10:24 |
29. júl. 2021 |
Nýr búnaður fyrir vettvangsliða Björgunarsveitarinnar Strandar
Í dag afhenti Einar Óli Fossdal, fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, vettvangsliðahópi Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd búnað sem nýtist þeim í útköllum sem undanfari sjúkrabíls. Í maí sóttu átta manns námskeið í vettvangsliða á Skagaströnd og er búnaður liður í að virkja hópinn sem er núna klár í starfið. |
09:45 |
29. júl. 2021 |
270 laxa vika í Miðfjarðará
Yfir 1.700 laxar hafa veiðst í sjö helstu laxveiðiánum í Húnavatnssýslum sem af er sumri. Um svipað leyti í fyrra höfðu veiðst um tvö þúsund laxar í ánum og er laxveiðin því aðeins dræmari nú enda fór hún mjög rólega af stað í sumar. Mest hefur veiðst af laxi í Miðfjarðará eða 634 og var vikuveiðin um 270 laxar. Um svipað leyti í fyrra var búið að veiða yfir 720 laxa úr ánni. |
20:25 |
28. júl. 2021 |
11 í einangrun á Norðurlandi vestra
Ellefu er nú í einangrun vegna COVID-19 á Norðurlandi vestra og 47 eru í sóttkví. Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra sendi tilkynningu frá sér í dag þar sem þessar tölur koma fram. Fjórir eru í einangrun í Húnavatnssýslum og 26 í sóttkví. Sjö eru í einangrun í Skagafirði og 21 í sóttkví. Aðgerðastjórnin minnir íbúa svæðisins að sofna ekki á verðinum og muna eftir persónulegum sóttvörnum. |
12:37 |
28. júl. 2021 |
718 selir sáust í selatalningunni
Alls sáust 718 selir í selatalningunni miklu sem fram fór í ellefta skipti á sunnudaginn. Selasetur Íslands á Hvammstanga vill þakka öllum þeim 58 innlendu og erlendu sjálfboðaliðum sem þátt tóku í talningunni í ár. Í ár fengum við m.a. sjálfboðaliða frá Þýskalandi, Finnlandi, Ísrael, Bandríkjunum, Englandi, Ítalíu, Frakklandi og góðan hóp frá Veraldarvinum, segir í tilkynningu frá Selasetrinu. |
12:51 |
27. júl. 2021 |
Viljayfirlýsing um aukinn flutning á raforku til gagnaversins á Blönduósi
Landsnet og Etix Borealis, sem rekur gagnaver á Blönduósi, hafa undirritað viljayfirlýsingu um aukinn flutning á raforku til gagnaversins. Mun aukningin fara fram í áföngum, þar sem í fyrsta áfanga verður nýtt svokallað snjallnet til að auka flutninginn og tryggja rekstraröryggi flutningskerfisins. |
21:30 |
26. júl. 2021 |
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi samþykktur
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í gær. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, leiðir listann. Í öðru sæti er Haraldur Benediktsson, alþingismaður og bóndi. |
13:08 |
26. júl. 2021 |
Skilyrði fyrir samruna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH Afurða uppfyllt
Samkomulag um samruna Kjarnafæðis, Norðlenska matborðsins og SAH Afurða var undirritað í júlí í fyrra. Samkeppniseftirlitið heimilaði samrunann 12. apríl síðastliðinn með skilyrðum hinn 12. apríl og síðan þá hafa stjórnir og stjórnendur félaganna ásamt ráðgjöfum unnið að því hörðum höndum að uppfylla skilyrðin til að fá heimild til að framkvæma samrunann. Nú hafa þau skilyrði verið uppfyllt og geta samrunafélögin því hafið sameiningarferlið, að því er segir í tilkynningu. |
11:20 |
25. júl. 2021 |
Samningur um akstur fyrir aldraða og hjólastólanotendur
Blönduósbær ætlar að gera rammasamning til reynslu við GN ehf. um akstur fyrir aldraða og þá sem þurfa hjólastólaaðgengi. GN, sem er með samning um skólaakstur fyrir sveitarfélagið, hefur nú þegar keypt fjölnota bifreið með góðu hjólastólaaðgengi og sætum. Aukin þjónusta verður betur kynnt fyrir hlutaðeigandi og sveitarfélögum á svæðinu, að því segir á vef Blönduósbæjar. |
10:29 |
25. júl. 2021 |
Vatnaliljurnar kaffærðar á Hvammstangavelli
George Razvan Chariton og Ingvi Rafn Ingvarsson, leikmenn Kormáks/Hvatar, sáu um að kaffæra Vatnaliljunum á Hvammstangavelli í gær þegar liðin áttust við í elleftu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Leikurinn endaði 5-0 og gerði George Razvan þrennu og Ingvi Rafn skoraði tvö mörk. Heimamenn réðu lögum og lofum í leiknum frá upphafi og til enda. Staðan í hálfleik var 3-0. |
22:06 |
23. júl. 2021 |
Samkomutakmarkanir frá og með sunnudeginum 25. júlí
Hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman verður 200 og nálægðarregla tekin upp þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi sunnudaginn 25. júlí. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 sem hugsaðar eru til skamms tíma á meðan verið er að ná tökum á mikilli fjölgun smita síðustu daga. |
09:49 |
23. júl. 2021 |
Brekkusöngur í Hvamminum í kvöld
Eldur í Húnaþingi er í fullum gangi á Hvammstanga og dagskrá dagsins er sérlega umfangsmikil og fjölbreytt. Má þar nefna kennslu í afrískum dansi og trommuslætti, stuttmyndasýningu, bjórjóga, púttmót, brunaslöngubolta, brekkusöng og tónleika með Stjórninni. Allir ættu að skella sér á Hvammstanga í dag og um helgina og taka þátt í gleðinni sem þar ríkir. |
16:06 |
22. júl. 2021 |
Starfsfólk vantar fyrir komandi sláturtíð
Frá SAH Afurðum
SAH Afurðir ehf. óskar eftir starfsmönnum fyrir komandi sláturtíð. Ýmis störf eru í boði, vinna á sláturlínu, pokun, pökkun og fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Þórmundsdóttir í síma 455 2200 eða á netfanginu gunnhildur@sahun.is - móttaka umsókna er á sama netfang. |
12:46 |
22. júl. 2021 |
Tónleikaröð sóknarnefndar Blönduóskirkju
Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð sóknarnefndar Blönduóskirkju verða haldnir í kirkjunni mánudaginn 26. júlí klukkan 20 þar sem fram koma Olga Vocal Ensemble. Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði SSNV og Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga. Allur aðgangseyrir rennur óskiptur í orgelsjóð kirkjunnar. |
10:12 |
22. júl. 2021 |
Eldurinn tendraður í 19. sinn
Bæjar- og fjölskylduhátíðin Eldur í Húnaþingi var formlega sett á Hvammstanga í gærkvöldi þegar eldurinn var tendraður í 19 sinn. Markmið hátíðarinnar er að leiða fólk á öllum aldri saman og stuðla að samfélagslegri þátttöku. Margt er í boði og hvatt er til almennrar þátttöku.
Dagskráin í dag og næstu daga er fjölbreytt og skemmtileg. |
09:39 |
22. júl. 2021 |
Selatalningin mikla
Selatalningin mikla verður haldin á vegum Selaseturs Íslands á Hvammstanga sunnudaginn 25. júlí klukkan 13. Selasetrið hvetur alla til að taka þátt, hvort sem það eru heimafólk, landeigendur eða ferðamenn á ferð um landið. Með þátttöku gefst fólki kostur á að skoða landsel í sínu náttúrulega umhverfi. |