Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 3. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:16 0 0°C
Laxárdalsh. 14:16 0 0°C
Vatnsskarð 14:16 0 0°C
Þverárfjall 14:16 0 0°C
Kjalarnes 14:16 0 0°C
Hafnarfjall 14:16 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 88 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
14:54 22. jan. 2021   Góð aðsókn í Hæfnihringi
Rúmlega 40 konur hafa skráð sig í Hæfnihringi, sem er stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni. Verkefnið var sett upp sem samstarfsverkefni milli atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka síðastliðið haust. Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra segir að aðsóknin hafi farið fram úr björtustu vonum og að konurnar muni hefja leik innan skamms í sex hópum.
09:35 22. jan. 2021   Gul veðurviðvörun vegna norðanhríðar
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun vegna norðanhríðar á Ströndum og Norðurlandi vestra og gildir hún til miðnættis á morgun. Viðvörun er einnig í gildir fyrir Norðausturland og Austurland að Glettingi. Spáð er norðan 10-18 metrum á sekúndu og skafrenningi eða éljagangi. Skyggni getur orðið mjög lítið á köflum og akstursskilyrði erfið, einkum á fjallvegum.
16:40 21. jan. 2021   Nýir lampar settir í ljóslausa ljósastaura
Vegagerðin vinnur nú að því að setja nýja lampa í ljóslausa ljósastaura við þjóðveginn í gegnum þéttbýlið á Skagaströnd. Eins og fram kom í pistli Ólafs Bernódussonar fyrr í þessum mánuði eru 52 ljósastaurar á þessari leið og hafa 14 þeirra verið ljóslausir síðan í haust. Hann sagði íbúa á Skagaströnd mjög óánægða með þetta því ljósleysið gæti verið beinlínis hættulegt á þessari fjölförnustu leið þorpsins, sérstaklega í vondu veðri og skafrenningi.
12:11 21. jan. 2021   Björgunarfélagið Blanda þakkar stuðning við flugeldasýningu félagsins um áramót
Tilkynning frá stjórn Blöndu
Það er ómetanlegt fyrir okkar starf að hafa og eiga gott bakland. Fyrirtæki og einstaklingar studdu okkur vel á síðasta ári eins og áður og fyrir það erum við einstaklega þakklátir.
20:50 20. jan. 2021   Áframhaldandi matvælaaðstoð KS
Kaupfélag Skagfirðinga ætlar að framlengja fram yfir páska matvælaaðstoð sína við þá sem eiga í erfiðleikum vegna atvinnumissis af völdum kórónuveirufaraldursins eða fjárhagsvanda af öðrum ástæðum. Matargjafir félagsins fyrir jólin, alls um 90 þúsund máltíðir sem dreift var með milligöngu hjálparstofnana, komu sér víða vel en vandinn er enn til staðar, segir í tilkynningu frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
20:08 20. jan. 2021   Gul veðurviðvörun vegna snjókomu
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra og eystra og gildir hún til hádegis á morgun. Spáð er norðan 8-15 metrum á sekúndu en sums staðar hvassara í vindstrengjum við fjöll. Frost víða 1 til 6 stig. Búast má við talsverðri snjókomu, mest á Tröllaskaga, með líkum á samgöngutruflunum, einkum á fjallvegum.
18:07 20. jan. 2021   Starfsfólk óskast til afleysinga á Heimilið við Skúlabraut
Heimilið við Skúlabraut á Blönduósi óskar eftir starfsfólki til afleysinga frá janúar-maí 2021 með möguleika á framhaldandi ráðningu. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um tvær stöður er að ræða í 83% starfshlutfalli. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
16:12 20. jan. 2021   Ámundakinn kaupir Arion banka húsið á Blönduósi
Um miðjan desember undirrituðu fulltrúar Ámundakinnar ehf. og Arion banka hf. samning um kaup þess fyrrnefnda á húseigninni að Húnabraut 5 á Blönduósi. Í tilkynningu segir að kaupin hafi átt sér nokkurn aðdraganda, en viðræður um viðskiptin hafi staðið með hléum á annað ár. Með í kaupunum fylgja húsgögn og búnaður og öll listaverk sem prýtt hafa veggi bankans undanfarin ár.
10:00 20. jan. 2021   VG í Norðvesturkjördæmi efnir til forvals
Rafrænt kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi var haldið í gærkvöldi. Á fundinum var ákveðið samhljóma að efna til forvals um fimm sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar og að kosning í þrjú efstu sætin verði bindandi. Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður flokksins í kjördæminu sækist eftir endurkjöri, en hún skipaði fyrsta sæti framboðslista flokksins við síðustu alþingiskosningar.
09:46 20. jan. 2021   Akstursstyrkir og frístundakort í Húnaþingi vestra
Á vef Húnaþings vestra er vakin athygli á akstursstyrkjum vegna leikskólabarna og frístunda- og tónlistarnáms. Sveitarfélagið greiðir einnig út styrki til íþrótta- og tómstundaiðkunar barna frá tekjulágum heimilum í Húnaþingi vestra. Þá hafa verið gefin út frístundakort vegna ársins 2021 fyrir börn á aldrinum 6-18 ára sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu.
12:36 19. jan. 2021   Staða skjalastjóra er laus við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi vestra
Tilkynning frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra óskar eftir að ráða skjalastjóra í 100% stöðu á aðalskrifstofu embættisins á Blönduósi. Þar sem um er að ræða nýtt starf við embættið verður tímabundið ráðið til eins árs en með möguleika á framlengingu að teknu tilliti til mótunar og árangurs af starfinu.
07:23 19. jan. 2021   Húnar fengu sjúkrabörur að gjöf
Björgunarsveitin Húnar fékk nýverið þrjár samanbrjótanlegar sjúkrabörur að gjöf frá Gærunum, sem er hópur kvenna sem heldur úti nytjamarkaði á Hvammstanga. Börurnar verða settar í breytta jeppabifreiðar sem sveitin á, Húna 1, 2 og 3. Sagt er frá þessu á Facebook síðu Húna og þar færir björgunarsveitin Gærunum bestu þakkir fyrir höfðinglega gjöf, hlýhug og velvilja sem þær hafi sýnt sveitinni, nú sem áður.
15:08 18. jan. 2021   Tilkynning frá Þorrablótsnefnd Hreppablótsins
Kæru sveitungar. Hreppablótið sem átti að fara fram nú í febrúar frestast til 2022 vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Nefndin hvetur fólk til þess að fá sér þorramat og eitthvað til þess að skola honum niður og hlakka til Hreppablótsins 2022 en nú þegar hefur nefndin hafið undirbúning.
11:48 18. jan. 2021   Almenn ánægja með fyrirkomulag rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra
Veiðieftirlitsmaður Húnaþings vestra fór sjö ferðir til að hafa eftirlit með rjúpnaveiði í sveitarfélaginu síðasta haust og gekk eftirlitið almennt vel. Í fleiri tilvikum fór veiðieftirlitsmaðurinn á Víðidalstunguheiði og fylgdist með veiðimönnum í þjóðlendunni. Allir fylgdu fyrirmælum og almennt virðist vera ánægja með fyrirkomulag veiðanna, stjórn og vöktun sveitarfélagsins á svæðinu, að því er fram kemur í fundargerð landbúnaðarráðs Húnaþings vestra frá 13. janúar síðastliðnum.
10:13 18. jan. 2021   Alþjóðleg brúðulistahátíð og Sölubíll smáframleiðandi valin framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra árið 2020
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra velja árlega framúrskarandi verkefni á sviði menningarmála annars vegar og atvinnuþróunar og nýsköpunar hins vegar. Í ár hljóta verkefnin Hvammstangi International Puppetry festival og Sölubíll smáframleiðenda á Norðurlandi vestra viðurkenningarnar. Viðurkenningarnar voru afhentar fulltrúum þessara verkefna á dögunum.
  1 2 3 4 5 6 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið