Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:15 0 0°C
Laxárdalsh. 11:15 0 0°C
Vatnsskarð 11:15 0 0°C
Þverárfjall 11:15 0 0°C
Kjalarnes 11:15 0 0°C
Hafnarfjall 11:15 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 71 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
15:32 26. maí 2020   Bærinn minn Blönduós á Hringbraut í kvöld
Í kvöld klukkan 21:30 verður frumsýning á nýjum þætti á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem heitir Bærinn minn, sjarmi og sérstaða bæjarfélaganna, hringinn í kringum Ísland. Í þessum fyrsta þætti verður fjallað um Blönduós og áhugaverða staði í nágrenninu. Sigmundur Ernir Rúnarsson er umsjónarmaður þáttagerðarinnar.
11:44 26. maí 2020   Jákvæð rekstrarniðurstaða hjá Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd var rekið með 22,8 milljón króna afgangi í fyrra en afkoman var einnig jákvæð árið 2018, þá um 16,5 milljónir. Tekjur A-hluta voru 587 milljónir og rekstrargjöld án afskrifta námu rúmlega 572 milljónum. Rekstur A-hluta fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld var því jákvæður um 15 milljónir. Rekstrarniðurstaða A-hluta að teknu tilliti til fjármunatekna og afskrifta var neikvæð um tæpar 3 milljónir króna.
09:39 26. maí 2020   Barnamenningarsjóður styrkir Handbendi brúðuleikhús
Barnamenningarsjóður Íslands ætlar að styrkja Handbendi brúðuleikhús í Húnaþingi vestra um tvær milljónir króna til að standa að alþjóðlegrar brúðulistahátíðar á Hvammstanga 9.-12. október næstkomandi. Handbendi brúðuleikhús hefur veg og vanda af hátíðinni og verður boðið upp á þrjú sýningarpláss við höfnina og í miðbæ Hvammstanga.
20:34 25. maí 2020   Kartöflugarðurinn í Selvík er klár
Selvíkurgarðurinn er klár. Nú er hægt að pota útsæðinu niður. Það er enn pláss fyrir fleiri.
10:11 25. maí 2020   SSNV skorar á ráðherra og ríkistjórn
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur sent Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra bókun þar sem fram koma áhyggjur af fjárhagsstöðu sveitarfélaga vegna áhrifa COVID-19. Skorað er á ráðherra að tryggja að ekki komi til skerðinga framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna versnandi afkomu ríkissjóðs. Sú aðgerð væri besta almenna aðgerðin til hjálpar sveitarfélögum í landinu.
10:09 25. maí 2020   Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu
Aðalfundur Stéttarfélagins Samstöðu, 2020 verður haldinn fimmtudaginn 28. maí klukkan 18:00 á Þverbraut 1 (jarðhæð) á Blönduósi. Á dagskrá er m.a. skýrsla stjórnar, ársreikningur 2019, kosningar og breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs.
09:19 25. maí 2020   Rekstrartekjur Vilko hækka um 23% milli ára
Aðalfundur Vilko var haldinn föstudaginn 15. maí síðastliðinn. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að rekstratekjur námu 266 milljónir króna árið 2019 og hækkuðu um 23% milli ára. Rekstargjöld fyrir fjármagnsliði námu 259 milljónir og jukust um 14% milli ára. Minniháttar tap var á rekstri félagsins eða rúmar tvær milljónir króna. Alls greiddi Vilko 90 milljónir í laun og launatengd gjöld í fyrra. Hjá félaginu starfa að jafnaði 12-15 starfsmenn.
09:18 25. maí 2020   Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi
Frá stjórn
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi verður haldinn miðvikudaginn 27. maí 2020, klukkan 14.00 í Félagsheimilinu á Blönduósi. Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins. Kaffiveitingar í boði félagsins. Mætum öll og eigum saman góða stund. Nýir félagar boðnir velkomnir.
09:00 25. maí 2020   Fjöldamörk úr 50 í 200 manns og fleiri tilslakanir
Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi í dag, mánudaginn 25. maí. Þar með verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50 nú, heimilt verður að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, verður heimilt að hafa opið til klukkan 23.00.
15:16 22. maí 2020   Smábæjarleikunum aflýst í sumar
Smábæjarleikunum á Blönduósi hefur verið aflýst í sumar. Þessi ákvörðun er tekin með þungum hug en að vel ígrunduðu máli, segir í tilkynningu frá stjórn knattspyrnudeildar Hvatar. Smábæjarleikarnir hafa verið haldnir 16 sinnum á Blönduósi en þeir eru fyrir knattspyrnulið yngri aldursflokka, bæði pilta og stúlkur. Í fyrra mættu um 400 keppendur og um 300 aðstandendur þeirra á leikana.
15:03 22. maí 2020   Fólkið og náttúran á Norðurlandi vestra
Nýverið var efnt til leiks á Facebook síðu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Þar var fólk beðið um að skrá í athugasemd það sem því líkaði best við að búa á Norðurlandi vestra. Á vef SSNV kemur fram að fjölmargir hafi tekið þátt og að ástæðurnar séu fjölbreyttar þó að rauði þráðurinn sé fólkið og náttúran.
14:54 22. maí 2020   Sumarátaksstörf í Húnaþingi vestra fyrir námsmenn
Húnaþing vestra auglýsir á vef sínum fjögur sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Störfin eru hluti af atvinnuátaki sveitarfélagsins í samstarfi við Vinnumálastofnun til þess að fjölga tímabundið störfum fyrir námsmenn vegna kórónuveirufaraldursins. Störfin eru fjölbreytt m.a. umhverfisstörf sem í felst fegrun umhverfis og ásýndar sveitarfélagsins.
14:47 22. maí 2020   Vinnuskóli Skagastrandar hefst 3. júní
Vinnuskóli Sveitarfélagsins Skagastrandar hefst þriðjudaginn 3. júní næstkomandi og lýkur föstudaginn 31. júlí. Hann er fyrir nemendur sem búsettir eru á Skagaströnd og hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla. Markmið skólans er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu. Skráning fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins eða í gegnum rafræna umsókn.
14:42 22. maí 2020   Auglýsing um skipulagsmál í Blönduósbæ
Blönduósbær auglýsir til kynningar á vef sínum skipulags- og matslýsingu vegna breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 og fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi urðunar og efnistöku í landi Sölvabakka þar sem heildar- og árlegt magn urðunar er aukið. Breytingarnar verða til sýnis á skrifstofu Blönduósbæjar að Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi til 3. júní næstkomandi.
20:35 21. maí 2020   Selvíkurkartöflugarðurinn verður klár á næstu dögum
Tilkynning frá stjórn knattspyrnudeildar Hvatar
Selvíkurgarðurinn verður tilbúinn von bráðar, en það verður auglýst nánar þegar hann verður klár. Það er hins vegar um að gera að hafa samband og panta pláss og eins væri gott að vita ef þeir sem hafa verið með stykki undanfarin ár ætla ekki að vera með í ár.
  1 2 3 4 5 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið