09:11 |
19. maí 2021 |
Hvanndalsbræður með tónleika á Hvammstanga
Hvanndalsbræður hafa lengi haft á dagskrá sinni að halda tónleika á Hvammstanga og nú telja þeir að loksins sé komið að því. Hljómsveitin ætlar að halda tónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga föstudagskvöldið 28. maí og hefjast þeir stundvíslega klukkan 21. Hljómsveitin mun spila splunkunýtt efni af plötunni Hraundrangar sem kom út á síðasta ári ásamt öllum helstu gömlu slögurunum. |
09:05 |
19. maí 2021 |
Barna- og unglingastarf GÓS
Frá Golfklúbbnum ÓS
Atli Freyr Rafnsson mun annast þjálfun barna og unglinga í sumar. Kennt verður alla fimmtudaga. Fyrsti tíminn verður fimmtudaginn 3. júní klukkan 16:30-18:30. Námskeiðið er innifalið í árgjaldi fyrir skráða félaga ásamt aðgengi að vellinum í sumar. |
11:38 |
18. maí 2021 |
Stjórnskipulagi sameinaðs sveitarfélags skipt á milli Skagastrandar og Blönduóss
Í tillögu samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu er lagt til að fulltrúar í sveitarstjórn verði níu talsins. Gert er ráð fyrir að aðalstarfsstöð stjórnsýslu- og fjármálasviðs, þróunarsviðs og hafnarmála í sameinuðu sveitarfélagi verði á Skagaströnd en að velferðarsvið og framkvæmdasvið verði á Blönduósi ásamt skipulags- og byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra. Sveitarstjóri og annað lykilstarfsfólk mun hafa starfsstöð á báðum stöðum. |
11:17 |
18. maí 2021 |
Kynningarbæklingur um sameiningartillögu
Kynningarbæklingi um sameiningartillöguna samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu er dreift í hvert hús í sýslunni þessa vikuna, í samstarfi við Feyki. Í Feyki eru einnig viðtöl og umfjöllun um verkefnið. Kosið verður um sameiningu Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar laugardaginn 5. júní 2021. |
11:11 |
18. maí 2021 |
Fyrsti íbúafundurinn um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún. er á Skagaströnd í kvöld
Í dag fer fram fyrsti íbúafundurinn þar sem tillaga samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu verður kynnt. Fundurinn fer fram í Fellsborg á Skagaströnd og hefst klukkan 20 í kvöld. Annar fundur verður haldinn á morgun í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst einnig klukkan 20. Íbúum í Austur-Húnavatnssýslu er frjálst að sækja fundi á þeim stöðum og tímasetningum sem þeim best henta. |
11:26 |
17. maí 2021 |
Afhending verðlauna í Ullarþoni og formleg opnun TextílLabs
Það er stór vika framundan hjá Textílmiðstöð Íslands en hún stendur fyrir tveimur viðburðum tengdum HönnunarMars 2021; afhending verðlauna í Ullarþoni og formleg opnun TextílLabs á Blönduósi. Verðlaunin í Ullarþoninu verða afhent af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, fimmtudaginn 20. maí klukkan 17 á svæði Textílfélagsins á Hafnartorgi. Formleg opnun TextílLabs verður á Blönduósi 21. maí klukkan 14. |
11:14 |
17. maí 2021 |
Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra
Barnamenningarhátíð verður haldin í fyrsta sinn á Norðurlandi vestra dagana 14.-24. október næstkomandi. Ýmis námskeið, vinnustofur og listviðburðir munu prýða dagskrá hátíðarinnar, sem hefur fengið nafnið Skrúnaskrall og fer hún fram víðs vegar í landshlutanum. Áhersla verður lögð á fjölbreytni í dagskrá og gott aðgengi. |
11:01 |
17. maí 2021 |
Handbendi hlýtur Eyrarrósina 2021
Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhent í sautjánda sinn í gær við hátíðlega athöfn á Patreksfirði. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar veitti verðlaunin. Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni og er það í fyrsta sinn sem Eyrarrósin fellur í skaut verkefnis á Norðurlandi vestra. |
21:33 |
15. maí 2021 |
Sérstökum takmörkunum aflétt í Skagafirði
Á fundi aðgerðastjórnar almannavarna á Norðurlandi vestra fyrr í dag var tekin sú ákvörðun að óska ekki eftir því við heilbrigðisráðuneytið að framlengd verði sú reglugerð sem sett var fyrir sveitafélagið Skagafjörð og Akrahrepp, vegna hópsmits sem upp kom á svæðinu um og fyrir síðastliðna helgi. Jafnframt munu aðrar sóttvarnaraðgerðir sem aðgerðastjórn greip til og gilda til og með sunnudagsins 16. maí ekki verða framlengdar. |
20:18 |
15. maí 2021 |
Grátlegt tap í fyrsta leik
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðill, hófst í dag á fjórum leikjum. Þar á meðal var leikur Léttis og Kormáks/Hvatar sem hófst klukkan 14 á Hertz vellinum í Reykjavík. Leikurinn var stórskemmtilegur og spennandi. Léttismenn mættu einbeittir til leiks og skoruðu fyrst tvö mörkin en Kormákur/Hvöt náði að minnka muninn áður en flautað var til hálfleiks með marki frá Akil de Freitas. Staðan 2-1 í hálfleik fyrir Létti. |