Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 3. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:13 0 0°C
Laxárdalsh. 08:13 0 0°C
Vatnsskarð 08:13 0 0°C
Þverárfjall 08:13 0 0°C
Kjalarnes 08:13 0 0°C
Hafnarfjall 08:13 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 31-45 46-60 af 73 Næstu 61-73
KlukkanDagsetningFrétt
15:32 15. nóv. 2022   Styður eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur sent inn umsögn við tillögu til þingsályktunar um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins sem nokkrir þingmenn hafa lagt fram á Alþingi. Með tillögunni er lagt til að stækka þann hluta sem tekinn er af aflaheimildum hvers árs úr 5,3% í 8,3% af úthlutuðum aflaheimildum heildarafla. Í greinargerð með tillögunni segir að félagslegar veiðar séu mikilvæg byggðaráðstöfun, þær efli atvinnu og auki fjárfestingu á sviði sjávarútvegs.
13:37 15. nóv. 2022   Íbúafundi frestað um viku
Kosningu um nýtt byggðarmerki Húnabyggðar lýkur á miðnætti í kvöld. Hægt er að kjósa rafrænt til miðnættis eða koma á skrifstofu Húnabyggðar fyrir klukkan 15 í dag og kjósa þar. Íbúafundurinn sem vera átti í kvöld hefur verið frestað um viku og því verður ekki hægt að kjósa á honum líkt og til stóð, að því er fram kemur í facebookfærslu frá Húnabyggð.
12:42 15. nóv. 2022   Jólasjóðurinn minnir á sig
Frá stjórn Jólasjóðsins
Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig. Sjóðurinn hefur fengið styrki frá félagasamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín. Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs, hefur Félagsþjónustan fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur.
14:13 14. nóv. 2022   Tónleikar Rokkkórsins á Hvammstanga
Rokkkórinn á Hvammstanga heldur tónleika laugardaginn 19. nóvember í Félagsheimilinu Hvammstanga klukkan 21. Flutt verða níu lög við undirspil fimm manna hljómsveitar. Kórmeðlimir munu syngja einsöng og einn gestasöngvari kemur fram, Luis Aquino frá Brasilíu og syngur á móðumáli sínu, portúgölsku. Sigurvaldi Ívar Helgason verður hljóð- og ljósamaður og mun hann útbúa sérstaka ljósasýningu fyrir hvert lag.
11:02 12. nóv. 2022   Kynvættir meðal vors í Listakoti Dóru
Málverkasýningin Kynvættir meðal vors verður opnið í sýningarsal Listakots Dóru í Vatnsdalshólum laugardaginn 19. nóvember klukkan 13-18 og verður hún opin til 20. desember. Listakonan, Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir verður á staðnum opnunarhelgina en eftir það sé eigandi sýningarsalarins um sýninguna. Þema hennar eru kynvættir úr þjóðsögum sem eru nánast gleymdir í skjölum og geymslum.
10:49 12. nóv. 2022   Framkvæmdir í Spákonufellshöfða heimilar
Umhverfisstofnun hefur veitt leyfi fyrir framkvæmdum í Spákonufellshöfða en fyrirhugað er að reisa þar fuglaskoðunarhús, bæta og afmarka bílaplan, bæta merkingar og gera úrbætur og viðbætur á göngustígum fólkvangsins. Spákonufellshöfði er friðlýstur og því öll mannvirkjagerð og hvers konar annað jarðrask óheimilt nema með leyfi Umhverfisstofnunar.
14:24 11. nóv. 2022   Sálmabókamessa í Blönduóskirkju
Sálmabókamessa verður haldin í Blönduóskirkju á sunnudaginn, 13. nóvember klukkan 11. Ný sálmabók verður tekin í notkun og sungnir nýir sálmar í bland við gamla.Kirkjukór Blönduóskirkju leiðir safnaðarsöng við undirleik Eyþórs Franzsonar Wechner. Sr. Edda Hlíf þjónar fyrir altari. Myndir til að lita, kex og djús í boði fyrir krakkana niðri í safnaðarsal meðan á messu stendur. Öll hjartanlega velkomin.
14:19 11. nóv. 2022   Æfðu notkun björgunarklippu
Slökkviliðsmenn Brunavarna Austur-Húnvetninga halda reglulega æfingar til þess að viðhalda faglegri þekkingu sinni og þjálfa færni sína í starfi en nýlega æfðu þeir notkun björgunarklippu. Á facebooksíðu Brunavarna A-Hún. er sagt frá æfingunni og þar má sjá myndir frá henni. Fram kemur að æfingin hafi verið vel sótt og gengið einstaklega vel, þrátt fyrir mikla rigningu.
11:32 10. nóv. 2022   Alvarlegur veikleiki í öryggisinnviðum
Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir
Föstudaginn 4. nóvember síðastliðinn voru íbúar, fyrirtæki og stofnanir á Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir þar sem ljósleiðari fór í sundur vegna framkvæmda í Refasveit. Atvikið afhjúpar alvarlega veikleika í öryggisinnviðum í sveitarfélaginu og ef upp hefðu komið tilfelli er varða líf og heilsu íbúa voru engar bjargir til staðar eða möguleiki til að kalla eftir aðstoð þar sem ekki náðist í 112 símleiðis.
14:56 09. nóv. 2022   Kosið um nýtt nafn á grunnskólann
Hundrað og nítján tillögur bárust skólaráði Grunnskóla Húnabyggðar um nýtt nafn á skólann. Skólaráðið hefur ákveðið að kosið verði um þrjú nöfn en þau eru Grunnskóli Húnabyggðar, Húnaskóli og Þórdísarskóli. Rafræn kosning er í boði en einnig er möguleiki á að kjósa hjá ritara í grunnskólanum á opnunartíma klukkan 7:45-16. Kosningin er einungis fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnabyggð og má aðeins kjósa einu sinni.
09:04 09. nóv. 2022   Hugum að auðlindinni okkar - stillum kerfin og drögum úr sóun
RARIK býður viðskiptavinum hitaveitunnar á Blönduósi og Skagaströnd að fá til sín fagmann til að yfirfara hitakerfi í híbýlum sínum, sér að kostnaðarlausu. Með þessu vill RARIK hvetja viðskiptavini hitaveitunnar til að huga að þessari auðlind samfélagsins og taka þátt í að lágmarka sóun á heita vatninu.
08:51 09. nóv. 2022   Uppskeruhátíð Búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista verður haldin 19. nóvember
Tilkynning frá nefndinni
Uppskeruhátíð Búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista verður haldinn 19. nóvember næstkomandi. Húsið opnar með fordrykk 19:00. Borðhald hefst kl. 20:00. Um matinn mun Hafa Gaman ehf. sjá um og framreiðir þriggja rétta matseðil.
21:12 08. nóv. 2022   Skoðanakönnun um nýtt byggðarmerki Húnabyggðar
Alls bárust 50 tillögur frá 29 hönnuðum í nýtt byggðarmerki Húnabyggðar. Ákveðið hefur verið að gefa öllum íbúum sveitarfélagsins kost á að taka þátt í að velja eitt merki af fjórum. Hægt verður að kjósa með rafrænum hætti og með því að koma á skrifstofu sveitarfélagsins á Hnjúkabyggð 33 og kjósa. Skrifstofa Húnabyggðar er opin alla virka daga klukkan 9-15. Kosning hefst miðvikudaginn 9. nóvember og líkur formlega að kvöldi þriðjudagsins 15. nóvember en þá verður haldinn opinn íbúafundur í Félagsheimilinu á Blönduósi þar sem hægt verður að kjósa.
11:01 08. nóv. 2022   Ljósmyndasýning "Ljósmyndaráðgáta" í Héraðsskjalsafninu á Blönduósi í dag kl. 16:30
Ljósmyndasýning "Ljósmyndaráðgáta" verður haldin á Hnjúkabyggð 30 í húsnæði Héraðsskjalasafns og Bókasafns. Þar verða sýndar nokkrar ljósmyndir, á tjaldi, frá ýmsum tímum og frá ýmsum ljósmyndurum.
09:21 08. nóv. 2022   Hluti starfa verði á Hvammstanga
Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir stuðningi við tillögu sem fyrir liggur um flutning verkefna Innheimtustofnunar sveitarfélaga til sýslumannsins á Blönduósi en vill að hluti þeirra verði á Hvammstanga. Í umsögn byggðarráðs við frumvarpsdrög um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga sem finna má í Samráðsgátt stjórnvalda segir að á Blönduósi hafi byggst upp mikil þekking og góð reynsla af innheimtumálum sem nýtist vel í innheimtu meðlagsgreiðslna.
Fyrri 31-45 1 2 3 4 5 Næstu 61-73
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið