18:55 |
11. jan. 2022 |
Tvær gular veðurviðvaranir í röð
Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir vesturhelming landsins. Gul viðvörun tekur gildi á miðnætti fyrir Norðurland vestra en spáð er suðvestan 18-23 m/s með éljum og má búast við lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, sem þýðir varasamt ferðaveður.
Önnur gul viðvörun tekur svo gildi um klukkan 15 á morgun og er í gildi fram á miðjan fimmtudag. |
18:50 |
11. jan. 2022 |
Samstarfssamningur Umf. Hvatar, Umf. Kormáks og Umf. Tindastóls í knattspyrnu yngri flokka félaganna
Um áramótin var undirritaður samningur á milli knattspyrnudeilda Umf. Hvatar, Umf. Kormáks og Umf. Tindastóls um samstarf félagana í yngri flokkum liðanna í knattspyrnu. Mun þetta sameiginlega lið leika á Íslandsmóti KSÍ í knattspyrnu tímabilið 2022. Nær samstarfið yfir þátttöku þriðja og fjórða flokk kvenna og karla og annan flokk karla. Liðin munu keppa undir nafninu Tindastóll/Hvöt/Kormákur. |
18:38 |
11. jan. 2022 |
Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðunin byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett sérstaka reglugerð um skólastarf, líkt og gert hefur verið á fyrri stigum faraldursins. |
18:35 |
11. jan. 2022 |
Biskup auglýsir eftir sóknarpresti í Þingeyraklaustursprestakalli, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi
Biskup Íslands auglýsir eftir sóknarpresti í Þingeyraklaustursprestakalli, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Þingeyraklaustursprestakall samanstendur af fimm sóknum, Auðkúlusókn, Blönduóssókn, Svínavatnssókn, Undirfellssókn og Þingeyrasókn. |
15:50 |
10. jan. 2022 |
Hönnunar- og prjónasamkeppni Prjónagleðinnar
Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi 10.-12. júní 2022 og að venju er blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. Að þessu sinni gengur samkeppnin út að hanna og prjóna lambhúshettu á fullorðinn. Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að vera handprjónuð úr íslenskri ull. |
15:46 |
10. jan. 2022 |
Kormákur/Hvöt fær liðstyrk
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Skagfirski Húnvetningurinn Arnór Guðjónsson er kominn í liði en hann spilaði með Kormáki/Hvöt sumrin 2018 og 2019. Arnór er miðjumaður með næmt auga fyrir spili og fellur því vel inn í hópinn, að því er segir í tilkynningu frá meistaraflokki Kormáks/Hvatar. |
13:05 |
08. jan. 2022 |
Átak gefur ledljós í tækjasal Blöndu
Björgunarfélagið Blanda fékk nýverið rausnarleg gjöf frá rafmagnsverkstæðinu Átaki, sem nýtast mun vel í nýju húsnæð félagsins á Miðholtinu á Blönduósi. Um er að ræða 36 Opple ledljós sem munu lýsa upp tækjasal félagsins og gott betur. Á facebooksíðu Blöndu eru eigendum Átaks færðar þakkir fyrir þessa veglegu gjöf, sem og fyrir stuðninginn sem félagið hefur fengið frá þeim í gegnum tíðina.
|
19:52 |
07. jan. 2022 |
Samningur um vatn fyrir baðlón á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd og RARIK undirrituðu nýverið samning um afhendingu á vatni vegna uppbyggingar á baðlónum við Hólanes á Skagaströnd. Á vef Skagastrandar kemur fram að sveitarfélagið fagni þessum áfanga og sé fullt eftirvæntingar að halda áfram að vinna að þessari mikilvægu uppbyggingu sem glæsilegu baðlónin verða fyrir Norðurland vestra. |
19:42 |
07. jan. 2022 |
Breyttar reglur um sóttkví
Heilbrigðisráðherra hefur breytt reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Með breytingunum er dregið úr takmörkunum á einstaklinga sem þurfa að sæta sóttkví ef þeir eru þríbólusettir gegn Covid. Í tilkynningu segir að um 160.000 einstaklingar séu nú þríbólusettir og því ljóst að breyttar reglur um sóttkví muni gjörbreyta stöðunni. |
14:03 |
07. jan. 2022 |
Meistaraflokkur Kormáks Hvatar leitar að húsnæði
Meistaraflokkur Kormáks Hvatar óskar eftir því að taka á leigu húsnæði á Blönduósi, fyrir þjálfara og leikmenn Kormáks Hvatar, með eða án húsgagna.
Æskilegur leigutími er frá 1. apríl til 30. september 2022.
Frekari upplýsingar fást hjá Lee Ann, framkvæmdastjóra meistaraflokks Kormáks Hvatar, í síma 867-3799 eða á netfangið khknattspyrna@gmail.com |
12:42 |
07. jan. 2022 |
Sjúkra- og hjúkrunardeild óskar eftir hjúkrunarfræðingi og sjúkraliða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til starfa á sjúkra- og hjúkrunardeild. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulag. |
12:14 |
07. jan. 2022 |
Frá Félagi eldri borgara á Blönduósi og Ingunni Maríu sjúkraþjálfara
Gleðilegt ár til allra og vonandi fer plágunni að linna. Leikfiminni sem átti að hefjast mánudaginn 10. janúar klukkan 11 í Íþróttamiðstöðinni er frestað vegna COVID, til 17. janúar. Sama tíma, sama stað. |
23:14 |
06. jan. 2022 |
Ómetanlegt að hafa og eiga gott bakland
Tilkynning frá stjórn Björgunarfélagsins Blöndu
Það er ómetanlegt fyrir okkar starf að hafa og eiga gott bakland. Fyrirtæki og einstaklingar studdu okkur vel á síðasta ári eins og áður og fyrir það erum við einstaklega þakklátir. Björgunarfélagið Blanda þakkar öllum þeim sem að styrktu áramótabrennuna og flugeldasýninguna. |
15:26 |
06. jan. 2022 |
239 tonna byggðakvóti í Húnaþing
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað almennum byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2021/2022. Alls er úthlutað til 50 byggðarlaga í 29 sveitarfélögum. Þrjú byggðarlög fá 300 þorskígildistonna hámarksúthlutun og sextán byggðarlög fá 15 þorskígildistonna lágmarksúthlutun, þar á meðal er Blönduósbær. Skagaströnd fær 154 tonn og Hvammstangi fær 70 tonn. Alls fær Norðurland vestra úthlutað 394 þorskígildistonn. |
14:37 |
06. jan. 2022 |
Kórónuveirutilfellum fjölgar
Skráðum kórónuveirutilfellum fer fjölgandi á Norðurlandi vestra samkvæmt tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á svæðinu. Nú eru 54 í einangrun í landshlutanum og 51 í sóttkví. Skráðum tilfellum hefur m.a. fjölgað í póstnúmerum 540 og 541 (Blönduós; þéttbýli og dreifbýli) og eru þau nú 12 talsins. Eitt tilfelli er skráð í póstnúmeri 545 (Skagaströnd) og fjögur í Húnaþingi vestra. |