08:56 |
24. maí 2021 |
Frá Hollvinum HSB
Gleðilegt sumar kæru Húnvetningar, félagsmenn og velunnarar. Hollvinasamtökin áttu 15 ára afmæli þann 19. apríl 2020. Ekki var hægt að halda upp á daginn í fyrra, en nú langar okkur til að færa Heilbrigðisstofnunni á Blönduósi afmælisgjöf af þessu tilefni og leitum við því aðstoðar ykkar. Nýverið var gert upp baðherbergi á sjúkradeild A og þar vantar baðstól. |
12:32 |
23. maí 2021 |
TextílLab opnað á Blönduósi
Á föstudaginn var nýtt TextílLab opnað á Blönduósi á vegum Textílmiðstöðvar Íslands og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður byggðaráðs Blönduósbæjar, ávörpuðu gesti. Lilja og Þórdís Kolbrún klipptu svo í sameiningu á opnunarþráðinn sem var úr ekta húnvetnskri ull. |
18:23 |
22. maí 2021 |
Fyrsti sigur sumarsins
Kormákur/Hvöt tók á móti Vængjum Júpíters á Sauðárkróksvelli í dag þegar leikið var í annarri umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Kormákur/Hvöt réði lögum og lofum á vellinum, skoraði fjögur mörk og vann leikinn. Markaskorarar voru Hilmar Þór Kárason, sem skoraði fyrst tvö mörk leiksins á 2. mínútu og 43. mínútu, Akil Rondel Dexter De Freitas sem skoraði í uppbótartíma fyrri hálfleiks og George Razvan Chariton sem skoraði á 58. mínútu. |
07:43 |
22. maí 2021 |
Dagsferð í Skagafjörð fyrirhuguð
Frá ferðanefnd Félags eldri borgara í Húnaþingi
Fyrirhuguð er dagsferð í Skagafjörð þann 9. júní næstkomandi ef næg þátttaka fæst. Farið verður í Kakalaskála að Kringlumýri, Laugarmýri (blóm og matjurtir) og drukkið kaffi í Áskaffi í Glaumbæ. Aðgangur að Kakalaskála er kr. 2.100 fyrir eldri borgara, ferðakostnaður kr. 2.500, en Félag eldri borgara greiðir fargjald að hálfu. |
14:06 |
21. maí 2021 |
Verðlaun í Ullarþoni afhent
Tilkynnt var um verðlaunahafa í nýsköpunarkeppninni Ullarþoni á svæði Textílfélagsins á Hafnartorgi í Reykjavík í gær. Verðlaunin afhenti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Textílmiðstöð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands héldu Ullarþon dagana 25.-29. mars síðastliðinn. Keppt var í fjórum flokkum: Þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull, blöndun annarra hráefna við ull, ný afurð og stafrænar lausnir og rekjanleiki. |
13:47 |
21. maí 2021 |
Tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum frá 25. maí
Stjórnvöld boða tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum frá og með 25. maí næstkomandi. Megin inntak þeirra er að fjöldatakmörk hækka í 150 manns og slakað verður á grímuskyldu og tveggja metra reglunni. Takmörkunum á gestafjölda sund- og baðstaða, skíða- og tjaldsvæða og safna verður aflétt og sömuleiðis á líkamsræktarstöðvum nema hvar þar mega að hámarki vera 150 manns í hverju rými. |
13:41 |
21. maí 2021 |
Umhverfisakademía bæði gerleg og áhugaverð
Í kynningarbæklingi samstarfsnefndar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um sameiningartillögu kemur fram að það sé framtíðarsýn Húnvetninga að Austur-Húnavatnssýsla verði umhverfisvænasta samfélag landsins. Stofnun umhverfisakademíu og markviss stefnumótun séu meðal fyrstu aðgerða í þá átt. Stuðningur stjórnvalda við stofnun umhverfisakademíu, atvinnuþróun og samgöngubætur eru forsenda þess að framtíðarsýnin nái fram að ganga. |
11:13 |
21. maí 2021 |
Blanda byggir parhús á Blönduósi
Blanda ehf. sem er í eigu Lárusar B. Jónssonar hefur hafið uppbyggingu á parhúsi við Smárabraut 14-16 á Blönduósi. Íbúðirnar tvær eru 125 fermetrar að stærð hvor ásamt 25 fermetra bílskúr. Á vef Blönduósbæjar segir að stefnt sé að því að gera húsið fokheld í lok sumars. Hugmyndin sé að selja íbúðirnar fokheldar, tilbúnar undir tréverk eða fullbúnar til kaupenda. |
11:02 |
21. maí 2021 |
Íbúafundir vegna sameiningar vel sóttir
Íbúafundirnir á Skagaströnd og Blönduósi sem haldnir voru dagana 18. og 19. maí þar sem tillaga samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu var kynnt, voru vel sóttir og þar sköpuðust líflegar umræður. Um 35 manns sátu fundinn Í Fellsborg á Skagaströnd og um 25 í Félagsheimilinu á Blönduósi, en auk þeirra fylgdust samtals um 120 manns með útsendingum frá fundunum tveimur yfir netið, að því er segir á vef samstarfsnefndar, Húnvetningi. |
10:21 |
21. maí 2021 |
Arnar HU1 uppfyllir ekki skilyrði efnalaga
Frystitogarinn Arnar HU1 sem er í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki uppfyllir ekki skilyrði efnalaga vegna notkunar ósoneyðandi efni í kælikerfi skipsins. Umhverfisstofnun hefur knúið á um að Fisk Seafood geri ráðstafanir til úrbóta og lagði fyrirtækið fram úrbótaáætlun sem stofnunin sættir sig ekki við. Nú hefur Fisk Seafood sagt upp allri áhöfn skipsins vegna úrskurðar Umhverfisstofnunar. |
15:36 |
20. maí 2021 |
Tækifæri til hagræðingar í sameinuðu sveitarfélagi
Rekstrarhagræði í yfirstjórn og stjórnsýslu sameinaðs sveitarfélags í Austur-Húnavatnssýslu er áætlað 15-25 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að rekstrarhagræði af sameiningu Blönduskóla og Húnavallaskóla verði 50 milljónir króna á ári. Áætlað er að árleg framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til svæðisins hækki um rúmar 20 milljónir á ári við sameininguna. Þetta kemur m.a. fram í tillögu samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. |
13:52 |
20. maí 2021 |
TextílLab opnar á Blönduósi
TextílLab, fyrsta stafræna smiðjan á sínu sviði hér á landi, verður opnuð með mikilli viðhöfn á morgun, 21. maí, á Þverbraut 1 á Blönduósi og verða tveir ráðherrar við opnunina. Í Fréttablaðinu í dag er fjallað um smiðjuna og rætt við Elsu Arnardóttur, forstöðumann Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi. Hún segir að nýrri tækni fylgi nýir möguleikar. |
12:09 |
19. maí 2021 |
Skorað á stjórnvöld að styrkja minni sveitarfélög til uppbyggingar íþróttamannvirkja
Sveitarstjórn Húnaþings vestra telur mikilvægt að ríkið komið til móts við minni sveitarfélög þegar kemur að uppbyggingu íþróttamannvirkja á landsbyggðinni. Skorar hún á stjórnvöld að koma á fót sjóði sem styrkir minni sveitarfélög á landsbyggðinni til uppbyggingar íþróttamannvirkja. Því miður hefur það sýnt sig að minni sveitarfélög hafa ekki burði til að ráðast ein og sér í stórar framkvæmdir við uppbyggingu íþróttamannvirkja, segir í bókun sveitarstjórnar. |
11:32 |
19. maí 2021 |
Maria Gaskell nýr skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra
Maria Gaskell hefur verið ráðin skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Maria hefur langa reynslu af tónlistarkennslu og stjórnun bæði hér á landi og erlendis og er með B.A. gráðu í tónlist og ensku frá Christ Church háskóla í Bretlandi. Maria hefur einnig lokið P.G.C.E gráðu í tónlistarkennslu frá SPA háskóla í Bretlandi ásamt M.Ed. gráðu í tónlist og skapandi listum frá Exeter háskóla í Bretlandi. |
11:01 |
19. maí 2021 |
One Tree Planted fjármagnar útivistarskóg Skagstrendinga
Skógræktin hefur undirritað samning við One Tree Planted um gróðursetningu 180.000 trjáplantna í hlíðum Spákonufells ofan þéttbýlisins á Skagaströnd. Verkefninu lýkur haustið 2024 og í kjölfarið vex upp skógur sem meðal annars nýtist íbúum Skagastrandar, nágrönnum þeirra og gestum til útivistar. Samningurinn var undirritaður 30. apríl og í honum felst að unnið verður að gróðursetningu næstu þrjú árin á um 140 hektara landi í neðanverðum hlíðum Spákonufells. |