Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 4. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:40 0 0°C
Laxárdalsh. 20:40 0 0°C
Vatnsskarð 20:40 0 0°C
Þverárfjall 20:40 0 0°C
Kjalarnes 20:40 0 0°C
Hafnarfjall 20:40 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 31-45 46-60 af 73 Næstu 61-73
KlukkanDagsetningFrétt
08:49 12. maí 2020   Hljómdiskur með lögum úr Hárinu
Leikflokkur Húnaþings vestra gaf nýverið út hljómdiskinn Hárið í Húnaþingi. Á disknum má heyra lög úr söngleiknum Hárinu en upptakan fór fram á sýningu leikflokksins í Þjóðleikhúsinu á síðasta ári. Hljóðblöndun önnuðust bræðurnir Gunnar Smári og Sigurvald Ívar Helgasynir. Gaman er að segja frá því að þó Hárið hafi verið gefið út í nokkur skipti þá hafa lögin aldrei verið eins mörg og á þessum diski.
09:13 11. maí 2020   Hvalreki í Kálfshamarsvík
Tæplega 14 metra langur búrhvalstarfur rak upp í fjöru í Kálfshamarsvík, líklega fljótlega eftir helgina 2.-3. maí, að því er fram kemur í frétt í Morgunblaðinu í dag. Rætt er við Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur, oddvita Skagabyggðar og segir hún að ekki komi til greina að láta hræið rotna á þessum stað, né heldur að grafa það í stórgrýttri fjörunni, þess vegna þurfi að fjarlægja það sem fyrst.
08:56 11. maí 2020   Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu verða haldnir 18. og 19. maí, í sal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Almenn aðalfundarstörf fara fram hjá öllum deildum sem eru iðnaðarmannadeild, almenn deild, verslunarmannadeild og deild ríkis og sveitarfélaga.
08:54 11. maí 2020   Aðalsafnaðarfundur Blönduóssóknar
Aðalsafnaðarfundur Blönduóssóknar verður haldinn í Blönduóskirkju þriðjudaginn 12. maí klukkan 18.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
10:45 10. maí 2020   Nýtt raðhús á Blönduósi
Byggingu á fimm íbúða raðhúsi er nú að ljúka við Smárabraut 19-27 á Blönduósi. Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur svefnherbergjum og er þeim skilað fullbúnum með innréttingum og helstu tækjum í eldhúsi og á baði. Viðarparket og flísar eru á gólfum og upphitun er með gólfhita. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
10:18 10. maí 2020   Aðalfundur Júdófélagsins Pardus
Tilkynning frá stjórn
Aðalfundur Júdófélagsins Pardus verður haldinn í Harmonikkusalnum að Þverbraut 1 á Blönduósi þann 18. maí næstkomandi klukkan 18:00 næstkomandi. Venjuleg aðalfundarstörf, allir velkomnir en virðum reglur Víðis.
12:27 08. maí 2020   Barnabær auglýsir eftir starfsfólki
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir eftir deildarstjórum í 100% stöður og 50% stöðu sérkennslustjóra frá og með 6. ágúst næstkomandi. Barnabær er fjögurra deilda leikskóli með 64 nemendum og eru börnin frá 8 mánaða til 6 ára aldurs. Deildirnar eru aldursskiptar og er elsti hópurinn staðsettur í öðru húsnæði.
18:17 07. maí 2020   Sumarstörf hjá Húnaþingi vestra
Húnaþing vestra auglýsir á vef sínum sumarstörf við ýmis útiverkefni í sumar. Vinnan felst aðallega í því að vinna með sláttuvélar og vélarorf á opnum svæðum og stofnanalóðum sveitarfélagsins. Þá er einnig unnið við almenn garðyrkjustörf og önnur umhverfistengd verkefni. Vinnutímabil er frá byrjun júní og fram í ágúst, eða eftir samkomulagi. Vinnutími er frá klukkan 8:15-16:15 alla virka daga. Á föstudögum er unnið til hádegis. Krafist er stundvísi, ástundunar og reglusemi.
18:05 07. maí 2020   Áfram þarf að bóka tíma í blóðprufur
Tilkynning frá HSN
Heilsugæslustöðvarnar á Blönduósi og Skagaströnd benda á að áfram þarf að bóka tíma í blóðprufur, sími 455-4100.
18:00 07. maí 2020   Námsmaraþon 10. bekkjar Blönduskóla
Föstudaginn 8. maí til laugardagsins 9. maí ætla nemendur 10. bekkjar Blönduskóla að vera í skólanum og læra í 24 klukkustundir í námsmaraþoni. Námsmaraþonið er hluti af fjáröflun bekkjarins vegna vorferðar sem áætluð er í lok maí.
13:13 07. maí 2020   Norðvesturkjördæmi er öflugasta sauðfjárræktarsvæðið
Sauðfé hefur ekki verið færra á Íslandi en nú í 40 ár samkvæmt hagtölum landbúnaðarins sem unnar eru úr haustskýrslum. Bændablaðið fjallar ítarlega um málið í dag og þar kemur fram að ef sauðfjárhald er skoðað eftir landshlutum þá er það öflugast í Norðvesturumdæmi (þar með taldir Vestfirðir), eða 112.085 vetrarfóðraðar kindur.
11:57 07. maí 2020   Byggðagleraugun þurfa að vera uppi
Þegar stórar ákvarðanir eru teknar varðandi stuðning við efnahagslífið er mikilvægt að taka tillit til byggðasjónarmiða, segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í þættinum Landsbyggðunum sem sýndur verður á N4 í kvöld klukkan 20:30. Í þættinum ræðir hann um byggðamál og segir m.a. að skilningurinn á þeim og byggðasjónarmiðum hafi aukist stórlega á undanförnum árum.
16:01 06. maí 2020   Útibú Arion banka á Blönduósi opnar á ný
Útibú Arion banka á Blönduósi opnar á ný þriðjudaginn 12. maí eftir lokun síðustu vikna vegna kórónuveirufaraldursins. Framvegis verður opið á þriðjudögum og miðvikudögum frá klukkan 12:30-15:00. Viðskiptavinir eru hvattir til þess að nýta áfram stafrænar þjónustuleiðir bankans. Í tilkynningu er bent á að hægt er að framkvæma nánast alla bankaþjónustu í Arion appinu eða Netbanka Arion banka.
15:51 06. maí 2020   Götur sópaðar í Húnaþingi vestra
Í næstu viku verða gangstéttir og plön í Húnaþingi vestra smúluð og í framhaldinu verða götur sópaðar. Þeir sem hafa hug á að sópa/smúla úr steyptum innkeyrslum er hvattir til að gera það áður en sópurinn mætir á svæðið, segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra. Áætlað er að sópurinn byrji 18. maí næstkomandi.
13:17 06. maí 2020   Nýr og ferskur Feykir kominn út
Feykir kom út í dag en í blaðinu má finna ýmislegt gagnlegt og gott frá Norðurlandi vestra. Til að mynda er viðtal við Sigurð Guðjónsson, gjarnan kenndur við Sjávarborg í Skagafirði, en hann lét af störfum eftir 43 ára starf hjá KS og tengdum fyrirtækjum nú um mánaðamótin. Merkilegt þykir að þrír ættliðir náðu að vinna saman á Vélaverkstæðinu en þeir feðgar Þorgeir sonur Sigga og Jóhann Þór sonarsonur unnu með honum sl. ár.
Fyrri 31-45 1 2 3 4 5 Næstu 61-73
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið