Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:24 0 0°C
Laxárdalsh. 01:24 0 0°C
Vatnsskarð 01:24 0 0°C
Þverárfjall 01:24 0 0°C
Kjalarnes 01:24 0 0°C
Hafnarfjall 01:24 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 92 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
11:12 10. jún. 2021   Niðurstaða íbúakosningu vonbrigði
Byggðaráð Blönduósbæjar lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðu íbúakosningu um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, þar sem sameining var felld í tveimur sveitarfélögum en samþykkt í öðrum tveimur. Samt sem áður gleðst byggðaráð yfir afgerandi niðurstöðu kosningar í Blönduósbæ „sem sýnir samstöðu íbúa til framþróunnar,“ eins og segir í bókun ráðsins.
10:44 10. jún. 2021   Prjónagraffið setur hátíðlegan prjónasvip á Blönduós
Prjónagraffið er komið upp á Blönduósi og setur svo sannarlega hátíðlegan prjónasvip á bæjarfélagið, nú þegar Prjónagleðin er að hefjast. Um er að ræða listaverk sem prjónarar í bænum hafa prjónað í gegnum tíðina. Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi í fimmta sinn um helgna og fer opnun hátíðarinnar fram í Ósbæ á Þverbraut 1 klukkan 20 annað kvöld.
10:28 10. jún. 2021   Áhugafólk um gömlu dansana
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Félag eldri borgara í Húnaþingi hefur fengir fyrirspurn frá Atla Frey Hjaltasyni hjá Stofnun Árna Magnússonar, um hvort einhverjir hér í héraði, sem hafa stundað gömlu dansana og hafa á þeim áhuga, væru til í að hitta hann í sumar. Hann verður á ferðinni í sumar og ef haft verður samband við hann, vill hann gjarnan heimsækja fólk til að spjalla.
22:04 09. jún. 2021   Gjöf í minningu foreldra sinna
Frá Hollvinasamtökum HSB
Síðastliðinn laugardag færði Jóhann Sigurðsson, matreiðslumaður og listmálari, formanni Hollvinasamtakanna málverk að gjöf til minningar um foreldra sína, Guðrúnu Ingimarsdóttur og Sigurð Kr. Jónsson. Málverkið er af gamla bænum á Blönduósi og verður listaverkið sett upp í aðstandendaíbúðinni.
18:49 09. jún. 2021   Háls-, nef- og eyrnalæknir á HSN
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi miðvikudaginn 23. júní 2021. Tímapantanir í síma 432-4100 milli kl 08:00 og 16:00.
18:40 09. jún. 2021   Fréttir af Krabbameinsfélagi Austur Húnavatnssýslu
Aðalfundur krabbameinsfélags Austur Húnavatnssýslu var haldinn miðvikudaginn 19. maí. Árið litaðist eins og gefur að skilja af heimsfaraldri og var því lítið um fundi, námskeið og fyrirlestra. Á fundinum tók Ásdís Arinbjarnardóttir formlega við gjöf sem félagið gaf til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands Blönduósi á síðasta ári.
12:45 09. jún. 2021   Opnun sumarsýningar Heimilisiðnaðarsafnsins
Textílbókverkasýningin Spor verður opnuð í Heimilisiðnaðarsafninu sunnudaginn 13. júní klukkan 15:00. Eftir opnunina verður boðið upp á kaffi og kleinur. Ókeypis aðgangur á opnunina.
11:52 09. jún. 2021   Fyrst í nýja aðstöðu Útibúsins
Beate Maria Kury hjá Ferðamálastofu er fyrsti starfsmaðurinn í nýrri aðstöðu Útibúsins - skrifstofusetursins á Hvammstanga. Í Útibúinu eru tíu skrifstofurými í björtu og glæsilegu húsnæði á Höfðabraut 6. Val er um annars vegar opin rými sem stúkuð eru af með hljóðdempandi skilrúmum og hins vegar lokaðar skrifstofur.
11:36 09. jún. 2021   Kynningarfundur á niðurstöðum starfshópa
Á morgun verður kynningarfundur á niðurstöðum starfshóps um framtíðarsýn íþrótta- og útivistarsvæðisins í Kirkjuhvammi á Hvammstanga, og starfshóps um fjölnota rými í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra. Fundurinn hefst klukkan 17 og er haldinn í safnaðarheimili Hvammstangakirkju. Íbúar eru hvattir til að kynna sér niðurstöðu starfshópanna.
11:26 09. jún. 2021   Tónlistarskólar landsins láta ljós sitt skína
Á Íslandi eru tæplega 90 tónlistarskólar starfandi með 15 þúsund nemendur. Flest allir þessir skólar taka þátt í Netnótunni, nýjum tónlistarþáttum, sem unnir eru í samstarfi við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Þættirnir verða sýndir á N4 en þar gefst kostur á að skyggnast inn í starfsemi tónlistarskólanna, grasrót tónlistarsköpunar í landinu.
14:54 08. jún. 2021   Þjóðhátíðardeginum fagnað á Hvammstanga
Hátíðarhöld fara fram á Hvammstanga í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní. Dagskráin hefst klukkan 13 með Þjóðhátíðarmessu í Hvammstangakirkju. Klukkan 14 leggur skrúðganga af stað frá Hvammstangakirkju og hálftíma síðar verður ávarp fjallkonu og hátíðarræða flutt af svölum félagsheimilisins. Skemmtidagskrá hefst svo sunnan við félagsheimilið klukkan 15.
13:15 07. jún. 2021   Prjónagleðin haldin í fimmta sinn á Blönduósi
Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi í fimmta sinn um næstu helgi. Markmið hennar er að sameina prjónafólk og skapa því vettvang til þess að hittast og miðla prjónasögum, nýjum hugmyndum og aðferðum, gömlum hefðum og síðast en ekki síst prjónagleðinni í öllum sínum fjölbreytileika. Á Prjónagleðinni er boðið upp á fjölbreytt úrval námskeiða og fyrirlestra auk ýmissa viðburða sem allir tengjast prjónaskap og garni á einhvern hátt. Á hátíðinni er markaðstorg þar sem m.a. handlitarar, garnframleiðendur, prjónaverslanir, handverksfólk og hönnuðir sýna og selja spennandi vörur fyrir prjónalífið.
09:01 07. jún. 2021   Framboðslisti Viðreisnar í NV-kjördæmi kynntur
Viðreisn hefur kynnt framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningarnar í haust. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, leiðir listann. Í 2. sæti er Bjarney Bjarnadóttir, kennari. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, situr í 3. sæti listans og Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðinemi, er í 4. sæti.
17:09 06. jún. 2021   Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fer fram dagana 16. og 19. júní n.k. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram 8. júní í anddyri Félagsheimilisins á Blönduósi frá kl. 17:00 til 19:00. Opið verður svo þann 16. júní frá kl. 16:00 til 18:00 og 19. júní frá kl. 14:00 til 18:00.
15:20 06. jún. 2021   Niðurstaðan vonbrigði
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, oddviti hreppsnefndar Skagabyggðar, segir úrslitin í kosningum um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu vera vonbrigði enda hafi sveitarfélögin lagt mikla vinnu í undirbúning undanfarna mánuði. Hún segir niðurstöðurnar hafi komið sér og fleirum í samstarfsnefnd um sameiningu á óvart og íbúum í Skagabyggð reyndar líka.
  1 2 3 4 5 6 7 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið