15:30 |
29. maí 2020 |
Sigruðu sinn riðil í Skólahreysti
Skólahreysti hóf göngu sína á ný í gær og var keppt í tveimur riðlum í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Keppendur í Grunnskóla Húnaþings vestra gerðu góða ferð suður og sigruðu í sínum riðli, náðu 56 stigum. Liðið skipa Ásdís Aþena Magnúsdóttir sem keppti í armbeygjum og hreystigreip, Guðmundur Grétar Magnússon sem keppti í upphífingum og dýfum og í hraðaþrautinni kepptu þau Rakel Gígja Ragnarsdóttir og Hilmir Rafn Mikalesson. Þetta er þriðja árið í röð sem skólinn endar í fyrsta sætið í sínum riðli. |
12:16 |
29. maí 2020 |
Fjáröflun vegna knattspyrnudeildar Hvatar
Tilkynning frá stjórn
Knattspyrnudeild Hvatar er að selja áskrift að Stöð 2 Sport Ísland fyrir aðeins 3990 kr. á mánuði sem fjáröflun fyrir deildina, í okkar hlut koma 6.470 kr. fyrir hverja selda áskrift svo til mikils er að vinna. |
16:44 |
28. maí 2020 |
Átta ný opinber störf til Sauðárkróks
Starfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Sauðárkróki verður efld og verður auglýst eftir starfsfólki á næstunni. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra segir, í samtali við sjónvarpsstöðina N4, fyrirhugað að setja á laggirnar nýtt svið innan stofnunarinnar sem sinni sérstaklega brunavörnum og starfsemi slökkviliða í landinu. |
15:39 |
28. maí 2020 |
Starfsfólk Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd á hrós skilið
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra heimsótti Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd í gær. Ásmundur segir frá heimsókn sinni á Facebook síðu sinni og tekur fram að það séu ekki margir sem viti að þarna fari í gegn allar umsóknir og greiðslur um atvinnuleysisbætur á Íslandi. Í mars síðastliðnum unnu 19 starfsmenn hjá stofnuninni en í dag eru þeir orðnir 27. Greiddir hafa verið út ríflega 20 milljarðar í atvinnuleysisbætur á þessu ári og í apríl reiddu um 50 þúsund manns sig á greiðslur frá stofnuninni. |
10:20 |
28. maí 2020 |
Viljayfirlýsing um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði
Í gær var undirrituð viljayfirlýsing um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði. Í tilkynningu sem birt er á vef Feykis segir að viljayfirlýsingin sé í samræmi við stefnu stjórnvalda um eflingu nýfjárfestinga í íslensku atvinnulífi og samkeppnishæfni Íslands á sviði nýfjárfestinga, sérstaklega á dreifbýlum svæðum líkt og á Norðurlandi vestra. |
16:15 |
27. maí 2020 |
Þáttur um Blönduós á Hringbraut
Í gærkvöldi var frumsýndur nýr þáttur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem nefnist Bærinn minn, sjarmi og sérstaða bæjarfélaganna hringinn í kringum Ísland. Fyrsti þátturinn fjallaði um Blönduós og áhugaverða staði í nágrenninu. Sigmundur Ernir Rúnarsson er umsjónarmaður þáttanna og í þættinum í gær kom hann keyrandi að sunnan og tók hús á nokkrum vel þekktum heimamönnum. |
15:20 |
27. maí 2020 |
Ný viðbygging kostar um 720 milljónir
Áform um viðbyggingu verknámshúss Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki hafa verið uppi um langt skeið, enda brýn þörf á stærra húsnæði. Fyrirhuguð stækkun hefur nú verið kynnt fyrir sveitarfélögunum á Norðurlandi vestra, sem greiða 40% kostnaðarins og ríkið greiðir 60%. Samkvæmt þeim teikningum sem lagðar hafa verið fram, er um að ræða 1.200 fermetra viðbyggingu og er kostnaðurinn áætlaður um 720 milljónir króna, að því er fram kemur á N4.is. |
15:08 |
27. maí 2020 |
Hreinsunarátak í Blönduósbæ
Blönduósbær efnir til hreinsunarátaks næstu daga. Íbúa og fyrirtæki er hvött til sameiginlegs átaks í hreinsun í sínu nærumhverfi. Eigendum bíla og stærri málmhluta sem standa á Blönduósi býðst næstu tvær vikur aðstoð við að færa þá til förgunar þeim að kostnaðarlausu. |
11:31 |
27. maí 2020 |
Álagning skatta birt á morgun
Álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2020 vegna tekna ársins 2019 er að ljúka hjá Skattinum og verður aðgengileg á þjónustusíðu hvers og eins einstaklings á vefnum www.rsk.is á morgun, fimmtudaginn 28. maí.
Álagningin sýnir stöðu inneigna og/eða skulda niður á hvern gjalddaga og hægt verður að skoða einstaka liði álagningarinnar til að sjá útreikninga og nánari upplýsingar. |
15:32 |
26. maí 2020 |
Bærinn minn Blönduós á Hringbraut í kvöld
Í kvöld klukkan 21:30 verður frumsýning á nýjum þætti á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem heitir Bærinn minn, sjarmi og sérstaða bæjarfélaganna, hringinn í kringum Ísland. Í þessum fyrsta þætti verður fjallað um Blönduós og áhugaverða staði í nágrenninu. Sigmundur Ernir Rúnarsson er umsjónarmaður þáttagerðarinnar. |
11:44 |
26. maí 2020 |
Jákvæð rekstrarniðurstaða hjá Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd var rekið með 22,8 milljón króna afgangi í fyrra en afkoman var einnig jákvæð árið 2018, þá um 16,5 milljónir. Tekjur A-hluta voru 587 milljónir og rekstrargjöld án afskrifta námu rúmlega 572 milljónum. Rekstur A-hluta fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld var því jákvæður um 15 milljónir. Rekstrarniðurstaða A-hluta að teknu tilliti til fjármunatekna og afskrifta var neikvæð um tæpar 3 milljónir króna. |
09:39 |
26. maí 2020 |
Barnamenningarsjóður styrkir Handbendi brúðuleikhús
Barnamenningarsjóður Íslands ætlar að styrkja Handbendi brúðuleikhús í Húnaþingi vestra um tvær milljónir króna til að standa að alþjóðlegrar brúðulistahátíðar á Hvammstanga 9.-12. október næstkomandi. Handbendi brúðuleikhús hefur veg og vanda af hátíðinni og verður boðið upp á þrjú sýningarpláss við höfnina og í miðbæ Hvammstanga. |
20:34 |
25. maí 2020 |
Kartöflugarðurinn í Selvík er klár
Selvíkurgarðurinn er klár. Nú er hægt að pota útsæðinu niður. Það er enn pláss fyrir fleiri. |
10:11 |
25. maí 2020 |
SSNV skorar á ráðherra og ríkistjórn
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur sent Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra bókun þar sem fram koma áhyggjur af fjárhagsstöðu sveitarfélaga vegna áhrifa COVID-19. Skorað er á ráðherra að tryggja að ekki komi til skerðinga framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna versnandi afkomu ríkissjóðs. Sú aðgerð væri besta almenna aðgerðin til hjálpar sveitarfélögum í landinu. |
10:09 |
25. maí 2020 |
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu
Aðalfundur Stéttarfélagins Samstöðu, 2020 verður haldinn fimmtudaginn 28. maí klukkan 18:00 á Þverbraut 1 (jarðhæð) á Blönduósi. Á dagskrá er m.a. skýrsla stjórnar, ársreikningur 2019, kosningar og breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs. |