Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 2. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:43 0 0°C
Laxárdalsh. 05:43 0 0°C
Vatnsskarð 05:43 0 0°C
Þverárfjall 05:43 0 0°C
Kjalarnes 05:43 0 0°C
Hafnarfjall 05:43 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 76-90 91-105 af 130 Næstu 106-120
KlukkanDagsetningFrétt
13:55 16. mars 2020   Nýtt skráningarkerfi hjá Héraðsskjalasafni Austur-Húnavatnssýslu
Frá héraðsskjalaverði
Tekið hefur verið upp skráningarkerfi hjá Héraðsskjalasafni Austur-Húnavatnssýslu sem heitir AtoM. Nú þegar hafa verið skráðar um 80 afhendingar og tæplega 10 þúsund ljósmyndir af um það bil 40 þúsund, með upplýsingum um 5.000 þúsund Húnvetninga ásamt um 1.000 þúsund húsum og stöðum í sýslunni. Nú getur fólk skoðað í næði hvaða gögn og ljósmyndir hafa verið afhentar á safnið.
10:46 16. mars 2020   Sumarbústaðurinn gjörónýtur
Lögregla telur að sprengingin sem varð í sumarbúastað í Langadal um helgina hafi verið gassprenging en hún var mjög öflug og er mikið mildi að ekki fór verr. Á vef Fréttablaðsins er fjallað um málið og rætt við Aron Kristján Sigurjónsson sem var í bústaðnum ásamt fimm öðrum. Í fréttinni eru myndir sem sýna að bústaðurinn er gjörónýtur.
10:21 16. mars 2020   Tilkynning til iðkenda félags- og tómstundastarfs aldraðra á Blönduósi
Kæru iðkendur félags- og tómstundastarfs Blönduósi. Viðbrögð Almannavarna á NV-landi vegna samkomubanns verður starfsemin lokuð hjá okkur næstu 4 vikur. Ef ykkur vantar verkefni til að dunda við heima garn ,uppskriftir mun ég að fremsta megni aðstoða ykkur og færa ykkur það heim. Bið ég ykkur að hringja í mig 4524553.
22:03 15. mars 2020   Íþróttastarfið í samkomubanni
Frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
Í samskiptum ÍSÍ við landlækni, sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur komið fram að vegna mikilla anna við að koma af stað starfi í leik- og grunnskólum landsins, í samræmi við þær reglur um nú gilda, hefur ekki náðst að ljúka undirbúningi fyrir þátttöku leik- og grunnskólabarna í íþróttastarfi. Því má gera ráð fyrir því að röskun verði á íþróttastarfi næstu daga þangað til íþróttafélög, skólasamfélagið og sveitarfélög hafa komið sér niður á lausnir til að halda úti starfi með þeim takmörkunum sem munu gilda næstu fjórar vikurnar.
20:01 15. mars 2020   Norðaustan hríð spáð í fyrramálið
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra og gildir hún frá klukkan 05:00 í fyrramálið og til 13:00. Spáð er norðaustan hvassviðri eða stormi, 15-23 metrum á sekúndu, hvassast norðantil. Búist er við talsverðri snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum á Ströndum og á annesjum.
18:44 15. mars 2020   Íþóttamiðstöðin Blönduósi:
Ráðstafanir vegna samkomubanns næstu 4 vikurnar vegna COVID-19 veirunnar
Opnunartímar haldast óbreyttir í Íþróttamiðstöðinni. Opið er í þreksalinn og sundlauginni en mikið af tímum falla niður í íþróttasal, að minnsta kosti til að byrja með. Íþróttafélögin hafa öll aflýst tímunum sínum á morgun, mánudaginn 16. mars í íþróttasal og sundlaug. Skólaíþróttum og sundi er sömuleiðis aflýst á morgun, mánudaginn 16. mars. Upplýsingar um framhaldið með þessa tíma koma á morgun, það er verið að skoða hvað sé best í stöðunni.
18:42 15. mars 2020   Júdóæfingar falla niður
Tilkynning frá stjórn
Í ljósi þess að sett hefur verið samkomubann vegna COVID-19 veirunnar hefur stjórn Pardus ákveðið að fella niður æfingar um óákveðinn tíma. Munum fylgjast með framvindu mála. Munum við fylgjast með því sem bæjaryfirvöldum, UMFÍ og ÍSÍ upp á framhaldið.
13:15 15. mars 2020   Allar æfingar falla niður til 23. mars hjá Umf. Hvöt UPPFÆRÐ FRÉTT
Yfirlýsing frá Ungmennafélaginu Hvöt
Í ljósi þess að sett hefur verið samkomubann vegna COVID-19 veirunnar hafa allar deildir innan Hvatar tekið þá ákvörðun að fella niður allar æfingar mánudaginn 23. mars. Félagið mun vinna í nánu sambandi við bæjaryfirvöld, UMFÍ og ÍSÍ með framhaldið.
13:32 14. mars 2020   Sprenging í sumarbústað í Langadal
Sprenging varð í sumarbústað í Langadal, nærri bænum Geitaskarði, um klukkan ellefu í morgun. Sex voru í bústaðnum þegar sprengingin varð, allt ungt fólk. Þrír voru fluttir á slysadeild á Akureyri. Tveir þeirra voru með sjáanlega áverka. Ekki er þó talið að þeir séu í lífshættu. Sagt er frá þessu á vef Ríkisútvarpsins.
11:32 14. mars 2020   Viðbragðsáætlanir uppfærðar
Sveitarstjórar og starfsfólk sveitarfélaga í Húnavatnssýslum hafa undanfarnar vikur og daga unnið að því að gera ráðstafanir vegna Covid-19 faraldursins. Á Blönduósi er búið að setja upp sviðsmyndir fyrir mögulega þróun mála og viðbrögð og tilnefnd hafa verið svokölluð farsóttarhús. Þá er verið að uppfæra viðbragsáætlanir sem til voru og nýjar gerðar ef þarf. Á vefjum Húnavatnshrepps og Skagastrandar má finna viðbragðsáætlanir sveitarfélaganna og stofnana þeirra en unnið er að uppfærslu annarra viðbragðs- og aðgerðaáætlana.
11:00 14. mars 2020   Aðgerðarstjórnstöð almannavarna á Norðurlandi vestra virkjuð
Búið er að virkja aðgerðarstjórnstöð almannavarna fyrir Norðurland vestra vegna Covid-19 faraldursins og er hún skipuð fulltrúum viðbragðsaðila og heilbrigðisstofnana. Aðgerðarstjórnstöðin er staðsett á Sauðárkróki og sér hún um að samhæfa og stýra aðgerðun í umdæminu. Í tilkynningu segir að lögð hafi verið áhersla á að vinna að samræmingu á viðbrögðum heilsugæslu, sveitarfélaga og viðbragðsaðila.
10:04 14. mars 2020   Viðbrögð Almannavarna á NV-landi vegna COVID-19 faraldursins
Frá Almannavörnum á Norðvesturlandi
Eins og alþjóð veit þá geisar nú skæður veirufaraldur, sem veldur veikinni COVID-19. Síðan síðastliðinn föstudag, 6. mars, hafa almannavarnir á Íslandi starfað á neyðarstigi almannavarna, sem er hæsta viðbúnaðarstig þeirra. Hluti af viðbrögðum almannavarna er samkomubann, sem tekur gildi á miðnætti aðfaranótt mánudagsins 16. mars og stendur í fjórar vikur. Bannið gerir samkomur með fleiri en 100 þáttakendum óheimilar.
09:48 14. mars 2020   Auglýst eftir tónlistarkennurum
Tónlistarskóli Austur-Húnvetninga auglýsir eftir tónlistarkennurum sem geta hafið störf í haust við skólann. Leitað er eftir kennara á tré- og málmblásturshljóðfæri, gítar, bassa og slagverk og þarf hann að vera með tónlistarkennaramenntun eða haldgóða tónlistarmenntun sem nýtist í starfi. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og góða færni á sín hljóðfæri, vera fær í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af að vinna með börnum. Þá þarf viðkomandi að vera metnaðarfullur, áreiðanlegur og áhugasamur.
16:14 13. mars 2020   Uppfært - Ekkert smit staðfest á Norðurlandi vestra
Ekkert Covid-19 smit hefur verið staðfest á Norðurlandi vestra en fyrr í dag sögðum við frá því að eitt smit hefði verið staðfest. Þær upplýsingar voru fengnar af vefnum covid.is en reyndust rangar og hafa þær nú verið leiðréttar. Við sögðum einnig frá því í sömu frétt að á vefjum sveitarfélaga í Húnavatnssýslum eru skilaboð frá sveitarstjórum vegna Covid-19 faraldursins og aðgerða yfirvalda vegna hans. Biðlað er til íbúa að sýna skynsemi.
16:03 13. mars 2020   Fyrirlestri Baldurs Þórs á Hvammstanga frestað
Fyrirlestri Baldurs Þórs Ragnarssonar, sem fara átti fram í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga á morgun klukkan 14 hefur verið frestað. Baldur Þór, sem er þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfubolta og styrktarþjálfari, ætlaði að ræða liðsmenningu og markmiðastjórnum í tengslum við störf sín. Frestunin er fyrirbyggjandi aðgerð vegna Covid-19.
Fyrri 76-90 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næstu 106-120
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið