16:46 |
24. des. 2021 |
Gleðileg jól
Jólakveðja frá Húnahorninu
Húnahornið sendir Húnvetningum, nær og fjær, sem og landsmönnum öllum hugheilar jólakveðjur og bestu óskir um gleðirík og ánægjuleg jól. |
14:56 |
23. des. 2021 |
Helgihald um jól 2021 í Austur-Húnavatnssýslu
Skagastrandarprestakall - Þingeyraklaustursprestakall
Um hátíðina verður okkur ekki unnt að hittast í kirkjunum, en við hvetum ykkur til að eiga hátíðlega stund og njóta útsendingar frá sameiginlegri helgistund í Þingeyrakirkju á aðfangadag og Hólaneskirkju á jóladag.
Hlekkur á streymið verður á facebook síðu kirknanna. |
10:25 |
23. des. 2021 |
Jólakveðja frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Félag eldri borgara í Húnaþingi óskar Húnvetningum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Hittumst glöð og góð á nýju ári. |
08:01 |
23. des. 2021 |
Jólakveðja frá félags- og tómstundastarfinu á Blönduósi
Starfsfólk félags- og tómstundastarfs óskar ykkur öllum gleðilegra hátíðar ljóss og friðar. Þökkum ykkur fyrir samveruna á árinu sem er að líða. Sjáumst kát og hress á nýju ári. |
15:10 |
22. des. 2021 |
Aðalfundur sjómannadeildar Stéttarfélags Samstöðu
Frá stjórn
Aðalfundur sjómannadeildar Stéttarfélags Samstöðu verður haldinn á Blönduósi, í Samstöðusalnum, Þverbraut 1, þriðjudaginn 28.desember 2021, klukkan 11:00. Á dagskrá eru almenn aðalfundarstörf, 32. þing SSÍ - samningar - staðan og önnur mál. |
14:18 |
22. des. 2021 |
Jólakveðja frá Héraðsskjalasafni A-Hún.
Héraðsskjalasafn Austur Húnavatnssýslu verður lokað á morgun Þorláksmessudag og einnig á milli jóla og nýárs. Safnið opnar aftur 3. janúar 2022. Starfsfólk safnsins óskar öllum viðskiptavinum svo og öðrum íbúum sýslunnar gleðilegra jóla og þakkar fyrir samskipti á árinu. |
11:18 |
22. des. 2021 |
Jólakveðja frá Barnabæ
Starfsfólk Leikskólans Barnabæjar óskar nemendum, foreldrum og öðrum íbúum Húnavatnssýslu gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Með þökkum fyrir góða samvinnu og samskipti á árinu sem er að líða.
Munum að gleðjast og fagna því sem gott er því þá mun það vaxa og dafna í lífinu okkar. |
10:03 |
22. des. 2021 |
Seinni jólaopnun Heimilisiðnaðarsafnsins
Minnum á seinni jólaopnunina í dag 22. desember, í Heimilisiðnaðarsafninu frá klukkan 14:00 til 16:00. Sitthvað til jólagjafa í litlu safnbúðinni. Heitt súkkulaði og smákökur, aðgangur ókeypis. |
23:18 |
21. des. 2021 |
Vill flýta framkvæmdum við Vatnsnesveg
Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, spurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, hvort hann hyggist beita sér fyrir því að framkvæmdum við Vatnsnesveg verði flýtt enn frekar og meira fjármagni veitt til þess að svo megi verða. Ráðherra sagði veginn sannarlega ekki í ásættanlegu ásigkomulagi en það ætti reyndar við um fleiri malarvegi landsins. |
21:52 |
21. des. 2021 |
Móttaka jólapósts á Blönduósi í samvinnu við jólasveinana
Knattspyrnudeild Hvatar og jólasveinarnir koma pósti og bögglum til skila
Knattspyrnudeild Hvatar tekur á móti jólapósti f.h. jólasveinanna á skrifstofu Hvatar (baka til að Húnabraut 4), þann 22.desember frá kl. 17:00-20:00. Sú skemmtilega hefð hefur verið í mörg ár hjá knattspyrnudeild Hvatar að bjóða upp á þessa skemmtilegu þjónustu við íbúa Blönduósbæjar. |
21:46 |
21. des. 2021 |
Árleg blómasala Styrktarsjóðs Austur-Húnvetninga á Þorláksmessu
Styrktarsjóður Austur-Húnvetninga verður með sína árlegu blómasölu á Þorláksmessu, 23. desember, í Kjörbúðinni á Blönduósi frá kl. 10:00 til 21:00. Styrktarsjóðurinn var stofnaður 16. mars 1974 og er markmið hans að veita héraðsbúum hjálp þegar óvænta erfiðleika ber að höndum. |
13:43 |
21. des. 2021 |
Jólaskógurinn á Gunnfríðarstöðum
Frá Skógræktarfélagi Austur-Húnvetninga
Austur-Húnvetningar komu margir í jólaskóginn á Gunnfríðarstöðum síðastliðinn laugardag 18. desember. Veður mjög gott, hægviðri og hiti. Gott göngufæri í skóginum og veghefill á Bakásavegi á föstudegi en búið að vera ófært vegna hálku víða í hérað. |
13:35 |
21. des. 2021 |
Innanlandstakmarkanir hertar til að sporna við hraðri útbreiðslu smita
Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns og nándarregla 2 metrar í stað 1 með ákveðnum undantekningum. Veitinga- og skemmtistöðum, krám og öðrum stöðum með vínveitingaleyfi ber að loka klukkan 21 á kvöldin. Sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda. Hraðprófsviðburðir verða takmarkaðir við 200 manns. Hvatt verður til fjarvinnu á vinnustöðum eins og kostur er. |
10:45 |
21. des. 2021 |
Vetrarsólstöður í dag
Hann er ekki langur dagurinn í dag, rúmar þrjá klukkustundir milli sólriss og sólarlags í Húnavatnssýslum. Í dag eru vetrarsólstöður og á morgun fer daginn að lengja á ný. Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur. |
10:04 |
21. des. 2021 |
Tónleikar í Hvammstangakirkju í kvöld
Jólahúnar í Húnaþingi vestra ætla að syngja jólin inn í Hvammstangakirkju í kvöld klukkan 20. Miðaverð er 3.000 krónur og er borgað inn við hurð en enginn posi er á staðnum. Allur hagnaður af tónleikunum rennur óskiptur til Margrétar Eikar Guðjónsdóttur sem verður næstu mánuði frá vinnu að jafna sig eftir krabbameinsaðgerð. |