10:25 |
01. júl. 2021 |
Samtal um sameiningu Skagastrandar og Skagabyggðar
Sveitarstjórnir Sveitarfélagsins Skagastrandar og Skagabyggðar funduðu í vikunni til þess að kanna forsendur fyrir sameiningu sveitarfélaganna og áttu góðan fund, að því er fram kemur á vef Skagastrandar. Niðurstaða fundarins var að leggja óformlega könnun fyrir íbúa seinni part sumars, til þess að kanna hug þeirra til hugsanlegrar sameiningar, áður en ákvörðun verður tekin um hvort fara eigi í formlegar viðræður milli sveitarfélaganna. |
16:07 |
30. jún. 2021 |
Myndlistarsýning í Hrútey
Á laugardaginn klukkan 14 verður opnuð myndlistarsýning í Hrútey og verður hún opin almenningi til 28. ágúst. Um er að ræða risastórt útilistaverk eftir listakonuna Hrafnhildi Arnardóttur eða Shoplifter eins og Hrafnhildur kallar sig. Í verkinu hyggst Shoplifter stilla náttúruperlunni Hrútey og gervináttúruverkum sínum upp sem hliðstæðum sem einnig má skoða sem andstæður, samstæður eða gagnstæðar spegilmyndir. |
07:49 |
30. jún. 2021 |
USVH hélt upp á 90 ára afmæli sitt með fjölmennu frjálsíþróttamóti
Fjölmenni var saman komin í Kirkjuhvammi í fyrradag þegar Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga fagnaði 90 ára afmæli sínu. Haldið var fjölmennt frjálsíþróttamót fyrir unga sem aldna, spilaður fótbolti og boðið var upp á veitingar. |
00:34 |
30. jún. 2021 |
Sveitarstjóra falið að undirbúa uppsögn á samstarfssamningi sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu
Sveitarstjórn Blönduósbæjar ákvað á fundi sínum í gær að fela sveitarstjóra að undirbúa uppsögn á þeim samstarfssamningi sem gerður var 6. júní árið 2008, á milli Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar. |
00:20 |
30. jún. 2021 |
Sveitarstjórn Blönduósbæjar óskar eftir formlegum viðræðum um sameiningu
Sveitarstjórn Blönduósbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að óska formlega eftir viðræðum við sveitarstjórn Húnavatnshrepps um sameiningu sveitarfélaganna byggða á þeirri miklu undirbúningsvinnu sem þegar hefur farið fram. |
22:20 |
29. jún. 2021 |
Staða aðstoðarleikskólastjóra
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í 100% stöðu, frá og með 1.ágúst 2021. Í leikskólanum eru 65 börn og 5 deildir frá 8 mánaða aldri. Einkunnarorð skólans er: Leikur. Gleði. Virðing. Unnið er eftir kenningum John Dewey, að læra í gegnum leikinn, einnig er unnið eftir læsisstefnan Færni til framtíðar sem var Þróunarverkefni grunn og leikskóla í Húnavatnssýslum. |
08:03 |
29. jún. 2021 |
Hreinsunarátak í Kálfshamarsvík
Kvenfélagið Hekla í Skagabyggð stendur fyrir hreinsun í Kálfhamarsvík á morgun, miðvikudaginn 30. júní klukkan 13. Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta og að lokinni hreinsun verður boðið upp á grillveislu í Skagabúð. |
07:40 |
29. jún. 2021 |
Gul veðurviðvörun í dag
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag frá klukkan 14 til miðnættis. Spáð er sunnan hvassviðri, 10-18 m/s. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, um 30 m/s og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni. |
21:52 |
28. jún. 2021 |
Konur í golfi
Frá Golfklúbbnum ÓS
Atli Freyr Rafnsson verður með golfkennslu fyrir konur sem hafa áhuga á að prófa golfíþróttina. Námskeiðið er fjórar klukkustundir og kennt verður á fimmtudögum. Fyrsti tíminn verður 8. júlí klukkan 18:30. Einnig verður kennt 15., 22. og 29. júlí. Námskeiðið kostar kr. 10.000. |
21:11 |
28. jún. 2021 |
Opna Fiskmarkaðsmótið haldið í blíðskaparveðri
Opna Fiskmarkaðsmótið, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli við Skagaströnd á sunnudaginn í blíðskaparveðri. Til leiks mætti 31 keppandi úr sjö golfklúbbum. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf, einn flokkur. Sigurvegari varð Adolf H. Berndsen úr Golfklúbbi Skagastrandar. |
19:30 |
28. jún. 2021 |
Samsýningin Þórdís - fyrsti Húnvetningurinn
Í sumar verður önnur samsýning listamanna á Norðurlandi vestra í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólum. Í fyrra var tekið fyrir þjóðsagan Stúlkan og Hrafninn sem er byggð á atburðum sem urðu þegar Skíðastaðaskriða féll 1545. Í ár verður tekið fyrir fæðing fyrsta innfædda Húnvetningsins sem hlaut nafnið Þórdís. Þrettán listamenn úr Húnavatnshreppi, Skagafirði, Reykjavík og Bandaríkjunum taka þátt í sýningunni. Listamennirnir nota allskonar tækni og málningu við listsköpun sína. |
08:33 |
28. jún. 2021 |
Skagaströnd og Skagabyggð kanna sameiningu
Kanna á hvort grundvöllur sé fyrir sameiningu Sveitarfélagsins Skagastrandar og Skagabyggðar. Sveitarstjóri Skagastrandar og oddviti Skagabyggðar hafa fundað í kjölfar niðurstöðunnar í kosningum um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu sem fram fóru 5. júní. Íbúar beggja sveitarfélaganna höfnuðu sameiningu allra sveitarfélaganna í sýslunni. |