Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 2. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:53 0 0°C
Laxárdalsh. 00:53 0 0°C
Vatnsskarð 00:53 0 0°C
Þverárfjall 00:53 0 0°C
Kjalarnes 00:53 0 0°C
Hafnarfjall 00:53 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 130 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
13:33 04. apr. 2020   Snjóþungur vetur á Skagströnd
Fara þarf 25 ár aftur í tímann eða til ársins 1995 til að finna jafn snjóþungan vetur og verið hefur á Skagaströnd síðustu tæpa fjóra mánuði. Snjóþyngslin hafa valdið miklu álagi á snjómokstursmenn, sem oft hafa þurf að sinna mokstri í snarvitlausum veðrum til að hægt sé að halda hjólum atvinnulífsins gangangi. Þetta kemur fram í pistli Ólafs Bernódussonar í Morgunblaðinu í dag þar sem hann skrifar um bæjarlífið á Skagaströnd.
12:52 04. apr. 2020   Gul og síðan appelsínugul veðurviðvörun
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun á öllu landinu í dag sem breytist síðan yfir í appelsínagula viðvörun þegar líður á helgina. Á Norðurlandi vestra er gul viðvörun í gangi frá klukkan 16:00 í dag til klukkan 08:00 í fyrramálið en þá tekur við appelsínugul viðvörun sem stendur til klukkan 22:00. Ekkert ferðaveður er á meðan appelsínugul viðvörun er í gildi.
15:49 03. apr. 2020   29 í einangrun á Norðurlandi vestra
Samkvæmt nýjum tölum frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra eru 29 einstaklingar í einangrun í landshlutanum vegna Covid-19, flestir í Húnaþingi vestra eða 26 og þrír í Skagafirði. Tveir einstaklingar hafa náð bata. Alls hafa 468 verið í sóttkví á svæðinu frá upphafi en í dag er 91 í sóttkví. Í tilkynningu frá aðgerðastjórn kemur fram að hún hafi verið í sambandi við fyrirtæki og stofnanir á svæðinu undanfarna daga í þeim tilgangi að brýna fyrir aðilum um gerð áætlana um órofinn rekstur starfseininga.
13:41 03. apr. 2020   Kirkjuklukkum hringt til stuðnings heilbrigðisstarfsfólki
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, hefur beðið þá presta sem geta komið því við að sjá til þess að kirkjuklukkum í sóknum þeirra verði hringt klukkan 14 á mánudögum í tvær mínútur til að lýsa yfir stuðningi við heilbrigðisstarfsfólk og önnur þau er koma að málum er lúta að kórónuveirufaraldrinum.
13:15 03. apr. 2020   Samkomubann framlengt vegna COVID-19
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum valdi áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum hafi fjölgað hratt sem hafi þurft á gjörgæslu að halda.
12:53 03. apr. 2020   Vonbrigði með synjun styrkumsóknar
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps lýsir yfir vonbrigðum með að umsókn sveitarfélagsins um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða skuli hafa verið synjað, sérstaklega með tilliti til þess að mikil þörf sé á uppbyggingu ferðamannastaða á svæðinu. Sveitarstjórn hafði sótt um 90 milljón króna styrk fyrir næsta áfanga Þrístapa verkefnisins.
10:27 03. apr. 2020   Breyting á ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga
Tilkynning frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Vegna Covid-19 faraldurs sem nú herjar á landið fellur niður fyrirhuguð ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga þriðjudaginn 7. apríl nk. Þjónustuþegum er bent á að beina erindum sínum rafrænt á netfang embættisins, nordurlandvestra@syslumenn.is eða hafa samband við aðalskrifstofu embættisins í síma 458-2500.
09:38 02. apr. 2020   Prjónagleðinni frestað
Tilkynning frá Textílmiðstöð Íslands
Ákveðið hefur verið að fresta Prjónagleðinni 2020 þar til 11.-13. júní 2021, vegna Covid-19 faraldursins. Til að viðhalda prjóna- og sköpunargleðinni höldum við ótrauð áfram með prjónasamkeppnina, en í ár verður keppnin á netinu og almenningur fær tækifæri til að kjósa sína uppáhaldshönnun. Til að viðhalda sköpunar- og prjónagleðinni á meðan á faraldrinum stendur, munum við halda samkeppnina þrátt fyrir að ekki verði af sjálfri Prjónagleðinni.
08:52 02. apr. 2020   Samkomulag um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur
Vinnumálastofnun og stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga hafa gert samkomulag við Bændasamtök Íslands um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af kórónuveirunni og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum. Samkomulagið er afturvirkt frá 15. mars og gildir til og með 31. maí næstkomandi. Samkvæmt samkomulaginu geta bændur sem veikjast af veirunni ráðið til sín starfsfólk sem verktaka til að sinna afleysingum, að hámarki í 14 daga.
18:23 01. apr. 2020   Gjöf til Hnitbjarga
Frá félagsmálastjóra A-Hún.
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi brugðust við ákalli félagsmálastjóra A-Hún. um afnot af spjaldtölvum með því að færa Hnitbjörgum að gjöf spjaldtölvu og heyrnatól fyrir íbúa. Er það von Hollvinasamtakanna að búnaðurinn komi að góðum notum fyrir heimilisfólkið, svo það geti haft samband við ættingja og vini með myndsamtölum, sér á lagi á meðan heimsfaraldur Covid-19 gengur yfir.
15:53 01. apr. 2020   28 í einangrun á Norðurlandi vestra
vegna Covid-19
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur birt fjölda þeirra sem eru í einangrun, sóttkví og hafa lokið sóttkví í umdæminu í dag, skipt eftir póstnúmerum. Þar kemur fram að 28 einstaklingar eru í einangrun, 25 í Húnaþingi vestra og þrír á Sauðárkróki. Í sóttkví eru 160 einstaklingar og 300 hafa lokið sóttkví. Flestir eru í sóttkví í Húnaþingi vestra eða 75 og þar hafa einnig flestir lokið sóttkví eða 232.
14:09 01. apr. 2020   Gul veðurviðvörun fram til morguns
Á hádegi í dag gekk í gildi gul veðurviðvörun á Ströndum og Norðurlandi vestra en hún tekur einnig til Vestfjarða, Norðurlands eystra og miðhálendisins. Viðvörunin gildir til morguns. Spáð er allhvössum vindi og síðar norðanátt með vindhraða upp á 13-20 metra á sekúndu. Búast má við éljagangi, snjókomu og skafrenningu. Skyggni getur verið lélegt og akstursskilyrði erfið. Éljagangur og hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi og vonskuveður á Öxnadalsheiði sem er lokuð.
10:09 01. apr. 2020   Ræktum lesandann og setjum heimsmet í lestri
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hleypir í dag af stokkunum lestrarverkefni fyrir þjóðina, þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta til lesturs þann tíma sem gefst við núverandi aðstæður. Lestrarverkefnið kallast Tími til að lesa. Heitið er dregið af aðstæðunum sem nú eru uppi, þar sem margir hafa meiri tíma en áður til að lesa og þörfin fyrir hugarleikfimi hefur sjaldan verið meiri. Árangurinn er mældur í tíma, þar sem Íslendingar eru hvattir til að skrá allan sinn lestur á vefsíðunni timitiladlesa.is.
09:58 01. apr. 2020   Miklar fjárfestingar til að vinna gegn samdrætti
Þverárfjallsvegur um Refasveit og Skagastrandarvegur um Laxá eru á meðal verkefna sem falla undir fjárfestingarátak stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Á þessu ári verða 6,5 milljarðar króna settir í samgöngumál, 550 milljónir í uppbyggingu fjarskiptakerfa og 300 milljónir til byggðamála til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins. Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu nýverið um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda þar sem þetta var staðfest. Öll fjárfestingaframlögin bætast við önnur framlög í þessum málaflokkum á fjárlögum.
22:13 31. mars 2020   Myndrænar leiðbeiningar um hvað má og hvað ekki í COVID-19 faraldrinum
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur útbúið skýrar og myndrænar leiðbeiningar um hvað má og hvað má ekki gera á meðan kórónufaraldurinn ríður yfir. Leiðbeiningarnar eru sniðnar að mismunandi aðstæðum fólks, til dæmis fyrir fólk sem er í sóttkví eða fólk í áhættuhópi. Upplýsingaspjöldin eru aðgengileg til útprentunar og eru til á bæði íslensku og ensku.
  1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið