09:08 |
31. des. 2021 |
Árið kvatt með flugeldasýningum
Flugeldasýningar verða á þremur stöðum í Húnavatnssýslum í kvöld, gamlárskvöld, á Hvammstanga klukkan 21, Blönduósi klukkan 20:45 og Skagaströnd klukkan 21:30. Áramótabrennum hefur verið aflýst á Hvammstanga og Skagaströnd vegna sóttvarnaaðgerða en á Blönduósi verður brenna á Miðholtinu, með öðru sniði en venjulega. Lokað verður fyrir almenning á Miðholtið og brennan minni en síðustu ár. Kveikt verður í brennunni klukkan 20. |
08:48 |
31. des. 2021 |
Ofsahræðsla dýra vegna flugelda
Áramótin nálgast og minnir Matvælastofnun dýraeigendur á að huga vel að dýrum sínum á meðan á flugeldaskotum stendur. Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta þau valdið slysum á sjálfum sér og öðrum við slíkar aðstæður. Hægt er að fyrirbyggja slys með því að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana fyrir gamlárskvöld og þrettándann.
|
22:49 |
30. des. 2021 |
Frá æskulýðsnefnd Hestamannafélagsins Neista
Hópar-tímar-verð: lesið vandlega til enda
Veturinn 2022 býður Hestamannafélagið Neisti upp á eftirfarandi námskeið fyrir börn og unglinga í reiðhöllinni Arnargerði: Almennt reiðnámskeið fyrir 8 ára og eldri, almennt reiðnámskeið fyrir 7 ára og yngri og Knapamerki 1, 2 og 3. Námskeiðin byrja í janúar og hér koma tímasetningar og hópaskiptingar.
|
17:05 |
30. des. 2021 |
Skýrsla starfshóps um öryggi lendingarstaða
Skýrsla starfshóps um öryggi lendingarstaða hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að niðurstöður og tillögur skýrslunnar muni nýtast vel við endurskoðun samgönguáætlunar og tillögugerð á næstu árum. Verkefnið var skilgreint í flugstefnu í núgildandi samgönguáætlun 2020-2034 sem Alþingi samþykkti sumarið 2020. Starfshópurinn telur m.a. að gera þurfi tilteknar ráðstafanir vegna Blönduósflugvallar. |
13:32 |
30. des. 2021 |
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga gáfu góðar gjafir á árinu
Heilbrigðisstofnunin á Hvammstanga hefur fengið tvær góðar gjafir á árinu frá Hollvinasamtökum stofnunarinnar; fimm rúmdýnur að verðmæti 345.400 krónur og baðvog, m.a. fyrir hjólastóla, að verðmæti 730.000 krónur en hún er greidd að hálfu á móti Krabbameinsfélagi Hvammstangalæknishéraðs. |
13:20 |
30. des. 2021 |
Flugeldamarkaður í Húnabúð
Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Húna er á fullum gangi í Húnabúð á Hvammstanga. Opið er í dag til klukkan 22 og á morgun 9-16. Einnig er hægt að versla í vefverslun sem opin er allan sólarhringinn, slóðin er hunar.flugeldar.is. Hægt er að versla heima og eru pantanir afgreiddar á opnunartíma flugeldamarkaðsins. |
10:32 |
30. des. 2021 |
Ryður snjó af gangstéttum á Hvammstanga
Hlynur Rafn Rafnsson er hvunndagshetja á Hvammstanga en hann tók sig til í haust og keypt sér ruðningstæki og sanddreifara á fjórhjól sitt. Það hefur hann svo notað í vetur til að ryðja snjó af gangstéttum á Hvammstanga, við mikla kátínu bæjarbúa. Hlynur vinnur hjá Vegagerðinni við að byggja brýr og dundar hann sér við snjóruðninginn í fríum og hefur gaman af. Vísir.is segir frá þessu í dag. |
22:31 |
29. des. 2021 |
Dagbjört Dögg íþróttamaður USVH 2021
Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona hefur verið kjörin Íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2021. Dagbjört Dögg var valin varnarmaður ársins í úrvalsdeild kvenna í vor og er byrjunarliðsmaður í A landsliði Íslands. Liðið hennar Valur varð Íslands- og deildarmeistari á síðasta tímabili. |
22:23 |
29. des. 2021 |
Tuttugu og þrír í einangrun á Norðurlandi vestra vegna COVID-19
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra sendi frá sér tilkynningu í dag og birti nýjustu töfluna yfir kórónuveirusmit í landshlutanum. Samkvæmt henni eru 23 í einangrun og 39 í sóttkví vegna COVID-19. Aðgerðastjórnin minnir sérstaklega á handþvott, sprittun, fjöldatakmarkanir og nálgunarregluna og biður fólk að forðast hópamyndun. |
19:48 |
29. des. 2021 |
Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga í vetur
Veturinn 2022 býður Hestamannafélagið Neisti upp á eftirfarandi námskeið fyrir börn og unglinga í reiðhöllinni Arnargerði: Almennt reiðnámskeið fyrir 8 ára og eldri, almennt reiðnámskeið fyrir 7 ára og yngri og knapamerki 1, 2 og 3. Námskeiðin byrja í janúar, tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar síðar. |
19:05 |
29. des. 2021 |
Skattabreytingar um áramót
Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Sem dæmi þá tekur gildi nýtt viðmið um þróun þrepa- og skattleysismarka tekjuskatts einstaklinga. Breytingin er síðasti áfangi skattkerfisbreytinga fyrir einstaklinga síðustu ár, þar sem tekjuskattur hefur lækkað, mest hjá tekjulægri hópum. Þrepa- og skattleysismörk munu þá þróast í takt við vísitölu neysluverðs að viðbættu mati á langtímaframleiðni. |
14:01 |
29. des. 2021 |
Flugeldasala Strandar og Fram
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Strandar og Ungmennafélagsins Fram á Skagaströnd opnaði í gær en hún er á Oddagötu 4, í húsnæði Rauðakrossins. Engin blysför og brenna verður í ár vegna gildandi samkomutakmarkana. Flugeldasýningin verður með öðru sniði vegna sömu ástæðna en hún hefst klukkan 21:30 á gamlárskvöld. |
12:32 |
28. des. 2021 |
Flugeldamarkaður Blöndu opnar í dag
Flugeldamarkaður Björgunarfélagsins Blöndu opnar í dag klukkan 16 en hann er til húsa á Hafnarbraut 6 á Blönduósi. Fólk er beðið um að gæta vel að smitvörnum og grímuskylda er á sölustaðnum. Í tilkynningu frá Blöndu segir að félagið standi nú í sinni stærstu fjárfestingu frá stofnun. Í vor hafi verið skrifað undir kaup á nýju húsnæði fyrir starfsemina og fljótlega á nýju ári fæst það afhent. |
10:33 |
28. des. 2021 |
Feykir velur mann ársins á Norðurlandi vestra
Eins og undanfarin ár stendur héraðsfréttamiðillinn Feykir fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra. Íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis gefst kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar sem teknar voru til greina, þarf af er einn Blönduósingur, Bóthildur Halldórsdóttir. |
10:01 |
28. des. 2021 |
Fékk bol með áletruninni Blönduós sefur aldrei
Á vef Feykis er skemmtileg frétt um Valdimar okkar Guðmannsson en hann er mjög ötull talsmaður Blönduóss og allt það sem húnvetnskt er. Hefur hann óspart notað Facebook til að segja frá því góða og skemmtilega sem fram fer í heimabæ sínum. Oftar er en ekki endar Valli, eins og hann er oftast kallaður, á orðunum Blönduós sefur aldrei. |