20:04 |
09. sep. 2020 |
Nýr og ferskur Feykir kominn út
Feykir kom út í dag en í blaðinu má finna ýmislegt gagnlegt og gott frá Norðurlandi vestra, auk fastra liða eins og venjulega, afþreyingu í boði hússins í bland við skemmtilega umfjallanir og viðtöl. Í blaðinu er m.a. ferðasaga um leiðangur fámenns hóps í Húsgilsdrag þar sem minningarplatti um Helgu Sigurðardóttur, fylgikonu Jóns Arasonar, síðasta kaþólska biskups fyrir siðaskipti, var festur á stein. |
21:27 |
08. sep. 2020 |
Félags- og tómstundastarf á Blönduósi að hefjast
Frá Sigríði Hrönn Bjarkadóttur
Félags- og tómstundastarf á Blönduósi hefst 10. september næstkomandi. Við viljum bjóða þér (ykkur) að koma og stunda félags- og tómstundastarf sem rekið er af Blönduósbæ ykkur að kostnaðarlausu. Um er að ræða þjónustu sem er opin öryrkjum og þeim sem náð hafa 60 ára aldri og eiga búsetu á Blönduósi eða í Húnavatnshrepp. |
12:24 |
08. sep. 2020 |
Leita að framúrskarandi ungum Íslendingum
JCI Ísland leitar að "Framúrskarandi ungum Íslending árið 2020" á aldrinum 18-40 ára. Verðlaunin eru veitt einstaklingum sem eru að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni og ná góðum árangri. Markmið verðlaunanna eru að verðlaunahafar hljóti hvatningu til frekari dáða og vekja athygli á verkum þeirra. |
09:11 |
08. sep. 2020 |
Jazz-tónleikar í Blönduóskirkju
Tónleikaröð sóknarnefndar
Gítarleikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson og píanistinn Agnar Már Magnússon munu koma fram á tónleikum í Blönduóskirkju sunnudaginn 13. september klukkan 16. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð, en Andrés og Agnar fengu styrk frá Tónalandi - landsbyggðartónleikum vegna verkefnisins. Á efnisskránni eru tónverk eftir þá félaga, auk laga eftir Jón Múla, Cole Porter og Luiz Bonfa. |
09:02 |
08. sep. 2020 |
Þjálfun í þreksal 60+
Mánudaginn 14. september hefst þjálfun í þreksal fyrir 60 ára og eldri. Er þetta námskeið hugsað fyrir byrjendur eða þá sem vilja læra betur á tækin og fá leiðsögn með rétta líkamsbeitingu. Námskeiðið mun standa í fimm vikur. Í boði verða þrír hópar og komast fimm einstaklingar í hvern hóp. |
16:13 |
07. sep. 2020 |
Sex gjaldfrjáls námskeið í boði
Stéttarfélögin Aldan, Kjölur, Samstaða, Sameyki og Verslunarmannafélag Skagafjarðar bjóða félagsmönnum sínum á námskeið, þeim að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru haldin á vegum Farskólans á Norðurlandi vestra en þau eru öllum opin og geta aðrir en félagsmenn þessara félaga kannað rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi. Námskeiðin eru: |
14:19 |
07. sep. 2020 |
Lítil breyting á íbúafjölda milli mánaða
Lítil breyting hefur orðið á fjölda íbúa á Norðurlandi vestra í ágúst en talsverðar breytingar eru innan einstakra sveitarfélaga. Þannig fjölgaði íbúum Blönduósbæjar um níu en íbúum í Húnaþingi vestra fækkar um sömu tölu. Fjöldi íbúa í landshlutanum var 7.427 1. september síðastliðinn sem er tveimur íbúum meira en 1. ágúst 2020 og 100 íbúum meira en 1. desember 2019. |
11:00 |
07. sep. 2020 |
Nýjar rafbílahleðslustöðvar á Húnavöllum
Settar hafa verið upp tvær rafbílahleðslustöðvar á Húnavöllum. Hver stöð er 2x22 kílóvött og hægt að hlaða fjóra rafbíla í senn. Húnavatnshreppur fékk styrk frá Orkusjóði til framkvæmdarinnar en hann hefur styrkt sambærileg verkefni víðs vegar um landið síðasta árið. Hönnun raflagna og uppsetning hleðslustöðvanna var framkvæmd af Átak ehf. á Blönduósi. |
10:51 |
07. sep. 2020 |
Ungmennaráð Blönduósbæjar uppfyllir skilyrði um aldursskiptingu
Menningar-, tómstunda- og íþróttanefnd Blönduósbæjar telur að aldursskipting í ungmennaráði sveitarfélagsins uppfylli skilyrði sem sett eru fram af umboðsmanni barna um aldursskiptingu. Ungmennaráðið er samsett af fimm fulltrúum og er skiptingin þannig að þrír koma úr 8.-10. bekk Blönduskóla og tveir eru á aldrinum 16-25 ára. Embætti umboðsmanns barna sendi í síðasta mánuði bréf til allra sveitarfélaga þar sem minnt var á hlutverk og tilgang ungmennaráða og sérstaklega mikilvægi þess að í þeim sitji fulltrúar yngri en 18 ára. |
10:28 |
07. sep. 2020 |
Vildi kaupa gamla Álafossúlpu á 700 þúsund
Á baksíðu Morgunblaðsins í dag er fjallað um Gallerí Bardúsa á Hvammstanga þar sem verslunarsaga staðarins er rakin í máli og myndum. Rætt er við Þuríði Þorleifsdóttur sem staðið hefur vaktina í verslunarminjasafninu síðan í maí 2018. Þuríður er ánægð með viðtökurnar og segir að allir sem þangað komi hafi sagt að heimsóknin hafi verið skemmtileg og þá sé takmarkinu náð. |
09:30 |
07. sep. 2020 |
Réttarstörfin gengu vel um helgina
Réttarstörf gengu almennt vel fyrir sig um helgina í Húnavatnssýslum. Ljómandi gott veður var á laugardaginn en þá var m.a. réttað í Auðkúlurétt í Svínavatn. Vegna þoku og leiðinda veðurs kom féð seinna niður af Grímstungu- og Haukagilsheiði því var réttað í Undirfellsrétt í Vatnsdal á sunnudaginn en þann dag var einnig réttað í Skrapatungu rétt. Róbert Daníel Jónsson var mættur í réttirnar um helgina með flygildið sitt og tók magnaðar myndir sem fylgja hér þessari frétt. |
09:06 |
07. sep. 2020 |
Rýmri samkomutakmarkanir
Á miðnætti tóku nýjar og rýmri samkomutakmarkanir gildi. Nálægðarreglan fer úr tveimur metrum í einn metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200. Hámarksfjöldi á sund- og baðstöðum og líkamsræktarstöðvum fer úr helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í 75%. |
21:31 |
06. sep. 2020 |
Sameiginlegt Texas Scramble golfmót
Gólfklúbburinn Ós á Blönduósi og Golfklúbbur Skagastrandar héldu í sameiningu Texas Scramble golfmót í blíðskaparveðri á golfvöllum félaganna í gær en það er orðinn árlegur viðburður. Keppendur, sem voru 32 talsins, hófu leik á Vatnahverfisvelli og enduðu síðan á Háagerðisvelli við Skagaströnd. Góður rómur var gerður að mótinu í gær og allir sammála um að þetta sé skemmtilegasta mót sumarsins. |
09:35 |
05. sep. 2020 |
Tap á Eimskipsvellinum í gær
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tapaði fyrir liði SR á Eimskipsvellinum í Reykjavík í gærkvöldi. Eftir 20 mínútna leik höfðu heimamenn skorað tvö mörk og þannig stóðu leikar í hálfleik 2-0 fyrir SR. Eftir 60 mínútna leik versnaði staða svo enn meira fyrir Kormák/Hvöt þegar SR skoraði þriðja mark sitt í leiknum. Áður en flautað var til leiksloka náði Kormákur/Hvöt klóra í bakkann og skora tvö mörk en lengra komst liðið ekki, lokatölur 3-2 fyrir SR. |
14:28 |
04. sep. 2020 |
Réttað í Undirfellsrétt á sunnudaginn
Réttarstörf áttu að hefjast í Undirfellsrétt í Vatnsdal í dag en svo verður ekki þar sem gangnamenn þurftu frá að hverfa við smölun í gær sökum þoku. Smölun hófst á ný í morgun þar sem skyggni var orðið þokkalegt en snjór er yfir öllu og lágskýjað. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins var rætt við Jón Gíslason, bónda á Hofi en hann gisti í Álkuskála á Haukagilsheiði í nótt ásamt fleiri mönnum. |