19:52 |
07. jan. 2022 |
Samningur um vatn fyrir baðlón á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd og RARIK undirrituðu nýverið samning um afhendingu á vatni vegna uppbyggingar á baðlónum við Hólanes á Skagaströnd. Á vef Skagastrandar kemur fram að sveitarfélagið fagni þessum áfanga og sé fullt eftirvæntingar að halda áfram að vinna að þessari mikilvægu uppbyggingu sem glæsilegu baðlónin verða fyrir Norðurland vestra. |
19:42 |
07. jan. 2022 |
Breyttar reglur um sóttkví
Heilbrigðisráðherra hefur breytt reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Með breytingunum er dregið úr takmörkunum á einstaklinga sem þurfa að sæta sóttkví ef þeir eru þríbólusettir gegn Covid. Í tilkynningu segir að um 160.000 einstaklingar séu nú þríbólusettir og því ljóst að breyttar reglur um sóttkví muni gjörbreyta stöðunni. |
14:03 |
07. jan. 2022 |
Meistaraflokkur Kormáks Hvatar leitar að húsnæði
Meistaraflokkur Kormáks Hvatar óskar eftir því að taka á leigu húsnæði á Blönduósi, fyrir þjálfara og leikmenn Kormáks Hvatar, með eða án húsgagna.
Æskilegur leigutími er frá 1. apríl til 30. september 2022.
Frekari upplýsingar fást hjá Lee Ann, framkvæmdastjóra meistaraflokks Kormáks Hvatar, í síma 867-3799 eða á netfangið khknattspyrna@gmail.com |
12:42 |
07. jan. 2022 |
Sjúkra- og hjúkrunardeild óskar eftir hjúkrunarfræðingi og sjúkraliða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til starfa á sjúkra- og hjúkrunardeild. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulag. |
12:14 |
07. jan. 2022 |
Frá Félagi eldri borgara á Blönduósi og Ingunni Maríu sjúkraþjálfara
Gleðilegt ár til allra og vonandi fer plágunni að linna. Leikfiminni sem átti að hefjast mánudaginn 10. janúar klukkan 11 í Íþróttamiðstöðinni er frestað vegna COVID, til 17. janúar. Sama tíma, sama stað. |
23:14 |
06. jan. 2022 |
Ómetanlegt að hafa og eiga gott bakland
Tilkynning frá stjórn Björgunarfélagsins Blöndu
Það er ómetanlegt fyrir okkar starf að hafa og eiga gott bakland. Fyrirtæki og einstaklingar studdu okkur vel á síðasta ári eins og áður og fyrir það erum við einstaklega þakklátir. Björgunarfélagið Blanda þakkar öllum þeim sem að styrktu áramótabrennuna og flugeldasýninguna. |
15:26 |
06. jan. 2022 |
239 tonna byggðakvóti í Húnaþing
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað almennum byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2021/2022. Alls er úthlutað til 50 byggðarlaga í 29 sveitarfélögum. Þrjú byggðarlög fá 300 þorskígildistonna hámarksúthlutun og sextán byggðarlög fá 15 þorskígildistonna lágmarksúthlutun, þar á meðal er Blönduósbær. Skagaströnd fær 154 tonn og Hvammstangi fær 70 tonn. Alls fær Norðurland vestra úthlutað 394 þorskígildistonn. |
14:37 |
06. jan. 2022 |
Kórónuveirutilfellum fjölgar
Skráðum kórónuveirutilfellum fer fjölgandi á Norðurlandi vestra samkvæmt tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á svæðinu. Nú eru 54 í einangrun í landshlutanum og 51 í sóttkví. Skráðum tilfellum hefur m.a. fjölgað í póstnúmerum 540 og 541 (Blönduós; þéttbýli og dreifbýli) og eru þau nú 12 talsins. Eitt tilfelli er skráð í póstnúmeri 545 (Skagaströnd) og fjögur í Húnaþingi vestra. |
14:09 |
06. jan. 2022 |
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosningar um sameiningu Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar er hafin hjá sýslumönnum um land allt og hjá sendiráðum erlendis, að því er fram kemur á vefnum Húnvetningur.is. Íbúar sveitarfélaganna sem eiga kosningarétt í kosningunum og eiga þess ekki kost að mæta á kjörstað, geta því greitt atkvæði sitt hjá sýslumönnum og í sendiráðum á opnunartíma fram að kjördegi þann 19. febrúar næstkomandi. |
13:58 |
06. jan. 2022 |
COVID-19 bólusetningar og sýnatökur á HSN Blönduósi
Samkvæmt tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands fara bólusetningar 5-11 ára barna gegn COVID-19 fram á HSN Blönduósi í næstu viku, dagana 10.-14. janúar. Boð og nánari upplýsingar verða send út mánudaginn 10. janúar. Næsti bólusetningardagur gegn COVID-19 fyrir almenning verður í vikunni 17.-21. janúar og verður það nánar auglýst síðar á heimasíðu HSN Blönduósi. |
13:49 |
05. jan. 2022 |
Söfnun jólatrjáa í Húnaþingi vestra
Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Húnaþings vestra verða á ferðinni föstudaginn 7. janúar og mánudaginn 10. janúar til að hirða upp jólatré sem lokið hafa hlutverki sínu þessi jólin hjá íbúum á Hvammstanga og Laugarbakka. Koma þarf jólatrjánum fyrir, úti við lóðamörk. |
13:45 |
05. jan. 2022 |
SSNV tekur þátt í tveim brúarverkefnum NPA
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er þátttakandi í tveimur brúarverkefnum af sjö sem hlotið hafa styrki úr atvinnu- og byggðþróunarsjóði Norðurslóðaáætlunar. Annað verkefnið varðar sjálfbæra hjólaferðamennsku í norðlægum- og dreifðum byggðum þar sem aðrir þátttakendur koma frá Finnlandi, Skotlandi, Færeyjum og Norður-Írlandi. Hitt verkefnið snýst um grænt viðskiptamódel þar sem unnið er með litlum- og meðalstórum fyrirtækjum í að nýta myrkur sem auðlind í vetrarferðamennsku. |
11:36 |
05. jan. 2022 |
Mikil fjölgun smita á Norðurlandi vestra
Kórónuveirusmitum fjölgar hratt á Norðurlandi vestra, líkt og í öðrum landshlutum. Samkvæmt tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra í gær voru 37 í einangrun í landshlutanum og 70 í sóttkví. Í Húnavatnssýslum voru 9 í einangrun og 25 í sóttkví og í Skagafirði voru 28 í einangrun, flestir á Sauðárkróki og 45 í sóttkví. |
14:03 |
04. jan. 2022 |
Framtíðar 50% starf í eldhúsi í Leikskólanum Barnabæ
Leikskólinn Barnabær Blönduósi óskar eftir starfsmanni í eldhús frá 12:00-16:00, um framtíðar starf er að ræða. Vinnutíminn er frá 12:00-16:00. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2022. |
10:16 |
04. jan. 2022 |
Val á manni ársins 2021 í Austur-Húnavatnssýslu
Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu
Líkt og undanfarin 16 ár býður Húnahornið lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna. |