Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 2. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:43 0 0°C
Laxárdalsh. 02:43 0 0°C
Vatnsskarð 02:43 0 0°C
Þverárfjall 02:43 0 0°C
Kjalarnes 02:43 0 0°C
Hafnarfjall 02:43 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 46-60 61-73 af 73  
KlukkanDagsetningFrétt
22:24 26. apr. 2022   Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra
Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall hófst í gær á Norðurlandi vestra og er þetta í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin. Á dagskrá hennar eru ýmis námskeið, vinnustofur og listviðburðir. Áhersla er lögð á fjölbreytni í dagskrá og gott aðgengi. Meginreglan er að aðgangur er ókeypis, sem gefur öllum börnum og ungmennum á Norðurlandi vestra tækifæri til að upplifa og vinna að fjölbreytileika listsköpunar. Hátíðin stendur til 14. maí næstkomandi.
15:45 26. apr. 2022   Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2022
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2022 verður haldin fimmtudaginn 28. apríl 2022, klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Á dagskrá er m.a. skýrsla stjórnar, ársreikningar og kosningar.
19:05 25. apr. 2022   Kvennakórinn Sóldís - nú birtir á ný
Kvennakórinn Sóldís býður á tónleika í Blönduóskirkju 26. apríl klukkan 20. Enginn aðgangseyrir, en tekið verður á móti frjálsum framlögum í orgelsjóð kirkjunnar. Stjórnandi er Helga Rós Indriðadóttir. Meðleikari er Rögnvaldur S. Valbergsson. Einsöngvarar eru Ólöf Ólafsdóttir, Íris Olga Lúðvíksdóttir og Helga Rós Indriðadóttir. Verið velkomin.
15:57 25. apr. 2022   Kona í stjórn KVH í fyrsta sinn
Aðalfundur Kaupfélags Vestur-Húnvetninga svf. var haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga miðvikudaginn 20. apríl síðastliðinn. Velta félagsins árið 2021 var um 990 milljónir króna og rekstrarhagnaður eftir skatta var 40,5 milljónir. Heildareignir félagsins námu um áramót 827,3 milljónir króna og eigið fé félagsins var um 608,3 milljónir. Eiginfjárhlutfallið er 73,5%.
14:01 25. apr. 2022   Kynning í dag á drögum menntastefnu Húnaþings vestar og opið hús á morgun
Í dag klukkan 18-20 verður haldinn opinn íbúafundur á Hvammstanga þar sem öllum gefst tækifæri til að koma að gerð nýrrar menntastefnu sveitarfélagsins. Boðið verður upp á súpu og brauð. Fundurinn fer fram í matsal grunnskólans. Í tilefni opnunar viðbyggingar Grunnskóla Húnaþings vestra er íbúum boðið að skoða hana á morgun, þriðjudaginn 26. apríl klukkan 14:30-16:30.
10:27 25. apr. 2022   Opið hús í Höfðaskóla í dag
Í dag, mánudaginn 25. apríl, verður opið hús í Höfðaskóla frá klukkan 13 til 14. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla bjóða gestum og gangandi að koma við og sjá hvað nemendur eru að fást við í kennslustundum.
20:44 24. apr. 2022   Almennur fundur í Fjallskiladeild Auðkúluheiðar
Frá stjórn
Almennur fundur í Fjallskiladeild Auðkúluheiðar verður haldinn í Dalsmynni miðvikudagskvöldið 27. apríl næstkomandi. Fundurinn hefst klukkan 20:30. Á dagskrá eru venjuleg fundarstörf. Kaffiveitingar. Stjórnin
10:23 21. apr. 2022   Gleðilegt sumar!
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.
17:42 20. apr. 2022   Sigurður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum
Fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum sem opnaður verður á laugardaginn er myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson. Hann er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Sigurður á yfir tuttugu einkasýningar að baki víðs vegar um heiminn, en hann hlaut auk þess Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir verk sitt Innljós í kapellu og líkhúsi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði á vegum Listasafns ASÍ. Sýninguna kom hann með til Blönduóss og var hún sýnd í útihúsunum á Kleifum.
15:14 20. apr. 2022   Aðalsafnaðarfundur Blönduóskirkju
Tilkynning frá stjórn
Aðalsafnaðarfundur Blönduóskirkju verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl n.k. og hefst kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn í safnarheimili kirkjunnar.
09:10 20. apr. 2022   Áhersluatriði eldra fólks í komandi sveitarstjórnarkosningum
Frá félagi eldri borgara í Húnaþingi
Það er sameiginlegt markmið þeirra sem koma að sveitarstjórn að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði eldra fólks. Það er því eðlileg krafa að lágmarkslífeyrir fólks verði aldrei lægri en umsamin lágmarkslaun á almennumk vinnumarkaði. Viðvarandi fjárhagslegt óöryggi skerðir lífsgæði eldra fólks, stuðlar að verra heilsufari og minnkar möguleika til sjálfsbjargar.
16:26 19. apr. 2022   Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 25. apríl næstkomandi klukkan 20:30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m. a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
16:24 19. apr. 2022   Stórbingó í Húnavallaskóla
Á morgun, miðvikudaginn 20. apríl, er loksins komið að því að 9. og 10. bekkur Húnavallaskóla, halda hið árlega Stórbingó í íþróttasal skólans! Húsið opnar klukkan 19:30 og byrjað verður að spila klukkan 20:00. Allir velkomnir! Glæsilegir vinningar. Allir geta unnið eitthvað því það verður tombóla og þar eru engin núll. Sjoppan verður að sjálfsögðu opin.
Fyrri 46-60 1 2 3 4 5  
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið