09:13 |
11. maí 2020 |
Hvalreki í Kálfshamarsvík
Tæplega 14 metra langur búrhvalstarfur rak upp í fjöru í Kálfshamarsvík, líklega fljótlega eftir helgina 2.-3. maí, að því er fram kemur í frétt í Morgunblaðinu í dag. Rætt er við Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur, oddvita Skagabyggðar og segir hún að ekki komi til greina að láta hræið rotna á þessum stað, né heldur að grafa það í stórgrýttri fjörunni, þess vegna þurfi að fjarlægja það sem fyrst. |
08:56 |
11. maí 2020 |
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu verða haldnir 18. og 19. maí, í sal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Almenn aðalfundarstörf fara fram hjá öllum deildum sem eru iðnaðarmannadeild, almenn deild, verslunarmannadeild og deild ríkis og sveitarfélaga. |
08:54 |
11. maí 2020 |
Aðalsafnaðarfundur Blönduóssóknar
Aðalsafnaðarfundur Blönduóssóknar verður haldinn í Blönduóskirkju þriðjudaginn 12. maí klukkan 18.00. Venjuleg aðalfundarstörf. |
10:45 |
10. maí 2020 |
Nýtt raðhús á Blönduósi
Byggingu á fimm íbúða raðhúsi er nú að ljúka við Smárabraut 19-27 á Blönduósi. Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur svefnherbergjum og er þeim skilað fullbúnum með innréttingum og helstu tækjum í eldhúsi og á baði. Viðarparket og flísar eru á gólfum og upphitun er með gólfhita. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar. |
10:18 |
10. maí 2020 |
Aðalfundur Júdófélagsins Pardus
Tilkynning frá stjórn
Aðalfundur Júdófélagsins Pardus verður haldinn í Harmonikkusalnum að Þverbraut 1 á Blönduósi þann 18. maí næstkomandi klukkan 18:00 næstkomandi. Venjuleg aðalfundarstörf, allir velkomnir en virðum reglur Víðis. |
12:27 |
08. maí 2020 |
Barnabær auglýsir eftir starfsfólki
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir eftir deildarstjórum í 100% stöður og 50% stöðu sérkennslustjóra frá og með 6. ágúst næstkomandi. Barnabær er fjögurra deilda leikskóli með 64 nemendum og eru börnin frá 8 mánaða til 6 ára aldurs. Deildirnar eru aldursskiptar og er elsti hópurinn staðsettur í öðru húsnæði. |
18:17 |
07. maí 2020 |
Sumarstörf hjá Húnaþingi vestra
Húnaþing vestra auglýsir á vef sínum sumarstörf við ýmis útiverkefni í sumar. Vinnan felst aðallega í því að vinna með sláttuvélar og vélarorf á opnum svæðum og stofnanalóðum sveitarfélagsins. Þá er einnig unnið við almenn garðyrkjustörf og önnur umhverfistengd verkefni. Vinnutímabil er frá byrjun júní og fram í ágúst, eða eftir samkomulagi. Vinnutími er frá klukkan 8:15-16:15 alla virka daga. Á föstudögum er unnið til hádegis. Krafist er stundvísi, ástundunar og reglusemi. |
18:05 |
07. maí 2020 |
Áfram þarf að bóka tíma í blóðprufur
Tilkynning frá HSN
Heilsugæslustöðvarnar á Blönduósi og Skagaströnd benda á að áfram þarf að bóka tíma í blóðprufur, sími 455-4100. |
18:00 |
07. maí 2020 |
Námsmaraþon 10. bekkjar Blönduskóla
Föstudaginn 8. maí til laugardagsins 9. maí ætla nemendur 10. bekkjar Blönduskóla að vera í skólanum og læra í 24 klukkustundir í námsmaraþoni. Námsmaraþonið er hluti af fjáröflun bekkjarins vegna vorferðar sem áætluð er í lok maí. |
13:13 |
07. maí 2020 |
Norðvesturkjördæmi er öflugasta sauðfjárræktarsvæðið
Sauðfé hefur ekki verið færra á Íslandi en nú í 40 ár samkvæmt hagtölum landbúnaðarins sem unnar eru úr haustskýrslum. Bændablaðið fjallar ítarlega um málið í dag og þar kemur fram að ef sauðfjárhald er skoðað eftir landshlutum þá er það öflugast í Norðvesturumdæmi (þar með taldir Vestfirðir), eða 112.085 vetrarfóðraðar kindur. |
11:57 |
07. maí 2020 |
Byggðagleraugun þurfa að vera uppi
Þegar stórar ákvarðanir eru teknar varðandi stuðning við efnahagslífið er mikilvægt að taka tillit til byggðasjónarmiða, segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í þættinum Landsbyggðunum sem sýndur verður á N4 í kvöld klukkan 20:30. Í þættinum ræðir hann um byggðamál og segir m.a. að skilningurinn á þeim og byggðasjónarmiðum hafi aukist stórlega á undanförnum árum. |
16:01 |
06. maí 2020 |
Útibú Arion banka á Blönduósi opnar á ný
Útibú Arion banka á Blönduósi opnar á ný þriðjudaginn 12. maí eftir lokun síðustu vikna vegna kórónuveirufaraldursins. Framvegis verður opið á þriðjudögum og miðvikudögum frá klukkan 12:30-15:00. Viðskiptavinir eru hvattir til þess að nýta áfram stafrænar þjónustuleiðir bankans. Í tilkynningu er bent á að hægt er að framkvæma nánast alla bankaþjónustu í Arion appinu eða Netbanka Arion banka. |
15:51 |
06. maí 2020 |
Götur sópaðar í Húnaþingi vestra
Í næstu viku verða gangstéttir og plön í Húnaþingi vestra smúluð og í framhaldinu verða götur sópaðar. Þeir sem hafa hug á að sópa/smúla úr steyptum innkeyrslum er hvattir til að gera það áður en sópurinn mætir á svæðið, segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra. Áætlað er að sópurinn byrji 18. maí næstkomandi. |
13:17 |
06. maí 2020 |
Nýr og ferskur Feykir kominn út
Feykir kom út í dag en í blaðinu má finna ýmislegt gagnlegt og gott frá Norðurlandi vestra. Til að mynda er viðtal við Sigurð Guðjónsson, gjarnan kenndur við Sjávarborg í Skagafirði, en hann lét af störfum eftir 43 ára starf hjá KS og tengdum fyrirtækjum nú um mánaðamótin. Merkilegt þykir að þrír ættliðir náðu að vinna saman á Vélaverkstæðinu en þeir feðgar Þorgeir sonur Sigga og Jóhann Þór sonarsonur unnu með honum sl. ár. |
10:01 |
06. maí 2020 |
Til félagsmanna í Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Frá stjórn og ferðanefnd FEBH
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu sem öllum eru kunnar, hafa stjórn og ferðanefnd Félags eldri borgara í Húnaþingi, ákveðið að fresta fyrirhugaðri ferð um Snæfellsnes um eitt ár. Ferðin verði þá farin sumarið 2021 og nánar auglýst síðar. |