Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Miðvikudagur, 1. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:36 0 0°C
Laxárdalsh. 01:36 0 0°C
Vatnsskarð 01:36 0 0°C
Þverárfjall 01:36 0 0°C
Kjalarnes 01:36 0 0°C
Hafnarfjall 01:36 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 90 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
11:08 01. okt. 2020   Upplýsingatafla um COVID-19 birt á ný
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur birt að nýju upplýsingatöflu um stöðuna á COVID-19 faraldrinum í umdæminu. Í henni kemur fram að 30. september síðastliðinn voru þrír eru í einangrun vegna kórónuveirusmits, tveir í Húnaþingi vestra og einn á Sauðárkróki. Fjórir voru í sóttkví, tveir á Skagaströnd og tveir í Húnaþingi vestra. Í tilkynningu er athygli vakin á því að þrátt fyrir að fram komi að í umdæminu séu einstaklingar í einangrun þýði það ekki endilega að viðkomandi hafi smitast þar.
21:45 30. sep. 2020   Allir með Feyki á Blönduósi
Í nýjum Feyki vikunnar, sem dreift er inn á öll heimili á Blönduósi að þessu sinni, er aðalefnið tileinkað sveitarfélaginu en miklar framkvæmdir hafa farið fram við kirkjugarð bæjarins. Feykir hafði samband við Valdimar Guðmannsson, formann stjórnar kirkjugarðs Blönduóskirkju, og forvitnaðist um framkvæmdir. Annar Blönduósingur var tekinn tali en Brynjar Þór Guðmundsson, stofnaði bakaríið Húnakaffi í sumar og segir hann frá tilurð þess.
20:19 30. sep. 2020   Skellur í Skessunni
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar mætti ofjörlum sínum í Skessunni í Hafnarfirði í kvöld þegar seinni undanúrslitaleikur 4. deildar í knattspyrnu karla var spilaður. Andstæðingurinn, Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, skoraði sjö mörk í leiknum en Kormákur/Hvöt eitt. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli á Blönduósvelli. Úrslitin þýða að Kormákur/Hvöt spilar um þriðja sæti 4. deildar, gegn Hamri frá Hveragerði á laugardaginn. Með sigri hefði liðið komist í úrslitaleik deildarinnar og fengið sæti í 3. deild að ári.
13:09 30. sep. 2020   Nýr veitustjóri Húnaþings vestra
Sveitarfélagið Húnaþing vestra hefur ráðið Benedikt Rafnsson í starf veitustjóra frá og með 1. nóvember næstkomandi. Benedikt er með BSc. próf í véla- og orkutæknifræði og meistararéttindi í vélvirkjun. Hann hefur starfað sem sölu- og tækniráðgjafi og gæðastjóri hjá Set ehf. og um tíma sem framleiðslustjóri hjá RST Net.
14:35 29. sep. 2020   Verknámshús Blönduskóla rýkur upp
Mikill gangur hefur verið í byggingu verknámshúss við Blönduskóla í sumar. Byggingin er ein hæð og kjallari og tengist gamla skólanum. Á fyrstu hæð byggingarinnar verða kennslustofur fyrir list- og verkgreinar og í kjallaranum verður tæknirými og fleira. Á vef Blönduósbæjar segir að viðbyggingin sé kærkomin og mikið ánægjuefni að öll kennsla fari fram á sama stað en hingað til hafa list- og verkgreinar verið kenndar á Þverbraut 1 og í gamla Kvennaskólanum.
14:19 29. sep. 2020   Malbikun og vinna á skólalóð Blönduskóla
Unnið hefur verið að frágangi skólalóðar Blönduskóla í haust og voru malbikaðir þar nýverið um 1.200 fermetrar og snjóbræðsla sett undir hluta af því svæði. Á næstu dögum verða malbikaðir um 250 fermetrar til viðbótar. Einnig verða jöfnuð grassvæði og gengið frá með túnþökum. Þá verða settar upp rólur með frágengnu yfirborði. Mikið rask hefur fylgt þessum framkvæmdum enda verið að móta skólalóðina að kastalasvæðinu og að nýbyggingu skólans.
11:01 29. sep. 2020   Opið hús í Textílsmiðstöðinni
Listamenn september mánaðar í Textílmiðstöðinni halda opið hús miðvikudaginn 30. september, klukkan 14-18. Annika Andersen er vefari og jurtarlitar bandið sitt. Renée Rudebrant saumar út, skrifar útsaumsbækur og heldur námskeið. Báðar koma frá Svíþjóð og hafa dvalið í mánuð á Blönduósi. Annika verður með sín verk í bílskúrsgalleríi en Renée verður í vinnustofu Kvennaskólans á annarri hæð.
10:08 29. sep. 2020   Áhyggjur af lágu afurðaverði til bænda
Byggðarráð Húnaþings vestra og sveitastjórnir Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps lýsa yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðastöðvaverðs nú í haust. Í bókun sem samþykkt var á fundir byggðarráðs Húnaþings vestra nýverið segir að sauðfjárrækt sé mikilvæg búgrein þessara sveitarfélaga og ein af forsendum búsetu í dreifbýli. Rúmlega 21% af framleiðslu kindakjöts árið 2019 fór fram í þessum sveitarfélögum.
09:58 29. sep. 2020   Auglýst eftir framkvæmdastjóra við Selasetrið
Laus er staða framkvæmdastjóra við Selasetur Íslands á Hvammstanga. Um er að ræða fullt starf í eitt ár með möguleika á framlengingu. Selasetur Íslands var stofnað árið 2005 og hlutverk þess er að standa fyrir rannsóknum á selum og náttúrutengdri ferðaþjónustu. Megin markmið setursins er að efla náttúrutengda ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu selaskoðunar á svæðinu og standa fyrir fjölbreyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland.
15:27 28. sep. 2020   Gamla Blöndubrúin fær nýtt hlutverk
Í Morgunblaðinu í dag er heilsíðuumfjöllun framkvæmdir Blönduósbæjar við að bæta aðgengi út í Hrútey. Verkið hófst árið 2018 þegar bílastæði við Norðurlandsveg var malbikað og göngustígur niður að brúarstæðinu var breikkaður og malbikaður. Eftir er að setja upp salernisaðstöðu og steypa undirstöður fyrir nýja göngubrú. Nýlega var samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir uppsteypun og verið er að gera gömlu Blöndubrúna upp sem nýja göngubrú.
14:30 28. sep. 2020   Þrír í einangrun vegna kórónuveirusmits á Norðurlandi vestra
Þrír eru nú í einangrun á Norðurlandi vestra vegna COVID-19 smits og fimm eru í sóttkví, samkvæmt nýjum upplýsingum á covid.is. Þar kemur fram að í gær hafi 39 kórónuveirusmit greinst innanlands, þar af 33 í einkennasýnatökum og 6 í sóttkvíar- og handahófsskimunum. Áttatíu og sjö prósent þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu eða 34 manns.
16:28 26. sep. 2020   Embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Á vef Stjórnarráðsins segir að sýslumenn fari með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, eftir því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveði á um. Auk hefðbundinna verkefna sýslumannsembætta þá annist Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfi samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og rekstri innheimtumiðstöðvar.
16:03 26. sep. 2020   Jafntefli á Blönduósvelli
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tók á móti Íþróttafélagi Hafnarfjarðar á Blönduósvelli í dag í undanúrslitum 4. deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu karla. ÍH skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu og staðan í hálfleik 0-1. Ingvi Rafn Ingvarsson jafnaði leikinn fyrir Kormák/Hvöt á 54. mínútu og ekki urðu mörkin fleiri. Liðin sættust því á jafnan hlut í dag en seinni leikur liðanna í undanúrslitunum fer fram í Hafnarfirði næstkomandi miðvikudag.
11:42 26. sep. 2020   Sunnudagaskóli í Hólaneskirkju 27. sept. kl. 11
Frá Skagastrandarprestakalli
Kæru vinir, í ljósi aukinna smita undanfarið höfum við í kirkjunni tekið þá ákvörðun að fresta að sinni hefðbundinni messu. Við lítum svo á að það sé óábyrgt að boða til samverustundar með fullorðnum safnaðarmeðlimum og kórfólki. Við erum ennþá að læra að lifa með Covid-19. En við ætlum að hafa sunnudagaskóla, sem verður með hefðbundnu sniði. Við biðjum fallegra bæna, syngjum, hlustum á Biblíusögu og sjáum leikrit.
11:29 26. sep. 2020   Tveir í einangrun vegna kórónuveirusmits á Norðurlandi vestra
Tveir eru nú í einangrun á Norðurlandi vestra vegna COVID-19 smits og þrír eru í sóttkví, samkvæmt nýjum upplýsingum á covid.is. Þar kemur fram að í gær hafi 38 kórónuveirusmit greinst innanlands, þar af 28 í einkennasýnatökum og 10 í sóttkvíar- og handahófsskimunum. Fimmtíu og þrjú prósent þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu eða 20 manns.
  1 2 3 4 5 6 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið