Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:42 0 0°C
Laxárdalsh. 10:42 0 0°C
Vatnsskarð 10:42 0 0°C
Þverárfjall 10:42 0 0°C
Kjalarnes 10:42 0 0°C
Hafnarfjall 10:42 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 16-30 31-45 af 71 Næstu 46-60
KlukkanDagsetningFrétt
09:22 14. maí 2020   Telja að ferðaþjónustufyrirtækin sín komist í gegnum ástandið
Ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi telja að þau muni komast í gegnum það ástand sem Covid-19 veirufaraldurinn hefur skapað og ætla að vera með opið hjá sér í sumar. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Markaðsstofa Norðurlands gerði í byrjun maí. Meirihluti þeirra er að nýta úrræði ríkisstjórnarinnar, þar af eru flest þeirra að nýta hlutabótaleiðina, að því er segir í tilkynningu.
09:02 14. maí 2020   Sóknaráætlanir fá 200 m.kr. viðbótarfjárveitingu
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti nýlega 200 milljóna króna viðbótarfjárveitingu í sóknaráætlanir landshluta en hún er liður í fjárfestingarátaki stjórnvaldi til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru og styðja við verkefni á landsbyggðinni. Norðurland vestra fær samtals 26 milljónir.
12:00 13. maí 2020   Sigurður Líndal kveður Selasetrið
Sigurður Líndal Þórisson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands síðastliðin fjögur ár, hefur verið ráðinn verkefnastjóri Vestfjarðastofu á Hólmavík. Sigurður tekur við starfinu í byrjun júní og mun leiða verkefnið Brothættar byggðir í Strandabyggð auk þess að sinna öðrum verkefnum tengdum atvinnu- og byggðaþróun hjá Vestfjarðastofu.
14:27 12. maí 2020   Ræsing Norðurlands vestra
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, leitar að góðum viðskiptahugmyndum sem auka flóru atvinnulífs í sveitarfélögunum. Þátttakendur fá leiðsögn og fræðslu um hugmyndavinnu, vöru- og þjónustuþróun, fjármögnun og áætlanagerð. Verkefnið verður unnið í júní og verða áætlanir rýndar í ágúst.
09:57 12. maí 2020   Nýtt húsnæði BAH formlega afhent
Brunavarnir Austur-Húnvetninga eru fluttar í nýtt húsnæði að Efstubraut 2 á Blönduósi. Formleg afhending fór fram síðastliðinn föstudag og að því tilefni kom hluti slökkviliðsmanna saman og skoðaði húsnæðið. Í ljósi aðstæðna var ekki hægt að boða til viðburðar þannig að gestir gætu skoðað húsnæðið en það verður vonandi gert síðar. Í nýja húsnæðinu verður hægt að hafa allar bifreiðar og búnað liðsins undir sama þaki, auk þess sem hægt verður að útbúa ýmsa nauðsynlega aðstöðu.
08:49 12. maí 2020   Hljómdiskur með lögum úr Hárinu
Leikflokkur Húnaþings vestra gaf nýverið út hljómdiskinn Hárið í Húnaþingi. Á disknum má heyra lög úr söngleiknum Hárinu en upptakan fór fram á sýningu leikflokksins í Þjóðleikhúsinu á síðasta ári. Hljóðblöndun önnuðust bræðurnir Gunnar Smári og Sigurvald Ívar Helgasynir. Gaman er að segja frá því að þó Hárið hafi verið gefið út í nokkur skipti þá hafa lögin aldrei verið eins mörg og á þessum diski.
09:13 11. maí 2020   Hvalreki í Kálfshamarsvík
Tæplega 14 metra langur búrhvalstarfur rak upp í fjöru í Kálfshamarsvík, líklega fljótlega eftir helgina 2.-3. maí, að því er fram kemur í frétt í Morgunblaðinu í dag. Rætt er við Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur, oddvita Skagabyggðar og segir hún að ekki komi til greina að láta hræið rotna á þessum stað, né heldur að grafa það í stórgrýttri fjörunni, þess vegna þurfi að fjarlægja það sem fyrst.
08:56 11. maí 2020   Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu verða haldnir 18. og 19. maí, í sal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Almenn aðalfundarstörf fara fram hjá öllum deildum sem eru iðnaðarmannadeild, almenn deild, verslunarmannadeild og deild ríkis og sveitarfélaga.
08:54 11. maí 2020   Aðalsafnaðarfundur Blönduóssóknar
Aðalsafnaðarfundur Blönduóssóknar verður haldinn í Blönduóskirkju þriðjudaginn 12. maí klukkan 18.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
10:45 10. maí 2020   Nýtt raðhús á Blönduósi
Byggingu á fimm íbúða raðhúsi er nú að ljúka við Smárabraut 19-27 á Blönduósi. Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur svefnherbergjum og er þeim skilað fullbúnum með innréttingum og helstu tækjum í eldhúsi og á baði. Viðarparket og flísar eru á gólfum og upphitun er með gólfhita. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
10:18 10. maí 2020   Aðalfundur Júdófélagsins Pardus
Tilkynning frá stjórn
Aðalfundur Júdófélagsins Pardus verður haldinn í Harmonikkusalnum að Þverbraut 1 á Blönduósi þann 18. maí næstkomandi klukkan 18:00 næstkomandi. Venjuleg aðalfundarstörf, allir velkomnir en virðum reglur Víðis.
12:27 08. maí 2020   Barnabær auglýsir eftir starfsfólki
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir eftir deildarstjórum í 100% stöður og 50% stöðu sérkennslustjóra frá og með 6. ágúst næstkomandi. Barnabær er fjögurra deilda leikskóli með 64 nemendum og eru börnin frá 8 mánaða til 6 ára aldurs. Deildirnar eru aldursskiptar og er elsti hópurinn staðsettur í öðru húsnæði.
18:17 07. maí 2020   Sumarstörf hjá Húnaþingi vestra
Húnaþing vestra auglýsir á vef sínum sumarstörf við ýmis útiverkefni í sumar. Vinnan felst aðallega í því að vinna með sláttuvélar og vélarorf á opnum svæðum og stofnanalóðum sveitarfélagsins. Þá er einnig unnið við almenn garðyrkjustörf og önnur umhverfistengd verkefni. Vinnutímabil er frá byrjun júní og fram í ágúst, eða eftir samkomulagi. Vinnutími er frá klukkan 8:15-16:15 alla virka daga. Á föstudögum er unnið til hádegis. Krafist er stundvísi, ástundunar og reglusemi.
18:05 07. maí 2020   Áfram þarf að bóka tíma í blóðprufur
Tilkynning frá HSN
Heilsugæslustöðvarnar á Blönduósi og Skagaströnd benda á að áfram þarf að bóka tíma í blóðprufur, sími 455-4100.
18:00 07. maí 2020   Námsmaraþon 10. bekkjar Blönduskóla
Föstudaginn 8. maí til laugardagsins 9. maí ætla nemendur 10. bekkjar Blönduskóla að vera í skólanum og læra í 24 klukkustundir í námsmaraþoni. Námsmaraþonið er hluti af fjáröflun bekkjarins vegna vorferðar sem áætluð er í lok maí.
Fyrri 16-30 1 2 3 4 5 Næstu 46-60
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið