14:24 |
27. jan. 2020 |
SSNV auglýsa eftir verkefnastjóra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa á vef sínum eftir verkefnastjóra til starfa. Um nýtt og spennandi verkefni er að ræða sem hefur það að markmiði að laða fjárfestingar í landshlutann til að fjölga þar störfum. Ráðið er í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2020. |
20:03 |
26. jan. 2020 |
Hreppaþorrablót í Félagsheimilinu á Blönduósi 8. feb.
Tilkynning frá undirbúningsnefnd
Hreppaþorrablótið verður haldið laugardaginn 8. febrúar næstkomandi í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnar klukkan 19:30 en borðhald hefst klukkan 20:30.
Hafa gaman ehf. sér um matinn og veislustjóri verður Ingvar Jónsson. Stulli og co. sjá um að halda uppi trylltum dansi fram á nótt. Skemmtiatriði verða í boði þorrablótsnefndarinnar. |
10:01 |
26. jan. 2020 |
Fundur í Hnitbjörgum 29. janúar
Frá Sögufélaginu Húnvetningi
Sögufélagið Húnvetningur stendur fyrir fundi í sal Félags eldri borgara í Austur-Húnavatnssýslu, í Hnitbjörgum, miðvikudaginn 29. janúar klukkan 14. Þar verða þrír fyrirlesarar; Jóhannes Torfason, Jóhanna Erla Pálmadóttir og Jón Björnsson. Sögufélagið stendur fyrir fundinum í samstarfi við FEB í A-Hún. en í vor verða 82 ár síðan félagið var stofnað. |
09:57 |
26. jan. 2020 |
Opið hús í Nesi listamiðstöð
Listamenn janúar mánaðar hjá Nesi listamiðstöð á Skagaströnd bjóða til opins húss í dag klukkan 14-16. Hvalir, gullgripir, skrifaðar minningar, og greining á því sem við sjáum, heyrum og skráum, segir í auglýsingu frá Nesi. Listamennirnir eru þeir fyrstu á árinu 2020 og heita Sineád Bhreathnach-Cashell, Sandrine Elberg, Katya Kan, Lieselle McMahon, Indigo Perry og Natasha van Netten. |
13:45 |
25. jan. 2020 |
Nýir stjórnarmenn skipaðir í stjórn Byggðasamlags um brunavarnir A-Hún.
Byggðaráð Blönduósbæjar hélt fund í gær þar sem eitt mál var á dagskrá, skipun nýrra stjórnarmanna í stjórn Byggðasamlags um brunavarnir í Austur-Húnavatnssýslu. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hafði á fundi sínum 22. janúar síðastliðinn bókað að stjórn Brunavarna A-Hún. væri ekki rétt kjörin samkvæmt samþykktum og að nauðsynlegt væri að breyta þeim. |
13:27 |
25. jan. 2020 |
Guðsþjónusta í Blönduóskirkju á morgun
Fjölskylduguðsþjónusta í Blönduóskirkju sunnudaginn 26. janúar kl. 11:00. Barnastund í kjallaranum. Allir velkomnir. Kirkjukórinn syngur við undirleik Eyþórs Franson Wechner. |
07:31 |
25. jan. 2020 |
Blöndublótið undirbúið
Æfingar á skemmtiatriðum í fullum gangi
Skemmtilega nefndin, sú sem sér um skemmtiatriðin á þorrablóti Blönduósingar, er á fullu gasi í undirbúningnum. Forvitnilegt verður að sjá hverjir verða þess heiðurs aðnjótandi að verða teknir fyrir í annál ársins 2019. Eitt er víst að annállinn verður bráðskemmtilegur og fjörugur og ýmislegt mun koma á óvart. Eins og allir Blönduósingar vita verður Blöndublótið haldið eftir viku eða laugardaginn 1. febrúar í Félagsheimilinu á Blönduósi. |
07:14 |
25. jan. 2020 |
Kirkjustarfið 2020 hefst með messu
Kirkjustarf Skagastrandarprestakalls árið 2020 hefst með messu í Hólaneskirkju á morgun, sunnudaginn 26. janúar klukkan 11. Í henni sameinast kynslóðir í lofgjörð og bæn. Kór Hólaneskirkju syngur og sunnudagaskólabörnin og söfnuðurinn lætur heldur ekki sitt eftir liggja að taka undir í söng. Organistinn Hugrún Sif spilar undir og Bryndís prestur þjónar fyrir altari og predikar. Gengið verður til altaris. Eftir stundina er boðið upp á veitingar og föndur á kirkjuloftinu. |
07:10 |
25. jan. 2020 |
Hans klaufi á Blönduósi og Hvammstanga
Leikhópurinn Lotta sýnir leikritið Hans klaufi í Félagsheimilinu á Hvammstanga mánudaginn 27. janúar klukkan 17:30 og í Félagsheimilinu á Blönduósi þriðjudaginn 28. janúar næstkomandi klukkan 17:30. Leikhópurinn er landsmönnum að góðu kunnur en hann hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið. Hópurinn, sem hefur sérhæft sig í sýningum utandyra, er nú þriðja veturinn í röð komin inn í hlýjuna. Hópurinn setti Hans klaufa fyrst upp árið 2010, en nú tíu árum síðar, verður rykið dustað af þessu skemmtilega verki og fært nýjum og gömlum áhorfendum í glænýjum búningi. |
11:00 |
24. jan. 2020 |
Samantekt íbúafundar í Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur hélt íbúafund í Húnavallaskóla í lok nóvember á síðasta ári og sóttu um 40 íbúar hann. Jón Gíslason, oddviti sveitarfélagsins setti fundinn og fór yfir áherslur í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020. Því næst fór fram vinnustofa sem ráðgjafar KPMG stýrðu. Á vef Húnavatnshrepps má finna samantekt frá fundinum sem inniheldur niðurstöður vinnustofunnar sem settar eru fram sem vinnugögn til frekari úrvinnslu. |
15:45 |
23. jan. 2020 |
Tilkynning frá Sundlauginni á Blönduósi
Vinsamlegast athugið.
Rarik hefur beðið okkur um að draga úr heitavatnsnotkun í sundlauginni vegna bilana hjá þeim. Við höfum brugðist við því með því að lækka hitastig í sundlaug, loka gufu og lækka hitastig í öðrum heita pottinum.
Stærri heiti potturinn verður áfram opin.
Við látum vita um leið og við getum opnað aftur.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum sem þetta kann að valda. |
14:32 |
23. jan. 2020 |
Alþjóðleg brúðuhátíð á Hvammstanga í haust
Hvammstangi International Pubbet Festival er heiti á nýrri alþjóðlegri brúðuhátíð sem haldin verður á Hvammstanga 9.-12. október í haust. Handbendi brúðuleikhús hefur veg og vanda af hátíðinni og samkvæmt heimasíðu hennar verður boðið upp á þrjú sýningarpláss við höfnina og í miðbæ Hvammstanga. Verið er að velja þátttakendur á hátíðina sem koma víðsvegar að úr heiminum en einnig er leitað eftir áhugasömu brúðugerðar- og brúðusýningarfólki, sem og brúðuframleiðendum til að taka þátt. |
13:19 |
23. jan. 2020 |
Húnavatnshreppur frestaði afgreiðslu á kauptilboði Brunavarna A-Hún.
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps frestaði í gær afgreiðslu á kauptilboði og veitingu á einfaldri ábyrgð vegna fyrirhugaðra kaupa og lántöku Brunavarna Austur-Húnvetninga á fasteign að Efstubraut 2 á Blönduósi. Blönduósbær samþykkti kauptilboðið nýverið og að veita ábyrgð. Í fundargerð sveitarstjórnar Húnavatnshrepps frá því í gær kemur fram að núgildandi samþykktir Byggðasamlags um brunavarnir í Austur-Húnavatnssýslu sé ástæða frestunarinnar. Samkvæmt þeim sé stjórn Brunavarna A-Hún. ekki rétt kjörin og nauðsynlegt sé að breyta þeim áður en lengra er haldið. |
12:45 |
23. jan. 2020 |
Styrkur og þakkir fyrir ómetanlegt framlag
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps þakkar Björgunarfélaginu Blöndu fyrir ómetanlegt framlag í þágu sveitarfélagsins og íbúa þess og hefur ákveðið að styrkja félagið um 450 þúsund krónur. Þetta var ákveðið á fundi sveitarstjórnar í gær þar sem eftirfarandi bókun var samþykkt:
Á síðustu vikum hefur geisað ofsaveður á landinu sem hafði mikil áhrif á daglegt líf íbúa m.a. á Norðurlandi vestra og enn er ekki útséð með hversu miklum skaða veðrið hefur valdið. Það er ljóst að björgunarsveitirnar gegndu veigamiklu hlutverki og án þeirra getum við ekki verið......" |
10:45 |
23. jan. 2020 |
Skorað á stjórnvöld vegna Blönduósflugvallar
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á stjórnvöld að tryggja að Blönduósflugvöllur fái viðhald og aðbúnað sem nauðsynlegt er svo að hann geti sinnt hlutverki sínu sem sjúkraflugvöllur. Hér er í húfi tenging svæðisins við sjúkraflug sem er órjúfanlegur hluti af uppbyggingarhugmyndum um hátæknisjúkrahús á Landspítalareitnum, segir í bókun sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar í gær. |