Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:12 0 0°C
Laxárdalsh. 09:12 0 0°C
Vatnsskarð 09:12 0 0°C
Þverárfjall 09:12 0 0°C
Kjalarnes 09:12 0 0°C
Hafnarfjall 09:12 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 46-60 61-71 af 71  
KlukkanDagsetningFrétt
21:46 29. apr. 2020   Sögulegar kvikmyndir aðgengilegar á nýjum vef
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði á dögunum streymisvefinn Ísland á filmu þar sem einstakt efni í vörslu Kvikmyndasafns Íslands er nú aðgengilegt almenningi. Nú eru á vefnum 300 myndskeið sem sýna Ísland á ótal vegu, mannlíf og menningu, sögulega atburði, náttúru og fjölbreytt mannlíf, þar á meðal úr Hrútafirði og frá Hvammstanga. Elsta efnið á vefnum er frá árinu 1906, en ekki er vitað til þess að eldri kvikmyndir frá Íslandi séu til. Vefurinn er unninn í samstarfi við Dansk Film Institut.
21:24 29. apr. 2020   Söngelskir Skagfirðingar
Skagfirðingar hafa tekið sig saman og gert tónlistarmyndband við lagið Látum sönginn hljóma eftir Geirmund Valtýsson og texta Hjálmars Jónssonar. Tónlistarmaðurinn Sigfús arnar Benediktsson óskaði eftir þátttakendum á Facebook og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Hann segir í samtali við Ríkisútvarpið að hugmyndin hafi komið upp eftir Góða ferð myndbandið.
14:11 29. apr. 2020   Starf flokksstjóra hjá Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur auglýsir á vef sínum eftir flokksstjóra til að hafa umsjón með vinnuhópum hjá vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Flokkstjóri sér um verkstjórn með sumarvinnu unglinga og leiðbeinir yngri ungmennum í vinnuskólanum. Leitað er eftir duglegum einstaklingi, 18 ára eða eldri, sem er lipur í mannlegum samskiptum, skipulagður, ákveðinn og stundvís. Hann þarf að þekkja til garðyrkjustarfa og hafa bílpróf. Umsóknarfestur er til 1. maí næstkomandi.
14:10 28. apr. 2020   Húnavatnssýslur hafa upp á margt að bjóða
Upplifðu Norðurland er opinber ferðavefur í umsjón Markaðsstofu Norðurlands. Á honum má finna ýmsar upplýsingar um áhugaverða staði á Norðurlandi að heimsækja. Ferðasumarið nálgast og í ljósi aðstæðna er líklegt að flestir kjósi að ferðast innanlands. Á vefnum eru m.a. upplýsingar um áhugaverða áningarstaði í Húnavatnssýslum. Og þar eru áhugaverðir bæir og þorp að heimsækja þar sem mannlíf og atvinnulíf er fjölbreytt. Er ekki upplagt að láta sem flesta vita af því?
13:55 28. apr. 2020   Hugmyndir um heitar laugar og sjóböð við Hólanes á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur síðustu misseri unnið að uppbyggingu ferðaþjónustu meðal annars með þátttöku í Cruise Iceland með það fyrir augum að fá skemmtiferðaskip til þess að koma við á Skagaströnd. Á sveitarstjórnarfundi 24. apríl síðastliðinn lagði sveitarstjóri fram minnisblað vegna hugmynda um hönnun og byggingu heitra lauga og sjóbaða við Hólanes. Þá var lögð fram kostnaðaráætlun upp á 5,6 milljónir króna vegna forgreiningar og gerð húsrýmisáætlunar vegna verkefnisins.
13:49 28. apr. 2020   Bregðast við áhrifum COVID-19 á úthlutun og nýtingu byggðakvóta
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um breytingu á úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar. Í tilkynningu segir að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu hafi borist ábendingar um bregðast þyrfti við þeim skilyrðum sem gilda vegna úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa þar sem markaðsaðstæður hafi breyst umtalsvert á síðustu vikum og dögum.
09:22 28. apr. 2020   Heimsóknir leyfðar á HSN á Blönduósi með ákveðnum takmörkunum frá og með 4. maí nk.
Tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heimsóknir verða leyfðar inn á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi frá og með 4. maí næstkomandi með ákveðnum takmörkunum. Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ítrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma. Vonir eru bundnar við að heimsóknir verði rýmkaðar enn frekar í júní 2020. Í fréttinni er bréf til aðstandenda.
16:57 27. apr. 2020   Einstaklingum í sóttkví fjölgar
Samkvæmt nýjum tölum frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra fjölgar einstaklingum á svæðinu sem eru í sóttkví. Ástæðurnar eru sagðar af ýmsum orsökum, t.d. fólk sem kemur erlendis frá, tilflutningur á milli svæða og svo framvegis. Alls eru 13 einstaklingar í sóttkví, flestir í Skagafirði. Engin fjölgun hefur orðið á staðfestum smitum. Höldum áfram vöku okkar og munum að við erum öll almannavarnir, segir í tilkynningu frá aðgerðastjórninni.
13:51 27. apr. 2020   Hróplegt ósamræmi í úthlutun úr framkvæmdasjóði
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag var fjallað um styrki Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, sem er í vörslu Ferðamálastofu. Rætt var við Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóra Blönduósbæjar, sem benti á hróplegt ósamræmi við úthlutun styrkjanna. Veittir voru styrkir til 33 verkefna um land allt vegna ársins 2020 og nam heildarfjárhæðin rúmlega 500 milljónum króna. Einungis 34 milljónir runnu til verkefna á Norðurlandi vestra.
10:03 27. apr. 2020   Aðalfundur Rauða krossins í Húnavatnssýslu
Frá stjórn Rauða krossins í Húnavatnssýslu
Aðalfundur Rauða krossins í Húnavatnssýslu verður haldinn þriðjudaginn 5. maí kl. 17.00 í Harmonikkusalnum Þverbraut 1 Blönduósi. Dagskrá fundarins er hefðbundin samkvæmt 20. gr. laga Rauða krossins á Íslandi. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar, 18 ára og eldri sem greiddu félagsgjöld fyrir 1. janúar 2020. Fundurinn er opin öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum með sjálfboðaliðasamning. Kosningarétt hafa þeir sem greiddu árgjaldið fyrir 1. janúar 2020.
18:56 26. apr. 2020   Minningarkortin
Frá Hollvinasamtökum HSB
Minningarkort Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi fást í afgreiðslu heilbrigðisstofnunarinnar. Sendandi ákveður sjálfur framlag sitt. Reikningur samtakanna er 0307-26-270 og kennitalan er 690505-0400.
Fyrri 46-60 1 2 3 4 5  
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið