08:09 |
28. jún. 2020 |
Forsetinn endurkjörinn
Guðni Th. Jóhannesson var endurkjörinn forseti Íslands í gær. Hann fékk 92,2% atkvæða en mótframbjóðandi hans, Guðmundur Franklín Jónsson, fékk 7,8%. Stuðningur Guðna í Norðvesturkjördæmi var nær eins og hann var á landsvísu eða 92% en Guðmundur fékk 8%. Fjöldi greiddra atkvæða í Norðvesturkjördæmi voru 14.888. Auðir seðlar voru 382 og 55 ógildir. Kjörsókn var 69,2% í kjördæminu. |
12:34 |
27. jún. 2020 |
Maríudagar að Hvoli í Vesturhópi
Helgina 4.-5. júlí verða Maríudagar haldnir að Hvoli í Vesturhópi. Fjölskyldan frá Hvoli hefur minnst Maríu Hjaltadóttir síðan sumarið 2009 með sýningu og menningarhelgi í byrjun júlí. Að þessu sinni verður sýningin helguð minningu Margrétar Jakobsdóttur Líndal frá Lækjamóti í Víðidal sem helgaði starf sitt því að viðhalda og þróa íslenskt handverk og tóvinnu. |
08:03 |
27. jún. 2020 |
Forsetakosningar í dag
Kosningar til embættis forseta Íslands fara fram í dag. Frambjóðendur eru tveir, Guðmundur Franklín Jónsson og Guðni Th. Jóhannesson. Kjörfundir í Húnavatnssýslum eru í Skagabúð fyrir íbúa Skagabyggðar, Fellsborg fyrir íbúa Skagastrandar, Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi fyrir Blönduósinga, Húnavallaskóla á Húnavöllum fyrir íbúa Húnavatnshrepps og Félagsheimilinu Hvammstanga fyrir íbúa Húnaþings vestra. |
20:14 |
26. jún. 2020 |
Úthlutað úr atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra
Á byggðarráðsfundi Húnaþings vestra í vikunni var samþykkt úthlutun úr atvinnu- og nýsköpunarsjóði sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur rann út 29. maí síðastliðinn og bárust sex umsóknir. Markmið sjóðsins er að hverja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í Húnaþingi vestra. Sjóðnum er einnig ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu. Tveimur milljónum var úthlutað til fimm aðila. |
17:12 |
26. jún. 2020 |
Almenn bjartsýni ríkir í Húnaþingi vestra
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, hefur haft í mörg horn að líta. Hún var svo að segja nýbúin að taka við sem sveitarstjóri þegar óveðrið mikla skall á síðastliðinn vetur og svo kom kórónuveirufaraldurinn í kjölfarið. Íbúum sveitarfélagsins fjölgar umfram landsmeðaltal og almenn bjartsýni ríkir í Húnaþingi vestra. Ragnheiður Jóna var gestur þáttarins Landsbyggðir á N4 í gærkvöldi. |
19:25 |
25. jún. 2020 |
Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs
Tilkynning
Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 30. júní næstkomandi í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og hefst klukkan 14. Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn sjóðsins eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta. |
15:21 |
25. jún. 2020 |
Heimilisiðnaðarsafnið er stolt samfélagsins
Safnagestir Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi eru vel á fjórða þúsund á hverju ári og er rúmlega helmingur gesta erlendir ferðamenn. Mörg dæmi eru um að heimsóknir í safnið sé eitt af aðalmarkmiðum Íslandsheimsóknar. Safnið er eina sinnar tegundar á Íslandi og varðveitir fyrst og fremst menningararf kvenna. Rekstur safnsins hefur verið í járnum undanfarin ár en á síðasta ári var eilítil hagnaður. Þetta kemur m.a. fram í ársskýrslu 2019 sem lesa má á vef Heimilisiðnaðarsafnsins. |
13:19 |
25. jún. 2020 |
Kjörfundir í Skagabyggð og á Skagaströnd
Kjörfundur í Skagabyggð vegna forsetakosninganna á laugardaginn verður í Skagabúð og hefst hann klukkan 12 en stefnt er að því að honum ljúki klukkan 17. Kjörfundurinn á Skagaströnd verður í félagsheimilinu Fellsborg frá klukkan 10-20. Skylt er að framvísa skilríkjum sé þess óskað.
Kjörskrá Skagabyggðar liggur frammi hjá oddvita að Ytra-Hóli 1 til kjördags. |
11:35 |
25. jún. 2020 |
Laxveiði í húnvetnskum ám komin á fullt
Opnunarhollið í Vatnsdalsá lauk veiði á hádegi á þriðjudaginn og landaði 15 löxum sem er ágætu árangur en áin opnaði á laugardaginn. Víðidalsá opnaði einnig á laugardaginn og hafa 29 laxar veiðst síðan þá. Hrútafjarðará opnaði seinni partinn á sunnudaginn og fékkst einn lax og annar daginn eftir. Á þriðjudaginn kom stórlax úr ánni, 96 sentímetra hrygna. |
10:52 |
25. jún. 2020 |
Framlög úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga í Húnavatnssýslum lækka um tugi milljóna
Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafa verið endurskoðuð í takt við nýja áætlun um tekjur sjóðsins. Endurmeta þurfti tekjur sjóðsins vegna efnahagslegra áhrifa af Covid-19 faraldrinum. Hin nýja áætlun um tekjur sjóðsins gerir ráð fyrir að tekjur hans lækki um tæpa 3,8 milljarða króna. Mest lækka framlög sem byggja á skatttekjum ríkissjóðs, að því er segir í tilkynningu. |
10:02 |
25. jún. 2020 |
Lúsmý komið í Húnavatnssýslur
Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Gísla Má Gíslason, prófessor í líffræði við Háskóla Íslands, um lúsmýið sem er að angra fólk hér á landi og þá helst á Suðurlandi og Suðvesturlandi. Hann segir að nokkuð hafi borið á lúsmýi í sumar og að það hafi verið nokkuð áberandi frá Borgarfirði og austur í Fljótshlíð. Sjálfur var hann var við það í Húnavatnssýslum og í fyrra bárust fregnir af lúsmýi í Eyjafirði. |
15:23 |
24. jún. 2020 |
Fallegur regnbogi á Blönduósi
Í gærkvöldi mátti sjá einstaklega fallegan regnboga á Blönduósi. Róbert Daníel Jónsson áhugaljósmyndari og forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi tók meðfylgjandi myndir af þessu ljós- og veðurfræðilega fyrirbæri sem orsakast þegar litróf birtist á himninum á meðan sólin skín á vætu í andrúmslofti jarðar. |
14:54 |
24. jún. 2020 |
Kjörfundur í Húnavatnshreppi
Kjörfundur í Húnavatnshreppi vegna forsetakosninganna á laugardaginn verður í Húnavallaskóla á Húnavöllum og stendur frá klukkan 11 til 19. Gengið er inn um nemendainngang. Skylt er að framvísa skilríkjum sé þess óskað. Kjörskrá Húnavatnshrepps liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins á Húnavöllum til kjördags. |
14:49 |
24. jún. 2020 |
Kjörfundur á Blönduósi
Kjörfundur á Blönduósi vegna forsetakosninganna á laugardaginn verður í Norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar og er gengið inn frá Melabraut. Kjörfundur verður opin frá klukkan 10 árdegis til klukkan 22. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili þrem vikum fyrir kjördag, þann 5. maí 2020. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríki á kjörstað. |
11:01 |
24. jún. 2020 |
Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra
Uppskrift að góðum degi eru þættir á sjónvarpsstöðinni N4 þar sem farið er í ferðalag með Skúla B. Geirdal og Rakel Hinriksdóttur um Norðurland. Fyrsti þátturinn um Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra var sýndur um miðjan mánuðinn en þá var ferðast um Vestur-Húnavatnssýslu. Í öðrum þætti sem sýndur verður á mánudaginn klukkan 20:30 er ferðast um Stóru-Ásgeirsá, Kolugljúfur, Víðigerði, Þrístapa, Vatnsdal og Blönduós. |