10:01 |
06. maí 2020 |
Til félagsmanna í Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Frá stjórn og ferðanefnd FEBH
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu sem öllum eru kunnar, hafa stjórn og ferðanefnd Félags eldri borgara í Húnaþingi, ákveðið að fresta fyrirhugaðri ferð um Snæfellsnes um eitt ár. Ferðin verði þá farin sumarið 2021 og nánar auglýst síðar. |
10:10 |
05. maí 2020 |
Sumarstörf fyrir háskólanema hjá BioPol á Skagaströnd, sumarið 2020
Frá Biopol
BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd, óskar eftir að ráða tvo háskólanema (í grunn- eða meistaranámi í raunvísindum) til að smíða umhverfismæla fyrir sjávarrannsóknir. Verkefnið verður unnið eftir fyrirmynd OpenCDT með ákveðnum breytingum sem umsækjendur munu þurfa að hanna sjálfir. Mikilvægt er að umsækjendur geti forritað. Starfsstöð umsækjenda verður á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði Stúdenta. |
09:09 |
05. maí 2020 |
Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra auglýsir eftir umsóknum
Á vef Húnaþings vestra er auglýst eftir umsóknum um úthlutun styrkja úr atvinnu- og nýsköpunarsjóði sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur rennur út 29. maí næstkomandi. Markmið sjóðsins er að hverja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í Húnaþingi vestra. Sjóðnum er einnig ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu. |
10:39 |
04. maí 2020 |
Skólastarfið gengið vel í Blönduskóla
Á fundi fræðslunefndar Blönduósbæjar nýverið var komið á framfæri þakklæti og hrósi til starfsmanna grunn- og leikskóla fyrir óeigingjarnt starf við erfiðar aðstæður á undanförnum vikum eða frá því að samkomubann var sett á 16. mars síðastliðinn. Í fundargerð segir að það sé aðdáunarvert hvað tekist hafi að halda úti miklu og góðu skólastarfi í sveitarfélaginu á tímum samkomubanns. Þórhalla Guðbjartsdóttir er skólastjóri Blönduskóla og segir hún að frá 17. mars síðastliðnum hafi kennsla farið fram í öllum bekkjum alla virka daga. |
07:44 |
04. maí 2020 |
Breyttar reglur um samkomur taka gildi
Breytt fyrirkomulag samkomubanns tók gildi á miðnætti. Nú mega 50 manns koma saman í stað 20. Leyfilegt verður að fara í klippingu, nudd og sjúkraþjálfun, og til tannlæknis og læknis eða fara á snyrtistofu, svo dæmi séu tekin. Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar, en skólasund og æfingar eru leyfðar með takmörkunum. Tveggja metra reglan er enn í gildi. |
20:38 |
03. maí 2020 |
Aðgengi að Félags- og skólaþjónustunni
Tilkynning
Nú stendur til að aflétta að hluta þær takmarkanir sem hert samkomubann hefur gilt um vegna COVID-19 og verður það gert í litlum skrefum. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast þó óbreyttar. Við biðlum til fólks að panta tíma áður en komið er á skrifstofuna. |
20:33 |
03. maí 2020 |
Gul veðurviðvörun á mánudaginn
Tími veðurviðvarana er ekki liðinn þó sumarið sé komið samkvæmt dagatalinu. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs sem gildir á morgun fyrir Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra og miðhálendið. Frá klukkan 11 er búist við suðvestanátt, víða 15-23 metrum á sekúndu, en hvassara í vindstrengjum á Tröllaskaga og á Ströndum. Búist er við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 40 m/s. Varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. |
09:27 |
02. maí 2020 |
Hróplegt ósamræmi í úthlutun styrkja
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps brýnir stjórnvöld til þess að horfa til Norðurlands vestra varðandi framtíðarúthlutanir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Eins og fram hefur komið í fréttum veitti sjóðurinn, sem er í vörslu Ferðamálastofu, nýverið styrki til 33 verkefna um land allt vegna ársins 2020 og nam heildarfjárhæðin rúmlega 500 milljónum króna. Einungis 34 milljónir runnu til verkefna á Norðurlandi vestra. |
15:32 |
30. apr. 2020 |
Hrútey opin fyrir almenning frá 5. maí
Sveitarstjórn Blönduósbæjar hefur nú aflétt þeirri tímabundnu lokun sem verið hefur á aðgengi að fólkvanginum í Hrútey á vorin. Eyjan verður því alveg opinn fyrir almenning og heimsóknir gesta frá og með 5. maí næstkomandi. Hvatt er til varfærni í umgengni yfir aðal varptímanna. Aukið verður við merkingar gönguleiða og bætt við upplýsingaskiltum eftir þörfum í eyjunni, það því er fram kemur í tilkynningu frá Blönduósbæ. |
11:43 |
30. apr. 2020 |
Samskiptasáttmáli Húnvetnings
Frá sameiningarnefndinni
Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd hafa átt í viðræðum um mögulega sameiningu sveitarfélaganna undanfarin tvö ár. Um síðustu áramót var ákveðið að setja aukinn kraft í vinnuna og ráðgjafafyrirtækið RR ráðgjöf fengið til samstarfs. Undanfarin misseri hefur verið unnið að framgangi verkefnisins með tíðari fundum sveitarstjórnarfólks, greiningu á helstu hagsmunum Húnvetninga og forgangsröðun aðgerða. |
21:46 |
29. apr. 2020 |
Sögulegar kvikmyndir aðgengilegar á nýjum vef
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði á dögunum streymisvefinn Ísland á filmu þar sem einstakt efni í vörslu Kvikmyndasafns Íslands er nú aðgengilegt almenningi. Nú eru á vefnum 300 myndskeið sem sýna Ísland á ótal vegu, mannlíf og menningu, sögulega atburði, náttúru og fjölbreytt mannlíf, þar á meðal úr Hrútafirði og frá Hvammstanga. Elsta efnið á vefnum er frá árinu 1906, en ekki er vitað til þess að eldri kvikmyndir frá Íslandi séu til. Vefurinn er unninn í samstarfi við Dansk Film Institut. |
21:24 |
29. apr. 2020 |
Söngelskir Skagfirðingar
Skagfirðingar hafa tekið sig saman og gert tónlistarmyndband við lagið Látum sönginn hljóma eftir Geirmund Valtýsson og texta Hjálmars Jónssonar. Tónlistarmaðurinn Sigfús arnar Benediktsson óskaði eftir þátttakendum á Facebook og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Hann segir í samtali við Ríkisútvarpið að hugmyndin hafi komið upp eftir Góða ferð myndbandið. |
14:11 |
29. apr. 2020 |
Starf flokksstjóra hjá Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur auglýsir á vef sínum eftir flokksstjóra til að hafa umsjón með vinnuhópum hjá vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Flokkstjóri sér um verkstjórn með sumarvinnu unglinga og leiðbeinir yngri ungmennum í vinnuskólanum. Leitað er eftir duglegum einstaklingi, 18 ára eða eldri, sem er lipur í mannlegum samskiptum, skipulagður, ákveðinn og stundvís. Hann þarf að þekkja til garðyrkjustarfa og hafa bílpróf. Umsóknarfestur er til 1. maí næstkomandi. |