarins í samvinnu við bæjarbúa og eigendur húsa og fyrirtækja í gamla bænum. Sveitarstjórnin á að sýna sóma sinn í verki og leggja fjármuni í uppbyggingu í gamla bænum, en lítið hefur farið fyrir því á liðnum árum. 

Því segjum við - vinnið heimavinnu ykkar í þeim verkefnum sem ykkur er treyst fyrir að vinna í þágu bæjarfélagsins okkar, gætið hagsmuna allra bæjarbúa svo hægt sé að stuðla að eðlilegri þróun og uppbyggingu alls samfélagsins!

Fyrir hönd íbúa- og hagsmunasamtaka gamla bæjarins á Blönduósi, Sigþrúður Sigfúsdóttir og Hulda Leifsdóttir

Höf. rzg
Katrín M. Guðjónsdóttur framkvæmdastjóri SSNV og Ỏlafur Þór Ỏlafsson, starfandi sveitarstjóra Skagastrandar, undirrita samninginn. Mynd: ssnv.is
Katrín M. Guðjónsdóttur framkvæmdastjóri SSNV og Ỏlafur Þór Ỏlafsson, starfandi sveitarstjóra Skagastrandar, undirrita samninginn. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 16:41
Sveitarfélagið Skagaströnd og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undirritað samning vegna styrks, að fjárhæð 15 milljónir, til að skapa samvinnurými á Skagaströnd. Markmið verkefnisins er að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess. Húsið sem um ræðir var áður fiskvinnsluhús, síðast rækjuvinnsla.
Glaðheimar
Birna Ágústsdóttir, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra. Ljósm: www.stjornaradid.is
Birna Ágústsdóttir, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra. Ljósm: www.stjornaradid.is
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 15:13
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi frá 1. júní nk. til og með 31. maí 2025. Tilefnið er beiðni Ỏlafs Kristófers Ỏlafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti. Á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins kemur fram að nú standi yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir 1. júní 2024.
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 08:19
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar. Um er að ræða stöðu löglærðs fulltrúa á Sauðárkróki, innheimtufulltrúi á Ísafirði, tvær stöður innheimtufulltrúa á Blönduósi og starf verkefnastjóra milliríkjainnheimtu á Blönduósi.
Jóhann Örn Finnsson. Mynd: hunathing.is
Jóhann Örn Finnsson. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 15:13
Jóhann Örn Finnsson hefur verið ráðinn í nýtt starf tengslafulltrúa á fjölskyldusviði Húnaþings vestra sem auglýst var á dögunum. Tengslafulltrúi mun starfa með ungmennum í sveitarfélaginu í samræmi við áherslur farsældarlaga og er tengiliður þeirra við stjórnkerfi og stofnanir. Hann mun leitast við að aðstoða ungmenni við að finna ástríðu sína og vinna að henni með fjölbreyttu tómstundastarfi og stuðningi, eins og segir á vef Húnaþings vestra.
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 15:07
Skagabyggð heldur íbúafund í Skagabúð sunnudaginn 5. maí næstkomandi klukkan 14. Á dagskrá fundarins eru sameiningarmál og önnur mál. Farið verður yfir stöðu sameiningarviðræðna við Húnabyggð og annað það sem liggur á íbúum að ræða.
Pistlar | 29. apríl 2024 - kl. 14:31
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Á ævigöngunni hvort sem það er nú í gleði eða sorg eða bara þegar við mögulega kunnum að sigla einhvern lygnan sjó um stutta stund, þá er það mín reynsla að ekkert sé dýrmætara og betra en að fá að hvíla í mætti og undri andans heilaga og góða og bænarinnar. Því þótt yfir mig fenni aða ég verði undir fargi vonbrigða og volæðis, þá bið ég þess að kærleikur þinn, góði Jesús, mér bjargi nú og um alla framtíð, líkt og fyrri daginn.
Frá hópslysaæfingu við Blönduós árið 2011. Mynd: Birgir Ingólfsson.
Frá hópslysaæfingu við Blönduós árið 2011. Mynd: Birgir Ingólfsson.
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 11:45
Lögreglan á Norðurlandi vestra auglýsir eftir fólki til að taka þátt í hópslysaæfingu og leika fórnarlamb eða jafnvel óttasleginn ættingja, eins og segir á facebooksíðu hennar. Þar kemur fram að nýverið hafi verið haldin kynning fyrir unglinga í Húnaskóla um hlutverk og mögulega aðkomu að æfingunni. Æfingin verður haldin 11. maí næstkomandi og hægt er að senda tölvupóst á netfangið nordurland.vestra@logreglan.is og tilkynna þátttöku.
Pistlar | 29. apríl 2024 - kl. 09:25
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Nú birtist Þröstur og við sem lesið höfum sr. Árna og Þórberg erum æ síðan ginnkeypt fyrir góðum ævisögum, síðast varð ég upptekinn af ævisögu sr. Sigurjóns úr Arnarfirðinum, eftir sumarferð Húnvetninga vestur 2023, Undir hamrastáli heitir hún sú góða bók eða eitthvað í þá áttina. En nú er komin ný bók, nýsamin af Þresti, ekki bara ævisaga, líka landssaga, þjóðarsaga og spurningin vaknar, er hún heiðarleg? Jú, það sést á þættinum um soninn Eilíf Örn og fleiri, málfarið er skínandi gott og víða frumlegt
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 09:13
Verkalýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur í Húnabyggð 1. maí, sem er miðvikudagur að þessu sinni, undir yfirskriftinni Sterk hreyfing - sterkt samfélag. Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst dagskráin klukkan 15. Boðið verður upp á fábæra tónlist og söng. Ræðumaður dagsins er Sigurey A. Ỏlafsdóttir, formaður Stéttarfélags Samstöðu. Afþreying fyrir börnin. Kvenfélag Svínavatnshrepps sér um glæsilegar veitingar.
Halla Hrund. Mynd: Aðsend
Halla Hrund. Mynd: Aðsend
Fréttir | 28. apríl 2024 - kl. 21:53
Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að framundan eru forsetakosningar. Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir verður á ferð og flugi um Norðurland í vikunni og býður heimamönnum til opinna funda og samtals um embætti forseta Íslands. Tveir fundir verða í Húnavatnssýslum, í Víðigerði og á Blönduósi.
Katrín M. Guðjónsdóttir framkvstj. SSNV og Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitastjóri undirrituðu samninginn. Mynd: ssnv.is
Katrín M. Guðjónsdóttir framkvstj. SSNV og Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitastjóri undirrituðu samninginn. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 27. apríl 2024 - kl. 10:03
Húnaþing vestra og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undirritað samning um 10,5 milljón króna styrk til uppsetningar samfélagsmiðstöðvar og tæknimiðstöðvar í anda FabLab smiðju í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Verkefnið, sem nefnist Hjartað í Húnaþingi vestra, snýst um að koma upp nýsköpunar-, viðgerða- og þróunaraðstöðu fyrir íbúa á svæðinu, sem og aðstöðu fyrir félagsstarf.
Verkefni um land allt. Mynd: stjornarradid.is
Verkefni um land allt. Mynd: stjornarradid.is
Fréttir | 27. apríl 2024 - kl. 09:43
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, úthlutaði í gær úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Alls bárust 125 umsóknir um styrki, fyrir rúmlega 2,9 milljarða króna, til verkefna að heildarfjárhæð rúmlega 4 milljarða. Að þessu sinni hljóta 29 verkefni styrk úr sjóðnum, samtals að fjárhæð 538,7 milljónir króna, og dreifast þau um land allt. Tvö verkefni í Austur-Húnavatnssýslu fengu styrk.
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið